Bæjarráð Grindavíkur - 1381. fundur
- 12.05.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1381
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur L. Pálssonvaramaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Kristín María stýrði fundi í fjarveru formanns.
1. Áhorfendastúka: Galli í þakklæðningu
Þorsteinn og Sigmar gera grein fyrir málinu
Til fundarins voru mættir Sigmar Árnason, byggingafulltrúi, og Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda og menningarsviðs.
Þeir fóru yfir tjón sem varð á þaki áhorfendastúkunnar á Grindavíkurvelli í roki fyrr í vetur. Þegar þakið var skoðað í kjölfar tjónsins kom í ljós að það var ekki sett á samkvæmt verklýsingu og teikningum.
Samþykkt að gefa verktakanum frest til næsta bæjarráðsfundar að koma með tillögu að lausn.2. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2015-2018
Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leiti nýjan samstarfssamning Grindavíkurbæjar við aðalstjórn UMFG sem gildir til 31.12.2018 og leysir eldri samninga af hólmi. Búið er að sameina þrjá mismunandi samninga við UMFG í einn og bæta við afnotum af nýju íþróttamannvirki. Sviðsstjóri og fulltrúar frístunda- og menningarnefndar hafa fundað tvisvar með fulltrúum UMFG og viðræðurnar gengið vel og UMFG samþykkt samninginn fyrir sitt leiti. Nefndin fagnar þessum tímamótasamningi en í honum felst m.a. samstarf um:$line$1. Öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 -16 ára. $line$2. Öflugt afreksstarf fyrir 16 ára og eldri.$line$3. Styrkja starf aðalstjórnar UMFG m.a. með ráðningu íþróttafulltrúa í hlutastarf.$line$4. Efla félagsaðstöðu UMFG.$line$$line$Í Excelskjali er búið að taka saman fjárhæðir samningsins. Rétt er að taka fram fyrir árið 2015 er tekið mið af fjárhagsáætlun þannig að ekki kemur til fjárauka.
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, var mættur á fundinn og kynnti hann drög að samstarfssamningi við
UMFG.
Bæjarráð fagnar því að kominn sé einn heilstæður samningur við UMFG og leggur til við bæjarstjórn að samningurinn verði samþykktur.3. Frístundastarf Grindavíkurbæjar: Úttekt og stefnumótun
Sjá samantekt um ferlið í minnisblaði sviðsstjóra.$line$Umsagnir samanteknar í eitt skjal.
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, var mættur á fundinn og fór hann yfir samráðsferlið við gerð stefnumótunarinnar og kynnti skýrslu um stefnumótun frístundastarfs Grindavíkurbæjar.
Bæjaráð lýsir yfir mikilli ánægju með vel unna stefnumótun frístundastarfs og færir þeim aðilum sem komu að vinnunni kærar þakkir fyrir vel unnið starf.
Bæjarráð samþykkir stefnumótunina fyrir sitt leiti og vísar henni til bæjarstjórnar til samþykktar.4. Íþróttamiðstöð: Vegna nýbyggingar og viðhalds á búnaði í sundlaug
Íþróttamiðstöð óskar eftir viðauka við fjárhagsáæltun 2015 vegna búnaðarkaupa í nýju aðstöðuna að fjárhæð 3.500.000 kr.
Bæjarráð samþykkir viðauka að fjárhæð 3.500.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé og vísar honum til bæjarstjórnar til staðfestingar.5. Minja- og sögufélag GRV: Sýning í Garðhúsi
Bókun frístunda- og menningarnefndar:$line$"Minja- og sögufélagið óskar eftir því að taka að sér umsjón á Gestahús þar sem síðast var verslunin Blómakot, til að setja upp sýningu á gömlum munum úr Grindavík en félagið á um 1200 slíka. Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu í bæjarráði."$line$$line$Gera þarf skrifleg samning við Minja- og sögufélagið. Gert er ráð fyrir fjármunum í viðhald á húsinu í ár samkvæmt fjárhagsáætlun.
Minja- og sögufélag Grindavíkur óskar eftir að fá "Gestahús" á Mánagötu 6 til afnota vegna sýningar á gömlum munum.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að gera drög að samningi og leggja fyrir bæjarráð.6. Fjárhagsáætlun 2015: Yfirlit viðauka á árinu.
Lögð fram samantekt viðauka á árinu nr. 1-10, og áhrif þeirra á rekstur, efnahag og sjóðstreymi ársins 2015. Auk þess leiðréttingar á upphafsstöðu handbærs fjár, viðauki 11, upphafsstöðu skammtímaskulda, viðauki 12 og leiðrétting á áhrifum lífeyrisskuldbindingar á sjóðstreymi, viðauki 13.
Lagt fram.
7. Reiknuð innri leiga: Viðauki við fjárhagsáætlun 2015
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2015 að fjárhæð 147.467.778 kr. til gjalda á málaflokka aðalsjóðs. Fjármögnun er hækkun tekna eignasjóðs vegna innri leigu að fjárhæð 145.073.233 kr. og hækkun tekna Víðihlíðar vegna innri leigu að fjárhæð 2.394.545 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.8. Rekstraryfirlit janúar - mars 2015: Grindavíkurbær og stofnanir
Rekstaryfirlit lagt fram.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar þar sem ekki hafa borist umbeðin gögn og skýringar frá sviðsstjórum.9. Innheimta vanskilakrafna: Samningur við Inkasso
Drög að samningi við Inkasso.
Samningurinn lagður fram.
Gera þarf breytingu á 18. grein.
Breyttum samningi vísað til næsta bæjarráðsfundar.10. Jarðirnar Vík, Rafnshús og hluta Júlíusarbletts í Grindavík.
Grindavíkurbæ er boðið að kaupa lóðina áður en gengið verður að tilboði þriðja aðila. Mikilvægt er að eigandi landsins átti sig á því skipulagi sem er í gildi á svæðinu.
Bæjarráð getur ekki tekið afstöðu til kaupa á Júlíusarbletti að svo stöddu.
Óskað er eftir nákvæmari upplýsingum um stærð og staðsetningu landsins sem verið er að bjóða Grindavíkurbæ að gera tilboð í.11. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Fundargerð lögð fram til kynningar
Fundargerð bygginganefndar íþróttamannvirkja frá 21. apríl lögð fram.