Bæjarráð Grindavíkur - 1428. fundur
- 13.12.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1428
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Húsnæðissjálfseignarfélag: forganga um stofnun félags
Ólafur R. Sigurðsson og Sigurgeir Sigurgeirsson mæta á fundinn.
Ólafur Sigurðsson og Sigurgeir Sigurgeirsson mættu á fundinn og kynntu hugmyndir sínar um stofnun húsnæðssjálfseignarstofnunar.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og óskar eftir að sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs komi á næsta fund bæjarráðs.2. Búsetumál eldri borgara í Grindavík: uppbygging við Víðihlíð
Tilboð í verkið lögð fram.
Tvö tilboð bárust í verkið. Eftir yfirferð tilboða þá eru tilboðin þessi: HH Smíði 135.737.690 kr. og Grindin ehf. 150.502.531 kr. Kostnaðaráætlun var 129.944.477.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggur til að lægra tilboðinu verði tekið.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við HH Smíði.3. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar: Ráðning
Listi umsækjenda lagður fram.
Umsóknarfrestur rann út kl. 12 þann 12. desember. 22 aðilar sóttu um stöðuna. Bæjarráð vinnur málið áfram.
4. Fjármögnun Miðgarðs: Fjárlagafrumvarp 2017
Áskorun til fjárlaganefndar lögð fram. Í henni kemur fram að ekki er nægjanlegt fé í fjárlagafrumvarpi 2017 til þess að fara í endurbætur á Miðgarði eins og samgönguáætlun gerir ráð fyrir.
Verði þetta niðurstaðan lýsir bæjarráð yfir miklum áhyggjum af framgangi hafnarframkvæmda við Miðgarð sem byrjað var á fyrr á þessu ári.5. Icelandic Lava Show: Sýning í Kvikunni
Hugmyndir Icelandic Lava Show lagðar fram. Bæjarráð vísar erindinu til stjórnar Kvikunnar.
6. Leikskóli: Umsókn um námsvist utan lögheimilis
Frestað á síðasta fundi bæjarráðs
Bæjarráð samþykkir, í ljósi aðstæðna, að greiða vistunargjöld frá og með janúar 2017 og út maí 2017 af því gefnu að það losni ekki leikskólapláss í leikskólum Grindavíkurbæjar fyrir þann tíma.
7. Miðgarður uppbygging: Útboðsgögn
Tilboð lögð fram. Hafnarstjórn mun taka þetta fyrir í dag, mánudag. Gögnin koma inn á morgun ásamt bókun hafnarstjórnar.
Þrjú tilboð bárust í verkið og var tilboð Hagtaks hf. lægst og hljóðar upp á 283.625.000 kr sem er um 71,3% af kostnaðráætlun Siglingasviðs Vegagerðarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Hagtaks hf. og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að skrifa undir verksamning og leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar.8. Sjóvarnir: 2017
Engin fjárveiting mun verða á árunum 2016 og 2017 til sjóvarna í landi Grindavíkur þar sem sjóvarnir annarstaðar taka allt fjármagnið sem er í samgönguáætlun.
9. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Tvær umsóknir bárust í lóð undir smáhýsi við tjaldsvæðið. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthluta lóðinni til Fjórhjólaferða ehf. og Pepp ehf. Bæjarráð telur að hugmyndir þeirra um uppbyggingu, húsagerð, hvernig húsin falla að umhverfinu og fyrirliggjandi mannvirkjum sé í samræmi við þær væntingar sem hafðar hafa verið um svæðið.