Bæjarráð Grindavíkur - 1402. fundur
- 16.02.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1402
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Sala á Óla á Stað: boð um neyta forkaupsréttar skv. 12. gr. laga um stjórn fiskveiða
Garðar Garðarsson lögmaður kemur á fundinn.
Garðar Garðarsson lögmaður kom á fundinn og svaraði fyrirspurnum bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúarnir Jóna Rut Jónsdóttir og Guðmundur Pálsson sátu undir þessum lið, auk bæjarráðsfulltrúa.
2. Búsetumál eldri borgara í Grindavík: uppbygging við Víðihlíð
Drög að erindisbréfi lagt fram, ásamt tilnefningum í verkefnishóp.
Eftirfarandi eru tilnefndir í hópinn:
Fulltrúar meirirhluta: Kristín María Birgisdóttir og Hjálmar Hallgrímsson
Fulltrúi minnihluta: Ásrún Kristinsdóttir
Fulltrúi starfsmanna í Miðgarði: Ingibjörg Reynisdóttir
Fulltrúi félags eldri borgara: Margrét Gísladóttir
Bæjarráð samþykkir tilnefningarnar og erindisbréfið með áorðnum breytingum, og skipar jafnframt Ármann Halldórsson sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verkefnisstjóra yfir verkinu.3. Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti minnisblað með tillögum um næstu skref.
Bæjarráð samþykkir að veita sviðsstjóra heimild til að bjóða út framkvæmdir samkvæmt tillögu B í minnisblaðinu.4. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja
Samningstilboði hefur verið hafnað.
Framhald frá fundi 1400.
Samningstilboði Grindavíkurbæjar var hafnað.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við knattspyrnudeildina um breytingu á gildistímaákvæði samningsdraganna, en önnur atriði verði óbreytt.5. Knattspyrnudeild UMFG: ósk um að tveir erlendir leikmenn fái sumarvinnu hjá Grindavíkurbæ
Framhald frá fundi 1401.
Afgreiðslu frestað.6. Þjónustumiðstöð: beiðni um viðauka.
Byggingafulltrúi óskar eftir viðauka að fjárhæð 5,5 milljónir kr. við fjárhagsáætlun ársins 2016 til að ráða starfsmann tímabundið til áramóta vegna forfalla.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.7. Ársuppgjör 2015: Grindavíkurbær og stofnanir
Skýrsla KPMG til bæjastjóra lögð fram og farið yfir tímaáætlun endurskoðunar
Skýrsla KPMG til bæjarstjóra lögð fram.
Áætlað er að síðari umræða um ársreikning ársins 2015 fari fram 31. maí.