Bæjarráð Grindavíkur - 1399. fundur
- 12.01.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1399
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Beiðni um stuðning á deild
Ósk um viðauka við fjárhagsáætlun 2016
Lögð fram ítarleg greinargerð um aukna þjónustuþörf á Leikskólanum Laut.
Óskað er eftir stuðningi á Leikskólanum Laut sem nemur 50% stöðu stuðningsfulltrúa og er gert ráð fyrir að kostnaðarauki verði 2.200.000 kr. á ári.
Bæjarráð samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2.200.000 kr. á launalið Leikskólans. Fjármögnun verði af handbæru fé.2. Bæjarskrifstofa: Bílakaup skv. fjárhagsáætlun 2016
Bíll fyrir töluvumsjónarmann.
Bæjarráð samþykkir kaup á Chevrolet Spark, PFR81, að fjárhæð 1.000.000 kr. og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að undirrita kaupsamning og afsal.
3. Innanríkisráðuneyti: Reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, 1212/2015
Nýsamþykk reglugerð lögð fram.
Reglugerðin er lögð fram.
4. Jöfnunarsjóður: Uppgjör
Tilkynning um breyting á uppgjöri af greiðslugrunni á rekstrargrunn.
Bréf frá Jöfnunarsjóði lagt fram.
Þar kemur fram að framlag vegna grunnskóla og framlag vegna málefna fatlaðs fólks verði gert upp á greiðslugrunni frá og með árinu 2015. Því munu framlög 13 mánaða bókast á árið 2015.5. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja
Knattspyrnudeild UMFG hefur gert skriflegar breytingatillögur við samninginn. Þeir hafa merkt það sjálfir með gulu í textanum.
Erindinu frestað til næsta bæjarráðsfundar.
6. Kvennaráðgjöfin: Ósk um styrk
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
7. Miðgarður: Hönnun
Hönnun og áfangaskipting Endurnýjunar Miðgarðs. Hafnarstjórn tekur þetta fyrir 11.01.2016 og nánari gögn koma fyrir fundinn.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leiti að allt stálið verði keypt í einu fyrir báða áfanga. Bæjarráð treystir því að ríkið muni greiða sinn kostnaðarhluta við framkvæmdina.
8. Motus: Tilboð í greiningu á greiðsluhraða krafna
Bæjarráð hafnar tilboðinu.