Bæjarráð Grindavíkur - 1319. fundur
- 13.05.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1319
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
1. Ársuppgjör Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2012
Lagt er til að starfsmönnum Grindavíkurbæjar verði umbunað vegna góðs árangurs í rekstri bæjarins á árinu 2013. Tillagan hljóðar upp á að starfsmönnum verði gefnar gönguleiðabækur.
Umræður um ársreikninginn milli fyrri og seinni umræðu.
2. Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf 24. maí 2013
Aðalfundur Landskerfis bókasafna verður haldinn 24. maí 2013.
Bæjarráð felur Margréti Gísladóttur forstöðumanni Bókasafns Grindavíkur að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.3. Aðalfundur Þekkingarseturs Suðurnesja 2013
Skýrsla stjórnar og ársreikningur lögð fram.
Skýrsla stjórnar og ársreikningur lögð fram.
4. Beiðni um umsögn vegna umsóknar Hótel Grindavík ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitngastað í flokki III að Hafnargötu 26
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina, en vísar að öðru leyti til umsagna byggingafulltrúa og slökkviliðs.
5. Beiðni um viðhald á vegi í Þórkötlustaðanesi og Hópsnesi
Byggingafulltrúi áætlar að kostnaður við þennan veg sé tæp milljón.
Bæjarráð samþykkir beiðnina og felur byggingafulltrúa jafnframt að fara yfir hvaða aðra malarvegi þarf að hefla og jafna.
6. Breyting á fulltrúa Grindavíkurbæjar í stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Páll Þorbjörnsson tekur sæti Páls Vals Björnssonar í stjórn Kölku. Páll Jóhann Pálsson verður áfram til vara.
Páll Þorbjörnsson tekur sæti Páls Vals Björnssonar í stjórn Kölku. Páll Jóhann Pálsson verður áfram til vara.
7. Frágangur á göngustíg við Kvikuna
Tilboð í stíginn tekinn fyrir. Frestur rennur út kl. 14 á morgun.
Tilboð í framkvæmdir við stíginn tekin fyrir.
Eftirfarandi tilboð bárust: eftir yfirferð % af áætlun
1. G.G. Sigurðsson ehf 4.789.700.- 79
2. Grindverk ehf 5.852.550.- 97
3. Kostnaðaráætlun 6.052.100.- 100
Að auki bætist við efniskostnaður vegna hellna og þrepaeininga að fjárhæð 1.200.000.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda og felur bæjarstjóra að leggja samninginn fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.8. Kaup á Leynisbraut 13c
Gagntilboð frá Páli Erlingssyni
Kauptilboð lagt fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í eignina Leynisbraut 13c íbúð 2. hæð til vinstri.
Bæjarstjóra falið að undirrita kaupsamning og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.9. Ósk um styrk vegna gerðar hjólreiðabókar um suðvesturhorn Íslands
Ómar Smári Kristinsson hjólreiðamaður og bókahöfundur óskar eftir 80.000 kr styrk til útgáfu hjólreiðabókar um suðvesturhorn Íslands.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.10. Skógræktarfélag Grindavíkur óskar eftir styrk til að gera náttúrulegt leiksvæði í Selskógi
Skógræktarfélag Grindavíkur óskar eftir styrk til að gera náttúrulegt útileiksvæði fyrir börn og foreldra í Selskógi við Þorbjörn.
Að mati bæjarráðs falla hugmyndir Skógræktarfélags Grindavíkur vel að markmiðum Grindavíkurbæjar um uppbyggingu útivistarsvæðisins við Þorbjörn.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 250.000 kr. sem fjármagnað verður af styrktarfé bæjarráðs.11. Sóknarnefnd Grindavíkurkirkju óskar eftir styrk til gerð göngustígar í kirkjugarðinum að Stað, sbr. lög nr. 36/1993
Slóð inn á lög um kirkjugarða http://www.althingi.is/lagas/nuna/1993036.html
Sóknarnefnd Grindavíkurkirkju óskar eftir styrk til gerð göngustígar í kirkjugarðinum að Stað, sbr. lög nr. 36/1993.
Samkvæmt 13. gr. laga um kirkjugarða ber Grindavíkurbæ að leggja til hæfilegan ofaníburð í gangstíga kirkjugarðs og greiða akstur hans.
Afgreiðslu frestað og bæjarstjóra falið að ræða málið við formann sóknarnefndar.12. Styrkur í Líknarsjóð Lionsklúbbs Grindavíkur
Tillaga um að nefndarlaun bæjarfulltrúa frá 429. fundi bæjarstjórnar Grindavíkur renni í líknarsjóð Lions
Formaður leggur til að nefndarlaun bæjarfulltrúa vegna 429. fundar bæjarstjórnar Grindavíkur renni í líknarsjóð Lions. Fjárhæð 113.720 kr.
Samþykkt samhljóða.13. Umsókn um styrk vegna Sjóarans síkáta.
Hverfisstjórar Sjóarans síkáta 2013 sækja um styrk til að standa straum af kostnaði vegna skreytinga hverfanna fyrir hátíðina og kaupa á búningum fyrir íþróttalið.
Bæjarráð samþykkir að styrkja hvert hverfi um 50.000 kr, eða samtals 200.000 kr. sem fjármagnað verður af styrktarfé bæjarráðs.