Bæjarráð Grindavíkur - 1474. fundur
- 13.03.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1474
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Þórir Sigfússonvaramaður
1. Hópið: Aðstaða milli Hóps og stúku
Forsvarsmenn knattspyrnudeildar eru boðaðir á fundinn.
Forsvarsmenn knattspyrnudeildar mættu til fundar við bæjarráð.
Einnig sat fundinn undir þessu máli sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og kynnti hann málið.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.2. Víðihlíð, viðbygging: Verksamningur og framvinda
Verktaki óskar eftir fresti, sjá lið nr. 16. Taka þarf afstöðu
Verktakinn óskar eftir mánaðar viðbótarfresti á skilum húsnæðisins þar sem hann gat ekki byrjað á þeim tíma sem gert var ráð fyrir í tilboði.
Bæjarráð samþykkir að veita frest á afhendingu hússins til 15. maí 2018.3. Grindavíkurbær: Heilsueflandi samfélag
Landlæknir kemur á fund bæjarráðs og þar verður undirritaður samningur um Heilsueflandi samfélag
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Birgir Jakobsson og Gígja Gunnarsdóttir frá embætti landlæknis mættu á fund bæjarráðs og kynntu áhrifaþætti heilsu og vellíðunar í Heilsueflandi samfélagi.
Samkomulag um þátttöku Grindavíkurbæjar í heilsueflandi samfélagi var undirritað.4. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs leggur fram minnisblað vegna hönnunar og framkvæmda við skólahúsnæði
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggja fram minnisblað vegna hönnunar og framkvæmda við skólahúsnæði.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar bæjarráðs.5. Leikskólamál: inntaka barna í ágúst 2018
Upplýsingar um fjölda barna í leikskólum næsta skólaár lagðar fram.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Upplýsingar um fjölda barna í leikskólum næsta skólaár lagðar fram.6. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja: Vatnsverndarmál
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja lýsir áhyggjum sínum af þeirri hættu sem vatnsbólum Suðurnesjamanna í Lágum stafar af bílaumferð á Grindavíkurvegi.
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja lýsir áhyggjum sínum af þeirri hættu sem vatnsbólum Suðurnesjamanna í Lágum stafar af bílaumferð á Grindavíkurvegi.
7. Lánasjóður sveitarfélaga: Framboð til stjórnar
Boðað er til aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga vegna ársins 2018 þann 23. mars nk. Allir sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að sækja fundinn.
Boðað er til aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga vegna ársins 2018 þann 23. mars nk. Allir sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að sækja fundinn.