Bæjarráð Grindavíkur - 1445. fundur
- 16.05.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1445
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá með afbrigðum eftirfarandi mál sem 1. mál á dagskrá:
1610065 Hádegismatur eldri borgara: Beiðni um niðurgreiðslur.
Samþykkt samhljóða.
1. Hádegismatur eldri borgara: Beiðni um niðurgreiðslur
Til fundarins var mættur Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og kynnti hann málið.
Minnisblað frá HSS dags. 15. maí 2017 lagt fram.2. Reglur um ferðaþjónustu hjá Grindavíkurbæ
Félagsmálanefnd Grindavíkur hefur samþykkt drög að reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks og vísar málinu til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði.
Til fundarins var mættur Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og kynnti hann málið.
Félagsmálanefnd Grindavíkur hefur samþykkt drög að reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks og vísar málinu til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.3. Einstök erindi fræðsludeild
Beiðni um skólavist í grunnskóla í sveitarfélagi utan lögheimilis nemanda
Til fundarins var mættur Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og kynnti hann málið.
Lögð fram beiðni um að Grindavíkurbær greiði fyrir skólavist þriggja barna í Breiðholtsskóla.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.4. Reglur Grindavíkurbæjar um inntöku barna á leikskóla
Tillaga um viðbót við reglur um leikskóla. Við bætist að starfsmenn eigi forgang grein III. 3.liður vi. atriði. Einnig er umorðað hvernig beri að skila umsókn/gögnum vegna forgangs. Breytingar eru litaðar með gulu. Mikilvægi forgangs fyrir starfsmenn liggur í starfsmannaskorti í Laut.
Til fundarins var mættur Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og kynnti hann málið.
Lögð fram tillaga um viðbót við reglur um leikskóla. Við grein III. Reglur um úthlutun leikskóladvalar, 3. tölulið bætist liður vi. sem orðist svo: Börn starfsmanna leikskóla í Grindavíkurbæ. Einnig er umorðað hvernig beri að skila umsókn/gögnum vegna forgangs. Mikilvægi forgangs fyrir starfsmenn liggur í starfsmannaskorti í Laut.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að vi. liður orðist svo: Börn starfsmanna leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla í Grindavíkurbæ.5. Stofnun öldungaráðs: Erindi frá Félagi eldri borgara í Grindavík
Á stjórnarfundi FebG var ákveðið að fara fram á stofnun öldungaráðs í Grindavík.
Erindi frá Félagi eldri borgara í Grindavík um stofnun öldrunarráðs í Grindavík lagt fram.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir fundi með stjórn Félags eldri borgara í Grindavík.6. Innri leiga Eignasjóðs: Viðauki við fjárhagsáætlun 2017
Endurreikningur innri leigu að teknu tilliti til fjárfestinga árið 2016 og breytingar á byggingavísitölu.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 vegna endurreiknings á innri leigu. Viðaukinn felur í sér hækkun gjalda hjá aðalsjóði að fjárhæð 21.055.413 kr. og hækkun gjalda hjá þjónustumiðstöð að fjárhæð 191.255 kr. Fjármögnun er með hækkun tekna eignasjóðs að fjárhæð 21.246.668 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.7. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum: Umsókn Grænabergs efh. um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar.
Fyrir liggja umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, byggingarfulltrúa Grindavíkurbæjar og Slökkviliðs Grindavíkur.
Lögð fram umsókn Grænabergs ehf. um rekstrarleyfi til reksturs gistiheimilis að Víkurbraut 8 í Grindavík.
Fyrir liggja umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, byggingarfulltrúa Grindavíkurbæjar og Slökkviliðs Grindavíkur.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.8. Húsnæðisáætlanir: Undirbúningur og gerð
Íbúðalánasjóður býðst til að halda kynningarfund um gerð húsnæðisáætlana.
Íbúðalánasjóður býðst til að halda kynningarfund um gerð húsnæðisáætlana.
Bæjarráð samþykkir kynningarfund Íbúðalánasjóðs og felur bæjarstjóra að fá nánari tímasetningu.9. Landskerfi bókasafna: Aðalfundur 24.maí 2017
Undanfarin ár hefur forstöðumaður bókasafnsins verið fulltrúi bæjarins.
Bæjarráð samþykkir að Andrea Ævarsdóttir verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.
10. Sustainable Feed - viljayfirlýsing
Félag um uppsetningu og rekstur eldisbúgarðs óskar eftir endurnýjun á "Letter of Intent".
Félag um uppsetningu og rekstur eldisbúgarðs óskar eftir endurnýjun á "Letter of Intent".
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viljayfirlýsingin verði framlengd um 1 ár.