Bæjarráð Grindavíkur - 1331. fundur
- 15.10.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1331
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Lóð undir gróðurhús
Drög að viljayfirlýsingu lögð fram
Drög að viljayfirlýsingu milli Grindavíkurbæjar og EsBro Investment group um lóð undir gróðurhús á iðnaðarreit I5 samkvæmt aðalskipulagi Grindavíkurbæjar.
Bæjarstjóra falið að vinna máið áfram.2. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2014-2017
íbúasamráð. Áttum eftir ða taka ákvörðun um hvora leiðina við ættum að fara varðandi val á kerfi.
Minnisblað upplýsinga- og þróunarfulltrúa um möguleika á að framkvæma rafræna könnun meðal íbúa Grindavíkurbæjar í tengslum við fjárhagsáætlun lagt fram.
Bæjarráð felur upplýsinga- og þróunarfulltrúa að vinna málið áfram á grundvelli leiðar 3 og koma með nákvæmari útfærslu á fund bæjarráðs.3. Sóknarnefnd Grindavíkurkirkju óskar eftir styrk til gerð göngustígar í kirkjugarðinum að Stað, sbr. lög nr. 36/1993
Sóknarnefnd Grindavíkurkirkju óskar eftir styrk til gerð göngustígar í kirkjugarðinum að Stað, sbr. lög nr. 36/1993.
Samkvæmt 13. gr. laga um kirkjugarða ber Grindavíkurbæ að leggja til hæfilegan ofaníburð í gangstíga kirkjugarðs og greiða akstur hans.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 1.386.148 kr. til stígagerðar á árinu 2014.4. Fundadagatal Grindavíkurbæjar 2013-2014
Vísa fundadagatalinu til umsagnar í nefndum.
Tillaga að fundadagatali Grindavíkurbæjar 2013-2014 lagt fram.
Bæjarráð vísar fundadagatalinu til upplýsingar í nefndum bæjarins.5. Samtökin Landsbyggðin lifi óskar eftir styrk
Samtökin landsbyggðin lifi óska eftir styrk fyrir starfsemi félagsins á árinu 2014.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.6. Gjaldskrár Grindavíkurbæjar
Minnisblað bæjarstjóra með samanburði á gjaldskrám Grindavíkurbæjar við önnur sveitarfélög lagt fram.
7. Staða á biðlistum í þjónustu Grindavíkurbæjar
Farið yfir stöðu biðlista í þjónustu bæjarins. Ræða í tengslum við fjárhagsáætlun 2014-2017
Minnisblað bæjarstjóra um stöðu á biðlistum í þjónustu Grindavíkurbæjar lagt fram.
8. Fundur með Vegagerðinni
Minnisblað frá fundi fulltrúa Grindavíkurbæjar með fulltrúum Vegagerðarinnar lagt fram.
9. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
framhald frá síðasta fundi.
Afgreiðslu frestað.