Bæjarráð Grindavíkur - 1456. fundur
- 12.09.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1456
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Páll Jóhann Pálssonvaramaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fibra ehf.: Óskað er eftir fundi með bæjarstjórn Grindavíkur
Fulltrúar félagsins mæta á fundinn og kynna framtíðaráform Fibra
Fulltrúar Fibra, Regin Grímsson, Haraldur Ingvarsson og Aðalsteinn Pálsson, mættu á fundinn og kynntu framtíðaráform félagsins.
2. Framtíðarsýn um aukna húsnæðisþörf leik- og grunnskóla: Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins óska eftir umræðu
Farið verður yfir stöðu málsins
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fór yfir stöðu málsins.
Bæjarráð samþykkir að halda áfram með málið á næsta fundi bæjarráðs en þá liggja fyrir nánari tölur um íbúaþróun.3. Fjárhagsáætlun 2018-2021: Grindavíkurbær og stofnanir
Lögð fram drög að bréfi til forstöðumanna vegna fjárhagsáætlunar 2018-2021.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti drög að forsendum fyrir fjárhagsáætlun 2018-2021.
4. Blái herinn: Strandhreinsun
Sótt er um 500.000 kr. styrk vegna hreinsunar í Mölvík og víðar
Blái herinn sækir um 500.000 kr. styrk vegna hreinsunar í Mölvík og víðar.
Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar bæjarráðs.5. Sandgerðisbær: Fundarboð
Fulltrúum Grindavíkurbæjar er boðið á fund með fulltrúum Schiphol Area Development Company
Fulltrúum Grindavíkurbæjar er boðið á fund með fulltrúum Schiphol Area Development Company sem fram fer fimmtudaginn 14. september kl. 09:30 í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.
6. Öldungaráð Suðurnesja: Aðalfundur
Borist hefur bréf frá Öldungaráðinu til Grindavíkurbæjar
Tilkynning um aðalfund Öldungaráðs Suðurnesja 2017 sem verður haldinn laugardaginn 23. september kl. 14:00 á Nesvöllum, Reykjanesbæ lögð fram.