Bæjarráð Grindavíkur - 1425. fundur
- 15.11.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1425
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Biðlistar í leikskólum og nemendafjöldi í skólum.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fylgdi málinu eftir.
Bæjaráð þakkar starfshópnum fyrir sitt framlag, og tekur undir það að flytja frekar bekkjardeildir frá Hópsskóla í grunnskólann í Iðunni, frekar en að flytja lausar skólastofur.
Tillögum um framkvæmdir við leik- og grunnskóla er vísað til fjárhagsáætlunarvinnu.2. Grunnskóli: Fjárhagsáætlun 2017
Tillaga að fjárhagsáætlun grunnskólans lögð fram eftir umfjöllun fræðslunefndar. Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að festa í sessi 4,4 stöðugildi stjórnunar við grunnskólann eins og það er í dag.
Jafnframt eru lagðar fram ályktanir aðalfundar foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur þar sem annarsvegar er skorað á bæjarstjórn að kosta námsgögn allra nemenda við Grunnskóla Grindavíkur frá og með skólaárinu 2017-2018, og hinsvegar að bæjarstjórn Grindavíkur hefji án tafar undirbúning við stækkun skólahúsnæðið við Hópsskóla
Bæjarráð samþykkir 4,4 stöðugildi stjórnunar við Grunnskóla Grindavíkur til vors 2018 og verður það þá endurskoðað. Ályktunum foreldrafélagsins er vísað til fjárhagsáætlunarvinnu.3. Fasteignagjöld: Álagningarreglur 2017
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að álagningarreglum fyrir árið 2017.
Bæjarráð vísar álagningarreglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.4. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum: Tekjuviðmið 2017
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að uppfærðum tekjuviðmiðum afsláttar fyrir elli- og örorkulífeyrisþegar af fasteignagjöldum fyrir árið 2017.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.5. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar
Tillaga að gjaldskrá lögð fram, ásamt breytingatillögu forstöðukonu bókasafns
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2017.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.6. Fjáreigendafélag Grindavíkur: Styrkbeiðni
Fjáreigendafélag Grindavíkur óskar eftir 500.000 kr. styrk til kaupa á tilbúnum áburði eða fræjum til uppgræðslu í beitarhólfi við Krýsuvík.
Meirihluti bæjarráðs leggur til að Fjáreigendafélaginu verði veittur 50.000kr. styrkur.
Fulltrúi D-lista leggur til að styrkurinn verði 100.000 kr. eins og á síðasta ári.
Tillaga D-lista er felld með tveimur atkvæðum gegn einu.
Tilldaga meirihluta bæjarráðs er samþykkt samhljóða.7. Laun launafulltrúa: Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2016
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 vegna aukins launakostnaðar í tengslum við starfslok og ráðningu nýs launafulltrúa.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 1.900.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.8. Umferðaröryggi: ósk um hraðatakmarkandi aðgerðir á Gerðavöllum
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 til að setja upp tvær hraðahindranir við Gerðavelli, í samræmi við ákvörðun bæjarráðs frá því í júní.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 1.700.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.9. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Nefndin óskar eftir endurnýjuðu umboði.
Fundargerð bygginganefndar íþróttamannvirkja frá 11. nóvember lögð fram. Þar óskar nefndin eftir eftir endurnýjuðu umboði þar sem það liggur fyrir að mannvirkið sem nefndinni hugnast best er dýrara en áætlað var.
Nefndin leggur til að framkvæmdinni yrði skipt í áfanga og heildarkostnaður mannvirkisins yrði um 610 mkr. skv. kostnaðaráætlun Batterísins, án áhorfendabekkja. Lagt er til að unnið verði eftir eftirfarandi áfangaskiptingu.
1. Áfangi 1. Íþróttahús fullbúið(án áhorfendabekkja) og millibygging fokheld en innréttað fyrir bardagaíþróttir 430 mkr.
2. Áfangi 2. Sturtur/klefar innifrágangur á millibyggingu 140 mkr.
3. Áfangi 3. Búnaður 40 mkr.
Afgreiðslu er frestað til næsta fundar.10. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar: Ráðning
Samkvæmt bókun á bæjarstjórnarfundi nr. 467, þann 8. nóvember 2016
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála-og stjórnsýslusviðs að afla tilboða frá ráðningarskrifstofum í aðstoð við ráðningu bæjarstjóra.
11. Búsetumál eldri borgara í Grindavík: uppbygging við Víðihlíð
upplýsingar um biðlista lagðar fram
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fylgdi málinu eftir og gerði grein fyrir stöðu biðlista.