Bæjarráð Grindavíkur - 1369. fundur
- 12.01.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1369
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Tillaga nefndarinnar lögð fram.
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs komu á fundinn og gerðu grein fyrir tillögu nefndar um uppbyggingu tengibyggingar og íþróttasalar fyrir bardagaíþróttir.
Formaður tekur fundarhlé kl. 17.55-18.00.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.2. Iðan: Úttekt á hljóðeinangrun
Bæjarstjóri gerði grein fyrir niðurstöðum úttektar Trivium ráðgjafar á hjóðhönnun og einangrun í Iðunni.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram í málinu.3. Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks - Framhaldsmál 2015
Bæjarstjóri gerði grein fyrir því að umsókn Grindavíkurbæjar um undanþágu frá ákvæðum um lágmarksíbúafjölda á þjónustusvæði um málefni fatlaðs fólks hefði verið synjað. Í svari ráðuneytisins kemur fram að til skoðunar er að gera breytingar á ákvæðinu í lögum. Endurmati á yfirfærslu verkefnsins frá ríki til sveitarfélaga hefur verið frestað til loka apríl og því lítur ráðuneytið svo á að samningar milli sveitarfélaga um þjónustusvæði séu enn í gildi.
4. Innheimta vanskilakrafna: Verðkönnun
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslu gerði grein fyrir niðurstöðum verðkönnunar meðal innheimtufyrirtækja.
Tilboð bárust frá Motus, Momentum og Inkasso. Í tilboði Inkasso felst veruleg lækkun á innheimtukostnaði sem fellur á skuldara.
Sviðsstjóra falið að hefja samningaviðræður við Inkasso og leggja tillögu að samkomulagi fyrir bæjarráð.5. Beiðni um styrk vegna barnastarfs Grindavíkurkirkju - framhaldsmál
Bókun frístunda- og menningarnefndar 7. janúar 2015:
Bæjarráð óskaði eftir umsögn frístunda- og menningarnefndar um beiðni um styrk vegna barnastarfs kirkjunnar. Nefndin leggur til að erindið verði samþykkt.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda-og menningarsviðs að gera tillögu að samstarfssamningi við Grindavíkurkirkju vegna barnastarfs kirkjunnar og leggja fyrir bæjarráð.6. Frístunda- og menningarnefnd: Uppfærð samþykkt
Einnig setningu hefur verið bætt inn í 2. grein: ?Stjórn UMFG og Ungmennaráði er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í nefndinni með málfrelsi og tillögurétt."$line$Þetta er í framhaldi af samþykkt frístunda- og menningarnefndar og bæjarráðs um áheyrnarfulltrúa fyrir Ungmennaráð. Það vantaði líka í núverandi samþykkt með áheyrnafulltrúa UMFG þótt hann hafi setið í nefninni undanfarin misser.
Tillaga að breytingu á samþykkt um frístunda-og menningarnefnd Grindavíkurbæjar lögð fram. Í tillögunni felst að stjórn UMFG og Ungmennaráði Grindavíkur er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í nefndinni með málfrelsi og tillögurétt.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar með áorðnum breytingum.7. Stígamót óska eftir rekstrarstyrk á árinu 2015
Stígamót óska eftir rekstrarstyrk á árinu 2015.
Bæjarráð samþykkir að veita Stígamótum 50.000 kr. rekstrarstyrk á árinu 2015. Fjármagnið færist á lið bæjarráðs.