Bæjarráð Grindavíkur - 1419. fundur
- 13.09.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1419
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Heimasíða: Endurnýjun heimasíðu
Send var út verðkönnunarfyrirspurn á fjölmargar vefstofur og tilboð liggja fyrir. Lagt er fram minnisblað eftir Siggeir F. Ævarsson þar sem bestu kostirnir í stöðunni eru reifaðir.
Siggeir Ævarsson upplýsingafulltrúi gerði grein fyrir minnisblaði um endurnýjun vefsíðunnar og verðkönnun í það verkefni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Formenn ehf.2. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Nefndin vill fá að vita hvort þau eigi að fjalla um mannvirkjagerð við Hópið, sbr. verkefni í fjárhagsáætlun.
Bygginganefnd mannvirkisins leggur fram fyrirspurn um hvort nefndin skuli fjalla um mannvirkjagerð við Hópið samhliða nýju íþróttahúsi.
Bæjarráð telur rétt að nefndin einbeiti sér að hönnun nýs íþróttahúss.3. Búsetumál eldri borgara í Grindavík: uppbygging við Víðihlíð
Unnið er að útboðsgögnum.
Hönnunargögn lögð fram til kynningar, en útboðsgögn eru væntanlega í lok september.
Bæjarráð fer fram á að útboðsgögn og lokahönnun verði kynnt bæjarráði fyrir auglýsingu.4. Fiskeldi í Mölvík: umsókn um lóð
Tálkni ehf. óskar eftir vilyrði fyrir lóð undir fiskeldisstöð í Mölvík á iðnaðarsvæði i9. Breyta þarf skipulagi miðað við þær hugmyndir sem liggja fyrir.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.5. Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Forsendur forstöðumanna vegna fjárhagsáætlunar 2017-2020
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti drög að forsendum fjárhagsáætlunar og frumáætlun launa fyrir árin 2017-2020.
6. Gatnagerð: Austurvegur 45-49
Lagt er fram minnisblað eftir verðkönnun.
Minnisblað byggingafulltrúa eftir verðkönnun í gatnagerð við Austurveg 45-49 lagt fram.
Þrjú tilboð bárust í verkið og voru tvö þeirra undir kostnaðaráætlun. Byggingafulltrúi leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Ellert Skúlason ehf., en tilboð hans var 94% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda.7. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga: Aðalfundarboð 2016
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga boða til aðalfundar föstudaginn 23. september næstkomandi.
8. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Bréf frá Fjórhjólaferðum lagt fram.
9. Uppsögn á starfi: sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
Uppsagnarbréf Þorsteins Gunnarssonar sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lagt fram, en hann hefur verið ráðinn sveitarstjórí Skútustaðahrepps.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa starfið laust til umsóknar.10. Vilborg Guðjónsdóttir: Vatnsþró við Grindavíkurveg
Bréf frá Vilborg Guðjónsdóttur vegna listaverks á vatnsþró við Grindavíkurveg lagt fram .
11. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga: Ársfundur 2016
Fundarboð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 21. september lagt fram.
12. Félagslegar íbúðir: Túngata
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs minnisblað varðandi nýtingu á heimilinu við Túngötu.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.13. Tvöföldun Reykjanesbrautar: áskorun til samgönguyfirvalda
Bæjarráð Grindavíkurbæjar skorar á Alþingi og samgönguyfirvöld að setja í forgang framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar, frá Fitjum í Reykjanesbæ að Rósaselstorgi í Sveitarfélaginu Garði. Umferðaröryggi á Reykjanesbraut er mikið hagsmunamál íbúa á Reykjanesi, sem og allra ferðamenn sem fara um Keflavíkurflugvöll.