Bæjarráð Grindavíkur - 1496. fundur
- 16.10.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1496
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
- Guðmundur Grétar Karlssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Í upphafi fundar bauð formaður Guðmund G Karlsson velkominn á sinn fyrsta bæjarráðsfund.
1. Fjárhagsáætlun 2019-2022: Grindavíkurbær og stofnanir
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og leikskólastjóri leikskólans Lautar mæta til fundarins.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og skólastjóri leikskólans Lautar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
2. Fjárhagsáætlun - Málaflokkur 025
Almenn umræða um þjónustu við fatlað fólk, þó einkum samstarf við Rbæ og SaGaVo. Greiðum 13% af rekstri þriggja stofnanna, þ.e. Hæfingarstöðvar og Bjargar (Rbær) og Skammtímavistunar (SaGa). Samtals c. 28.000.000,-. Að auki c. kr. 15.000.000 (svolítið slump) í akstur í þessi úrræði eða samtals c. 43.000.000,-. Getum við veitt sambærilega eða betri þjónustu í heimabyggð fyrir sama fjármagn?
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og forstöðukona sambýlis við Túngötu sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð vísar málinu til félagsmálanefndar.3. Fræðslumál: Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Grindavíkurbæ hefur borist afrit af bréfi sem Mennta- og menningarmálaráðuneytið sendi Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afrit af bréfi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti til Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 12. september 2018 lagt fram.4. Ljósastaurar - Hópsvegur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka upp á 3. mkr. vegna uppsetningar á ljósastaurum við Hópsbraut.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka upp á 3. mkr. vegna uppsetningar á ljósastaurum við Hópsveg.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 3 milljónir kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.5. Landskerfi bókasafna: Vinnslusamningur
Samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga þarf að gera vinnslusamning milli Landskerfis bókasafna og sveitarfélagsins. Vinnslusamningur er viðauki við gildandi samning um þjónustu vegna bókasafnskerfis.
Lagður fram til samþykktar Vinnslusamningur milli Landskerfis bókasafna hf. og Grindavíkurbæjar. Vinnslusamningurinn er viðauki við gildandi samning um þjónustu vegna bókasafnskerfis.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.6. Vinna við verkfundi - Grindavíkurhöfn
Hafnarstjórn leggur til að sá sem situr í verkefnanefnd með hafnarstjóra fái greitt fyrir fundasetu á verkfundum vegna framkvæmda við Miðgarð.
Hafnarstjórn leggur til að sá sem situr í verkefnanefnd með hafnarstjóra fái greitt fyrir fundasetu á verkfundum vegna framkvæmda við Miðgarð.
Bæjarráð samþykkir að greiða hafnarnefndarmanni sem mætir á verkefnafund, núverandi framkvæmda í höfninni, 6.000 kr. fyrir hvern fund.7. Tækifærisleyfi - Sunddeild UMFG
Borist hefur beiðni um tækifærileyfi frá Sunddeild UMFG vegna sjávarréttahlaðborðs í Gjánni þann 2. nóvember nk. Fyrir liggja jákvæðar umsagnir frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur.
Lögð fram beiðni um tækifærileyfi frá Sunddeild UMFG vegna sjávarréttahlaðborðs í Gjánni þann 2. nóvember nk. Fyrir liggja jákvæðar umsagnir frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur.
Bæjarráð mælir með því að leyfið verði veitt.