Bæjarráð Grindavíkur - 1328. fundur
- 17.09.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1328
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Ágóðahlutagreiðsla EBÍ 2013.
Bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands lagt fram. Hlutdeild Grindavíkurbæjar í Sameignarsjóði EBÍ er 2,305% og greiðsla til Grindavíkurbæjar verður 3.457.500 kr.
2. Beiðni um styrk vegna gönguhátíðar
SJF menningarmiðlun óskar eftir styrk til að bjóða upp á fimm menningar- og sögutengdar gönguferðir í Grindavík.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.3. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2014-2017
Tillaga að bréfi til forstöðumanna vegna fjárhagsáætlunar 2014-2017 lagt fram. Farið yfir launaáætlun og fjárfestingaáætlun
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs lagði fram tillögu að forsendum fjárhagsáætlunar 2014-2017 og fór yfir launaáætlun og fjárfestingaáætlun.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að senda forstöðumönnum bréf með forsendum áætlunar og hefja vinnu við áætlanagerð.4. Lengd viðvera fatlaðra grunnskólabarna í 5. - 10. bekk
Sviðsstjóri félagsþjónustu-og fræðslusviðs óskar eftir heimild fyrir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013 vegna lengdrar viðveru fatlaðra grunnskólabarna í 5.- 10. bekk að fjárhæð kr. 2.200.000.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð kr. 2.200.000, sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð felur sviðsstjóra og skólastjóra grunnskólans að leggja fram tillögu að framtíðarfyrirkomulagi lengdrar viðveru fatlaðra grunnskólabarna í 5.- 10. bekk í samráði við foreldra.5. Sérstakt strandveiðigjald til hafna.
Lagt fram bréf frá Fiskistofu dags. 13. september 2013 þar sem tilkynnt er um greiðslu sérstaks strandveiðigjalds til hafna. Í hlut Grindavíkurhafnar koma 1.141.982 kr.
6. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Fara yfir fyrstu fjóra kaflana
Bæjarráð fór yfir tillögu að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.
7. Uppsögn á starfi sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs
Tillaga RR og JÞ lögð fram.
Bæjarstjóra falið að auglýsa starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
8. Umsókn um útgáfustyrk til að gefa út sögu og þróun útvarps og rafeindavirkjunar
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.