Bæjarráð Grindavíkur - 1357. fundur
- 19.08.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1357
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Ásmundur Jónssonslökkviliðsstjóri
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Samþykkt um fráveitu
Athugasemdir umhverfisráðuneytis bárust eftir staðfestingu bæjarstjórnar. Tillagan lögð fram að nýju að teknu tilliti til athugasemda ráðuneytisins
Samþykkt um fráveitu Grindavíkur tekin fyrir að nýju. Samþykktin var afgreidd við síðari umræðu í bæjarstjórn 25. febrúar síðastliðinn, en fyrri umræða fór fram 17. desember 2013 og var tillagan í kjölfarið send umhverfisráðuneytinu til umsagnar. Engar athugasemdir bárust frá ráðuneytinu. Þann 29. júlí 2014, bárust hinsvegar athugasemdir frá ráðuneytinu. Bæjarráð átelur þann drátt sem hefur orðið á afgreiðslu ráðuneytisins á erindinu.
Fyrir bæjarráði liggur tillaga að breyttri samþykkt um fráveitu Grindavíkur, þar sem tekið er tillit til ábendinga og athugasemda ráðuneytisins.
Bæjarráð vísar tillögunni til umræðu í bæjarstjórn.2. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
fyrri umræðu er lokið.
Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar tekin til umræðu milli fyrri og seinni umræðu í bæjarstjórn. Fyrri umræða fór fram 25. mars síðastliðinn.
Bæjarráð vísar tillögunni til síðari umræðu í bæjarstjórn.3. Endurskoðun lögreglusamþykktar fyrir Grindavíkurbæ
Hefja vinnu við gerð lögreglusamþykktar fyrir Grindavíkurbæ.
Grindavíkurbær hefur ekki afgreitt sérstaka lögreglusamþykkt, heldur gildir Reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007 fyrir Grindavíkurbæ.
Lög um lögreglusamþykktir og reglugerðin lögð fram.
Bæjarráð vísar málinu til umræðu í bæjarstjórn.4. 678.fundur haldinn í stjórn S.S.S.
Fundargerðin er lögð fram.
5. Hafnarstjórn Grindavíkur - 427
Fundargerðin er lögð fram.
6. Félagsmálanefnd - 38
Fundargerðin er lögð fram.
7. Skipulags- og umhverfisnefnd - 42
Fundargerðin er lögð fram.
8. Reglur um greiðslu nefndalauna tímabundinna nefnda og starfshópa
Drög að reglum lagðar fram. Skoða þarf hvort bæjarfulltrúar falli undir skilgreiningu um starfsmenn bæajrins og fái því ekki laun í tímabundnum nefndum.
Drög að reglum um greiðslu nefndarlauna tímabundinna nefnda og starfshópa lagðar fram.
Bæjarráð leggur til ákveðnar breytingar á drögunum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.9. Fundargerð 450. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerðin er lögð fram.
10. Slökkvilið Grindavíkur óskar eftir körfubíl
Ásmundur Jónsson slökkvistjóri fylgir eftir minnisblaði með tillögu um að keyptur verði körfubíll til slökkvi- og björgunarstarfa.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum og frestar afgreiðslu.11. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Drög að tímaáætlun fyrir fjárhagshagsáætlunargerð 2015-2018
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að tímaáætlun fjárhagsáætlunar vinnu 2015-2018.
Stefnt er að fyrri umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun 27. október og síðari umræðu 24. nóvember.13. Starfsmannamál á Túngötu 15-17
Tillaga að starfslokum fjögurra starfsmanna á Túngötu 15-17 lögð fram.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs tók þátt í afgreiðslu málsins.
Afgreiðsla færð í trúnaðarbók.14. Breytingar á lögreglu og sýslumannsembættum
Bæjarráð Grindavíkur álykti um breytingarnar. $line$$line$Bæjarráð Grindavíkur þakkar þeim Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra og Þórólfi Halldórssyni sýslumanni fyrir samstarfið undanfarin ár og óskar þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi. Jafnframt óskar bæjarráð þeim Ólafi Helga Kjartanssyni lögreglustjóra og Ásdísi Ármannsdóttur sýslumanni til hamingju með nýjar stöður á Suðurnesjum og væntir góðs samstarfs. $line$$line$Bæjarráð Grindavíkurbæjar hvetur innanríkisráðherra til að kanna við þessi tímamót hvort ekki sé ástæða til að endurskoða staðsetningu opinberra embætta í umdæminu, með það fyrir augum að aðsetur sýslumanns eða lögreglustjóra verði í Grindavík.
Hjálmar Hallgrímsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Grindavíkur þakkar þeim Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra og Þórólfi Halldórssyni sýslumanni fyrir samstarfið undanfarin ár og óskar þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi. Jafnframt óskar bæjarráð þeim Ólafi Helga Kjartanssyni lögreglustjóra og Ásdísi Ármannsdóttur sýslumanni til hamingju með nýjar stöður á Suðurnesjum og væntir góðs samstarfs.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar hvetur innanríkisráðherra til að kanna við þessi tímamót hvort ekki sé ástæða til að endurskoða staðsetningu opinberra embætta í umdæminu, með það fyrir augum að aðsetur sýslumanns eða lögreglustjóra verði í Grindavík.15. Hafnarstjórn Grindavíkur - 428
Fundargerðin er lögð fram.