Bæjarráð Grindavíkur - 1378. fundur
- 14.04.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1378
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Húsatóftavöllur: stuðningur við uppbyggingu golfvallar
tillaga að viljayfirlýsingu lögð fram
Bæjarstjóri kynnti tillögu að viljayfirlýsingu milli Grindavíkurbæjar, Bláa Lónsins og Golfklúbbs Grindavíkur um stuðning við uppbyggingu golfvallar að Húsatóftum.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að undirrita hana og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.2. Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Breytingar á þriggja ára áætlun, nýtt íþróttahús 450 milljónir. Eldri fjárhæðir felldar út.
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti drög að fjögurra ára fjárhagsáætlun 2015-2018 þar sem gert er ráð fyrir byggingu nýs íþróttahúss.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um kostnað við nauðsynlegan búnað fyrir nýtt íþróttahús.