Bæjarráð Grindavíkur - 1391. fundur
- 15.09.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1391
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Fjárhagsáætlun 2016-2019: Grindavíkurbær og stofnanir
Launaáætlun 2016, útreikningur launadeildar, lögð fram og bréf til forstöðumanna vegna áætlunarinnar.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti drög að launaáætlun ársins 2016 og forsenduskjal sem sent verður forstöðumönnum vegna vinnslu fjárhagsáætlunar 2016-2019.
2. Bókasafn: Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2015
Sjá nánar í minnisblaði
Minnisblað sviðsstjóra frístunda-og menningarsviðs lagt fram, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun bókasafnsins vegna ársins 2015 að fjárhæð 2.272.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukabeiðnin verði samþykkt og komi til lækkunar á handbæru fé.3. Félagsþjónusta: Viðauki 2015
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu-og fræðslusviðs lagt fram, þar sem óskað er eftir við auka við fjárhagsáætlun félagsþjónustunnar vegna ársins 2015 að fjárhæð 11.900.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukabeiðnin verði samþykkt og komi til lækkunar á handbæru fé.4. Fundadagatal Grindavíkurbæjar: 2015-2016
Bæjarstjóri kynnti tillögu að fundadagatali Grindavíkurbæjar fyrir veturinn 2015-2016.
Bæjarráð samþykkir dagatalið fyrir sitt leyti og vísar því til umfjöllunar í nefndum.5. Beiðni um umsögn: umsókn Andreu Ævarsdóttur um leyfi til reksturs gististaðar í flokki I (heimagisting)
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina, en vísar að öðru leyti til umsagna byggingafulltrúa og slökkvistjóra.