Bæjarráð Grindavíkur - 1453. fundur
- 15.08.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1453
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Reykjaneshöfn: Framkvæmdaþörf í Helguvíkurhöfn - Samgönguáætlun 2018-2021
Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri óskar eftir að kynna málið fyrir bæjarráði og mætir hann á fundinn.
Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafna mætti á fundinn og kynnti framtíðaráform Helguvíkurhafnar.
2. Tölvupóstur: Ábendingar vegna umgengni ferðamanna
Áætlaður kostnaður er 100.000 kr. á skilti. þ.e. skiltasteinn, staur, skilti, gröftur og uppsetning.
Umhverfis- og ferðamálanefnd óskar eftir fjárveitingu fyrir 5 skiltum sem sett verði upp í sumar á helstu álagspunktum.
Bæjarráð tekur undir með nefndinni og felur sviðsstjóra að setja niður skiltin ef framkvæmdin rúmast innan fjárheimilda ársins 2017.3. Grunnskóli Grindavíkur: Beiðni um viðauka 2017, námsgagnakaup
Erindi þetta var tekið fyrir á 1448. fundi bæjarráðs og var þá samþykkt að vísa því til fjárhagsáætlunarvinnu vegna fjárhagsáætlunar 2018. Málið er nú tekið upp að nýju.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 að fjárhæð 2.500.000 kr. til að kaupa námsgögn fyrir nemendur og að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
4. Refaveiðar: Þriggja ára áætlun 2017-2019
Áætlun Umhverfisstofunar fyrir árin 2017-2019 ásamt beiðni um útfyllingu á áætluðum kostnaði Grindavíkurbæjar fyrir sömu ár.
Lögð fram áætlun Umhverfisstofunar fyrir árin 2017-2019 ásamt beiðni um útfyllingu á áætluðum kostnaði Grindavíkurbæjar fyrir sömu ár.
Bæjarráð samþykkir að setja 500.000 kr. í fjárhagsáætlun næstu ára og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að upplýsa Umhverfisstofnun um þá áætlun.5. Húsatóftavöllur: Stuðningur við uppbyggingu golfvallar
Formaður Golfklúbbs Grindavíkur sendi bæjarráði póst þar sem fram kemur að enn sé ólokið gerð undirganga undir Nesveg við golfvöllinn. Bæjarráð frestaði málinu á síðasta fundi.
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Lagt fram bréf frá Golfklúbbi Grindavíkur þar sem bent er á misskilning varðandi það að framkvæmdastyrkur ársins 2015 hafi verið tekinn sem hluti af uppbyggingarsamningi Bláa Lónsins, Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur. Bæjarráð telur ábendinguna réttmæta og samþykkir að setja 3.000.000 kr. í fjárhagsáætlun 2018 sem síðustu greiðslu í uppbyggingarsamningi við Golfklúbbinn.6. Kalka - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja: Kynning á mögulegri sameiningu SS og Sorpu
483. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.
Fundargerð 483. fundar, dags. 10. ágúst 2017, lögð fram.
7. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2017
717. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Fundargerð 717. fundar, dags. 9. ágúst 2017, lögð fram.