Bæjarráð Grindavíkur - 1363. fundur
- 14.10.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1363
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Beiðni um nýtt stöðugildi hjá Tónlistarskóla Grindavíkur
Skólastjóri Tónlistarskóla Grindavíkur fer fram á nýtt stöðugildi við tónlistarskólann skólaárið 2014-1015.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu hvað varðar skólaárið 2014-2015. Bæjarráð felur fræðslunefnd að fara yfir skólanámsskrá og framtíðarsýn Tónlistarskóla Grindavíkur og leggja fram tillögu fyrir skólaárið 2015-2016.2. Búsetumál eldri borgara í Grindavík
Minnisblað kemur inn í fyrramálið.
Formaður bæjarráðs leggur til að bæjarstjóra verði falið að láta vinna kostnaðaráætlun um byggingu fjögurra til átta íbúða við Víðihlíð í samræmi við málefnasamning D- og G-lista. Byggt verði á þeim gögnum sem eru fyrirliggjandi frá nefnd um búsetumál eldri borgara.
Samþykkt samhljóða.3. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
Minnisblað kemur inn í fyrramálið.
Formaður hóf umræðu um breytingar á fyrirliggjandi tillögu um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja, í samræmi við málefnasamning D- og G-lista.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.4. Fundargerðir Ungmennaráðs
Eins og fram kemur í fundargerðum Ungmennaráðs óskar ráðið eftir því að fá greidd nefndarlaun fyrir störf sín, líkt og mörg önnur Ungmennaráð um land allt sem eru starfandi. Var slíkt sett inn í fjarhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs fyrir árið 2015 (gert ráð fyrir sex nefndarfundum allt árið). $line$Núverandi Ungmennaráð tók til starfa í upphafi þessa árs og hefur alls fundað sjö sinnum auk þess að sitja fundi frístunda- og menningarnefndar og hátíðarfund bæjarstjórnar. Í haust hefur ráðið fundað tvisvar og mun funda einu sinni í viðbót fram að áramótum og er með nokkur verkefni í undirbúningi. Ungmennaráðið óskar eftir því að fá greidd laun fyrir þessa þrjá fundi í haust í samræmi við aðrar fastanefndir bæjarins, samtals 417.227 kr. (með launatengdum gjöldum):$line$Nefndarlaun 15.676 pr. fund (6 manns)$line$Formaður 26.127 pr. fund$line$Launatengd gjöld 15,72%$line$Þrír fundir$line$Samtals: 417.227
Ungmennaráð óskar eftir því að fá greidd nefndarlaun fyrir störf sín, á sama hátt og aðrar nefndir Grindavíkurbæjar og mörg önnur ungmennaráð um land allt.
Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir því í fjárhagsáætlun ársins 2015 að ungmennaráð fái greitt fyrir störf sín.
Bæjarráð samþykkir jafnframt að ungmennaráð fái greitt fyrir þrjá fundi á árinu 2014 og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verið viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 420.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.5. Umsókn um styrk á grundvelli Reglna um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík.
hér má sjá reglurnar$line$http://www.grindavik.is/eldrihus
Guðmundur Grétar Karlsson sækir um styrk á grundvelli Reglna um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík, til endurbóta á Garðhúsi í Grindavík.
Með erindinu fylgir greinargerð eigenda, bréf og kostnaðaráætlun byggingarfræðings. Sótt er um styrk að upphæð 5.077.447 kr.
Í samræmi við 2. gr. reglnanna vísar bæjarráð umsókninni til umsagnar í frístunda- og menningarnefnd.6. Notkun á fjölnota innkaupapokum
Pétur Sigurgunnarsson hvetur Grindavíkurbæ til þátttöku í verkefninu Við stólum á þig, sem hefur það að markmiði að draga úr notkun einnota plastpoka og auka um leið fjármagn til stuðnings hreyfihömluðum.
Bæjarráð líst vel á framtakið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.7. Beiðni um stærra kaldavatnsinntak. Miðgarði 3
Verðkönnun hefur farið fram og verður niðurstaðan sett inn í fyrramálið.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 9. september að leggja nýja kaldavatnslögn frá brunni við gatnamót Hafnargötu og Ránargötu að Miðgarði 3 vegna breytinga á húsnæði.
Byggingafulltrúa var falið að framkvæma verðkönnun á annarsvegar jarðvinnu og hinsvegar lagnavinnu, sem er meðfylgjandi.
Bæjarráð felur byggingafulltrúa að ganga til samninga við lægstbjóðendur. Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykktur verið viðauki við eignfærða fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 16 milljónir kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.