Bæjarráð Grindavíkur - 1339. fundur
- 14.01.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1339
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Lovísa H Larsenvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Systkinaafsláttur milli dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólasels.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fóru yfir tillögu um afslátt á milli dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólasels og fyrirkomulagi til að halda utanum afslættina.
Afsláttur vegna annars barns verður 35%.
Afsláttur vegna þriðja barns verður 70%.
Afsláttur vegna fjórða barns verður 100%.
Afsláttur er veittur af lægsta gjaldi.
Lagt er til að koma upp rafrænni skráningu umsókna í gegnum Íbúagátt í One kerfinu. Það býður auk þess upp á fleiri möguleika í rafrænni stjórnsýslu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 upp á 1.400.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Áætlað er að nýtt kerfi taki gildi 1. mars næstkomandi.2. Ársuppgjör 2013, Grindavíkurbær og stofnanir
Skýrsla KPMG vegna skoðunar á innra eftirliti og fjárhagskerfi 2013 lögð fram.
Skýrsla KPMG vegna skoðunar á innra eftirliti og fjárhagskerfi 2013 lögð fram.
3. Endurvinnsla og umhverfisvitund í stofnunum Grindavíkurbæjar
Minnisblað lagt fram
Minnisblað bæjarstjóra um stöðu endurvinnslu og umhverfismála í stofnunum Grindavíkurbæjar lagt fram.
4. Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Minnisblað Íslandsbanka um stöðu kaupsamnings vegna kaupa Úrsus I slhf. á um þriðjungs hlut í HS Veitum hf. lagt fram.
5. Málefni bókasafns
Tillaga að nýju vaktafyrirkomulagi á sameiginlegu bókasafni. Í kjölfar þess að umsjónarmaður skólabókasafnsins sagði upp störfum lýsti umsjónarmaður almenningsbókasafnsins sig reiðubúna að fara í 100% starf og aðrir starfsmenn safnsins myndu hækka sig úr 45% í annars vegar 70% og hins vegar 80% til að manna þau 2,5 stöðugildi sem fylgja sameiginlegu safni. Ég ræddi þetta við Halldóru skólastjóra og hún var sátt við þessa lausn. Hún gat þess einnig að umsjónarmaður skólabókasafnsins væri tilbúin til þess að klára þessa vorönn ef á þyrfti að halda en uppsagnarfrestur tekur gildi 10. mars.
Tillaga að nýju vaktafyrirkomulagi á sameiginlegu bókasafni lögð fram.
6. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Höldum áfram þar sem fra´var horfi í október. Komin á kafla IV. Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.$line$Eins komin tillaga frá skipulags- og umhverfisnefnd sem þarf að taka afstöðu til
Frestað.
7. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 16. desember 2013
Lagt fram.
8. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Verkfundargerðir 19-22 og bygginganefndarfundur 6
Fundargerðir verkfunda nr. 19-22 lagðar fram, ásamt fundargerð bygginganefndar nr. 6.
Bæjarráð bókar að í 6. fundargerð bygginganefndar komi fram að hönnuður hafi gefið þær skýringar að við vinnslu teikninga hafi verið teiknað ofnakerfi í stað gólfhita fyrir mistök og taki hann fulla ábyrgð á því.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um hvort hægt sé að gera breytingar til að koma fyrir gólfhita á bókasafninu.