Bæjarráð Grindavíkur - 1438. fundur
- 14.03.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1438
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Umræðan í fræðslunefnd var um að líkleg leið til árangurs væri að skapa sams konar umhverfi og er með Krílakoti, þar sem tveir dagforeldrar starfa saman utan eigin heimilis. Það hefur virkað í mörg ár. Þá reynir á að sveitarfélagið geti leigt viðkomandi húsnæði.
Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Sviðsstjóra er falið að kanna möguleika á að koma upp aðstöðu þar sem tveir dagforeldrar starfa saman utan eigin heimilis.2. Grunnskóli: Starfslok skólastjóra
Til að standa straum af auglýsinga- og ráðningarferli vegna uppsagnar skólastjóra Grunnskólans er óskað eftir aukafjárveitingu skv. tillögu fræðslunefndar.
Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst 2017.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 1.000.000 kr. til að standa straum af auglýsinga- og ráðningarferli.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 1.000.000 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.3. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Drög að samningi vegna smáhýsa við tjaldsvæðið lögð fram.
Drög að samningi við 240 ehf. vegna smáhýsa við tjaldsvæðið lögð fram.
Bæjarráð vísar samningsdrögunum til umhverfis- og ferðamálanefndar með þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum.4. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2017
Beiðni frá Knattspyrnudeild um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2017 og ósk um hækkun á greiðslu. Frístunda- og menningarnefnd samþykkti að framlengja samninginn og að greiðsla yrði hækkuð eftir ósk Knattspyrnudeildar úr 270.000 kr p.mán í 500.000 kr p.mán
Beiðni frá knattspyrnudeild UMFG um framlengingu samnings um umsjón mannvirkja lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að afla frekari gagna og rökstuðnings vegna hækkunarbeiðni samningsins.5. Styrkbeiðni: Bridsfélag Suðurnesja
Gunnlaugur Sævarsson fyrir hönd Bridsfélagsins Munins og Bridsfélags Suðurnesja óskar eftir styrk vegna kaupa á félagsheimili.
Gunnlaugur Sævarsson fyrir hönd Bridsfélagsins Munins og Bridsfélags Suðurnesja óskar eftir styrk vegna kaupa á félagsheimili.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.