Bæjarráð Grindavíkur - 1360. fundur
- 16.09.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1360
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Stofnun byggðasamlags um Brunavarnir Suðurnesja. Boð um viðræður.
Aðildarsveitarfélög Brunavarna Suðurnesja; Reykjanesbær, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar, bjóða Grindavíkurbæ og Sandgerðisbæ til viðræðna um aðild að stofnun byggðasamlags um brunavarnir á Suðurnesjum.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.2. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Fara yfir tillögu skipulags og umhverfisnefndar að framsali valds.$line$Jafnframt er lögð fram breytingatillaga á 46. gr. þar sem umhverfisverkefni skipulags- og umhverfisnefndar og ferðaþjónustuverkefni bæjarráðs verða falin nýrri umhverfis- og ferðamálanefnd. Gögnin koma inn á morgun, ég er að vinna í textanum.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat undir afgreiðslu málsins.
Vinnu haldið áfram við tillögu að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar milli fyrri og seinni umræðu.3. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Drög að yfirlýsingu tekin fyrir að nýju
Tillaga að sameiginlegri yfirlýsingu Grindavíkurbæjar, Bláa Lónsins hf. og HS Orku hf. um landnotkun samkvæmt Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir yfirlýsinguna og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.4. 6 mánaða rekstaryfirlit janúar-júní 2014
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir 6 mánaða rekstraryfirlit janúar til júní 2014.
5. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Tillaga að bréfi til forstöðumanna vegna fjárhagsáætlunar 2015-2018 lagt fram.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs lagði fram tillögu að bréfi til forstöðumanna stofnanna Grindavíkurbæjar vegna fjárhagsáætlunarvinnu 2015-2018.
Bæjarráð samþykkir þær forsendur sem koma fram í bréfinu og leggur áherslu á að forstöðumenn virði þær og tímaáætlun vinnunnar.6. Tryggingaiðgjöld og tjón 2013, Grindavíkurbær og Grindavíkurhöfn
Yfirlit lagt fram. Engin ágóðahlutdeild er vegna ársins 2013.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs lagði fram yfirlit yfir tryggingaiðgjöld og tjón Grindavíkurbæjar og Grindavíkurhafnar vegna ársins 2013.