Bæjarráð Grindavíkur - 1373. fundur
- 17.02.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1373
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Tónlistarskóli: Yfirferð reksturs
Minnisblað lagt fram. NMJ kemur á fundinn. Minnisblaðið er í yfirlestri hjá tónlistarskólastjóra og kemur inn á morgun.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, ásamt bæjarstjóra, kynnti minnisblað um rekstur tónlistarskóla.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar í fræðslunefnd.2. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Framhald frá síðasta fundi.$line$Minnisblað frá slökkvistjóra kemur inn á morgun.$line$Jafnframt upplýsist að Steinsteypufélagið hefur ákveðið að veita Grindavíkurbæ og Batteríinu Steinsteypuverðlaunin 2015 fyrir M einingar mannvirkisins.
Framhald frá síðasta fundi.
Minnisblað frá slökkvistjóra um brunavarnarmál lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að fara í þær bráðabirgðaaðgerðir sem lagðar eru til í minnisblaði slökkvistjóra og felur byggingafulltrúa að koma þeim til framkvæmda.
Bæjarstjóri upplýsir að Steinsteypufélagið hefur ákveðið að veita Grindavíkurbæ og Batteríinu arkitektum Steinsteypuverðlaunin 2015 fyrir M einingar mannvirkisins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að veita viðurkenningunni viðtöku fyrir hönd Grindavíkurbæjar.3. Íþróttamannvirki: tillaga B-lista
Fulltrúi B-lista leggur fram eftirfarandi tillögu, ásamt greinargerð.
Reglulega koma fram nýjar hugmyndir um uppbyggingu íþróttamannvirkja og fyrstu drög nýrrar nefndar um íþróttamannvirki gefur í skyn að fara eigi í metnaðarfyllri uppbyggingu en lagt hefur verið til áður og byggðir fleiri fermetrar við íþróttahúsið en nefndir frá kjörtímabilunum 2006-2010 og 2010-2014 lögðu til áður. Í ljósi þess þykir mjög mikilvægt að upplýsingar um notkun og þarfir allra iðkenda liggi fyrir áður en ákvörðun hefur verið tekin en lítið hefur verið talað um og greint þarfir grunnskólans þrátt fyrir að nemendur við Ásabraut eru álíka margir og aðrir iðkendur er nýta íþróttahúsið í dag. Mikilvægt er að þær upplýsingar liggi fyrir þar sem allt bendir til þess að aukin hreyfing nemenda á hverjum degi geti skilað bættum námsárangri og margir skólar hafa tekið upp á að auka hreyfingu utan venjulegra leikfimitíma þar sem íþróttamannvirki í nánd við skóla spila stórt hlutverk. Er því óskað eftir eftirfarandi upplýsingum sem unnar skulu af Grunnskóla Grindavíkur og skólaskrifstofu bæjarins.
1. Hverjir eru kostir og gallar þess fyrirkomulags sem nú er, þ.e.a.s. að öll íþróttamannvirki eru staðsett á sama stað í töluverði fjarlægð frá Ásabraut, hér skal meðal annars skoða stundatöflugerð, kennslustundir sem nýtast ekki vel þar sem nemendur eru að labba til og frá skóla, hvernig brugðist er við ef veður er mjög slæmt, kostnað er fylgir fyrirkomulaginu svo eitthvað sé nefnt.
2. Hverjir eru kostir og gallar þess ef byggt yrði íþróttahús við Ásabraut. Skoða skal sömu liði og koma fram í spurningu 1 (sem og aðrar ábendingar er koma fram) þannig að hægt sé að bera saman bæði fyrirkomulög (öll íþróttamannvirki á einum stað eða byggja íþróttahús við Ásabraut)
3. Ef byggt yrði íþróttahús við Ásabraut, væri þá hægt að nota skólaliða við búningsklefagæslu líkt og tíðkast víða þar sem íþróttahús er byggt við skóla, og ef svo er, hvað þyrfti að bæta við mörgum starfsmönnum til að sinna gæslu meðan á skólatíma stendur? Myndu fjármunir sparast á öðrum sviðum skólans við það að hafa íþróttahús við Ásabraut?
Formaður ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan er með felld með atkvæði fulltrúa B-lista gegn atkvæði fulltrúa D-lista. Fulltrúi G-lista situr hjá.
Fulltrúi B-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Þegar nýr meirihluti D- og G-lista var myndaður síðasta vor kom skýrt fram í máli oddvita G-listans að stefnt væri á að halda áfram sömu vinnubrögðum og frá seinasta kjörtímabili og var samkomulag á milli flokkana að starfa saman þvert á alla flokka í vinnu sinni fyrir Grindavíkurbæ.
Í dag hafnar formaður bæjarráðs í annað sinn að aflað sé gagna er bæjarfulltrúar Framsóknar óska eftir og forseti bæjarstjórnar sat hjá nú við atkvæðagreiðslu og tryggði þannig að tillögunni yrði hafnað. Verður að telja að þetta sé ekki í anda yfirlýsinga flokkanna um samstarf. Vert að er nefna að gögnin sem óskað var eftir ættu ekki að tefja umrætt mál enda kemur það ekki til bæjarráðs að nýju fyrr en 3. mars og því nægur tími til að afla upplýsinga.
Furðu vekur að meirihlutinn vilji ekki fá upplýsingar um þarfir grunnskólans í tengslum við uppbyggingu íþróttamannvirkja sérstaklega í ljósi þess að í stefnuskrá Sjálfstæðisflokks kemur sérstaklega fram að það sé hlutverk bæjarstjórnarmanna að hlúa að aðbúnaði grunnskólans og í stefnuskrá lista Grindvíkinga kemur fram að starfa eigi með heildarhagsmuni íbúa í huga. Með hliðsjón að þeirri stefnu mætti ætla að umræddar upplýsingar ættu að vera mikilvægar flokkunum við ákvörðunartöku sérstaklega í ljósi málefnasamnings flokkanna sem kveður á um að allir í bæjarstjórn eigi að vera vel upplýstir um mál sem koma til afgreiðslu og að sjónarmið allra komi að borðinu áður en ákvörðun er tekin. Ekki verður séð að nein rök séu fyrir því að hafna umræddri tillögu nema hræðsla við að niðurstaðan verði meirihlutanum í óhag enda nægur tími til að afla upplýsinganna og eini kostnaðurinn sem flest í tillögunni er tími starfsmanna sem er minniháttar með hliðsjón að því að stefnt er að um 400 milljón króna uppbyggingu.
Fulltrúi B-lista
Fulltrúar G og D lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúum G og D lista hugnast ekki sú hugmynd að byggja íþróttahús við Ásabraut. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Það er erfitt að sjá hvar slíkt íþróttahús ætti að koma. Fyrirséð er að rekstrarkostnaður við slíkt mannvirki yrði til viðbótar við það mannvirki sem nú er til staðar. Við teljum jafnframt að nýr íþróttasalur á þeim stað sem núverandi íþróttamannvirki eru muni hagnast heildinni betur en að setja nýjan sal við grunnskólann. Að okkar mati er fjarlægð milli skóla og íþróttahúss ekki ”töluverð“. Nú þegar er nefnd um íþróttamannvirki að skoða tillögu sem kom frá B-lista um að byggja strax nýjan sal í stað tengibyggingar fyrir bardagaíþróttirnar. Þeir fulltrúar sem nú leggja fram tillögu um íþróttahús við Ásabraut hafa þegar lagt fram greinargerð og óskað eftir upplýsingum er varða íþróttamannvirkin. Tillaga um íþróttahús við grunnskólann var ekki þar á meðal.
Það er ljóst að ef byggja á íþróttahús við Ásabraut verður ekkert úr nýjum íþróttasal sem er stærsta kosningaloforð D-lista. Fulltrúar B-lista höfðu tækifæri allt síðasta kjörtímabil til að óska eftir þeim upplýsingum sem núna er farið fram á að verði aflað. Hagræðing í rekstri og að hafa alla starfssemi á einum stað voru ein helstu rök fyrir því að byggja upp núverandi mannvirki. Það vekur því furðu að nú eigi að hafa eins rekstur á tveimur stöðum með þeim hugmyndum sem hér eru lagðar fram.
Það að vinna þvert á flokka þýðir ekki að allar tillögur frá minnihluta verði samþykktar. Upplýsingarnar sem óskað er eftir af fulltrúa B lista eru mjög umfangsmiklar sem taka tíma frá starfsfólki bæjarins fyrir hugmynd sem ekki er á stefnuskrá meirihlutans.
Bókun D lista
Afstaða formanns bæjarráðs er sú að bæjarfulltrúi B lista sé að reyna að þæfa málið og trufla þá vinnu sem þegar er í gangi við uppbyggingu nýs íþróttahúss á núverandi íþróttasvæði. Allir flokkar hafa fulltrúa í nýskipaðri nefnd um íþróttamannvirki. Rík samstaða er um þær tillögur sem nú liggja fyrir hjá 4 af 5 kjörnum nefndarmönnum.
Fulltrúi B-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi B-lista vill vekja athygli á því að hvergi í tillögunni er óskað eftir því að byggt verði nýtt íþróttahús við Ásabraut. Eingöngu er óskað eftir greinargerð frá Grunnskóla Grindavíkur og skólaskrifstofu um kosti og galla þess að hafa íþróttamannvirkin á einum stað eða hafa íþróttahús við Ásabraut. Ekki verður séð að slík greinargerð ætti að tefja mál meirihlutans. Rétt er að samráð þýðir ekki að allir fái allt það sem óskað er eftir sérstaklega þegar því er ekki við komið. En hér er tillaga sem kostar ekkert í framkvæmd nema minniháttar vinnu starfsmanna bæjarins. Gefur þetta í skyn að meirihlutinn muni eingöngu samþykkja ósk um gögn ef þau gögn eru til stuðnings málum meirihlutans en ekki gögn sem gætu varpað nýju ljósi á stefnu þeirra. Þá verður einnig að leiðrétta mál formanns bæjarráð að þrátt fyrir að allir flokkar eigi nefndarmann í nýrri íþróttamannvirkjanefnd þá er verksvið nefndarinnar mjög skýrt, byggja skal íþróttahús við núverandi íþróttahús, og því á þessi tillaga og umræða ekki heima í þeirri nefnd.
Fulltrúi B-lista4. Fjölmenningarstefna: tillaga B-lista
Umfjöllun frestað til næsta fundar.
5. Hreyfisamningar: 2015
Umfjöllun frestað til næsta fundar.
6. Þorrablót UMFG 2015: ósk um lækkun á leigu á íþróttahúsi
Umfjöllun frestað til næsta fundar.
7. Svæðisskipulag Suðurnesja: Endurskoðun
Umfjöllun frestað til næsta fundar.