Bæjarráð Grindavíkur - 1313. fundur
- 11.03.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1313
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Vilhjálmur Árnasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Stefanía Sigríður Jónsdóttirembættismaður
1. Sala félagslegra íbúða í eigu Grindavíkurbæjar
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusvið gerði grein fyrir tilboði í auglýsta íbúð að Leynisbraut 13c.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að gera gagntilboð.2. Starfsmannamál - íþróttahús
Lögmaður starfsmannsins hafnaði boðinu. Taka þarf afstöðu til næstu skrefa. NMJ og KJR koma á fundinn.
Bryndís Gunnlaugsdóttir lýsir yfir vanhæfi sínu við afgreiðslu málsins og víkur af fundi.
Afgreiðsla færð í trúnaðarbók.3. Uppsögn á þjónustu vegna neyðarboða í Víðihlíð
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslusviðs og Stefanía Sigríður Jónsdóttir deildarstjóri Miðgarðs komu á fundinn og gerðu grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á þjónustu vegna neyðarboða í Víðihlíð. Fyrir fundinum liggur minnisblað þeirra um málið.
Í ljósi þess að núverandi neyðarboðunarkerfi er úrelt og nýtt fyrirkomulag hefur verið tekið upp felur bæjarráð deildarstjóra Miðgarðs að segja upp þjónustusamningi við starfsmannafélagið Víðigerði um viðbrögð vegna neyðarboða íbúða í Víðihlíð.4. Saman hópurinn óskar eftir fjárstuðning við forvarnarverkefni félagsins
Frístunda- og menningarnefnd hvetur til þess að Grindavíkurbær gerist aðili að SAMAN-hópnum með það að markmiði að efla tengslanet og aðgengi að fræðsluefni til forvarna.
Bæjarráð samþykkir að Grindavíkurbær gerist aðili að SAMAN-hópnum og að veita 50.000 styrk til verkefnisins.5. Beiðni um styrk á móti húsaleigu í íþróttahúsi vegna þorrablóts kvenfélagsins, körfuknattleiksdeildar og knattspyrnudeildar
Þorrablótsnefnd kvenfélagsins, körfuknattleiksdeildar og knattspyrnudeildar óskar eftir styrk á móti leigu á íþróttahúsinu að fjárhæð kr. 132.000.
Í ljósi þess að Grindavíkurbær stóð straum af kostnaði við borð, stóla og gólfefni fyrir þorrablótið er beiðninni hafnað.6. Samningur aðalstjórnar UMFG
Samningur á milli Grindavíkurbæjar og Aðalstjórnar UMFG um rekstur aðalstjórnar rann út um sl. áramót. Aðalstjórn hefur óskað eftir endurnýjun á samningum.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði framlengdur óbreyttur til 31. maí 2013 líkt og gert var við samninginn við UMFG um eflingu íþróttastarfs.
Bæjarráð samþykkir tillögu frístunda- og menningarnefndar og felur sviðsstjóra að leggja tillögu að samningi fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.7. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2013
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga fer fram 15. mars næstkomandi.
Bæjarráð felur forseta bæjarstjórnar að fara með atkvæði bæjarins á fundinum.8. Ávöxtun fjármuna Grindavíkurbæjar 2013
Bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fóru yfir tillögur Landsbanka og MP banka um breytingar á eignastýringu.
Bæjarráð veitir sviðsstjóra heimild til að lengja í meðallíftíma eignasafnsins úr þremur árum í fjögur til að auka vænta ávöxtun safnsins.9. Beiðni um breytingu á vegtengingu frá hafnarsvæði
Haustak hf. og Síldarvinnslan hf. óska eftir því að Grindavíkurbær beiti sér fyrir betri vegtengingu frá hafnarsvæðinu vestur að Nesvegi og endurbótum á ákveðnum köflum á Nesvegi í ljósi þess að flutningar milli Grindavíkurhafnar og Reykjaness fara sífellt vaxandi.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar skipulags- og umhverfisnefndar.10. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Niðurstöður forvals verða lagðar fram á fundinum. Óskað eftir heimild til útboðs.
Niðurstöður forvals lagðar fram.
Eftirtaldir aðilar skiluðu inn gögnum:
Grindin ehf.
Hafnargötu 9a, Grindavík
Hjalti Guðmundsson ehf.
Iðavellir 1, Reykjanesbær
ÍAV hf.
Höfðabakki 9, Reykjavík
H.H. smíði ehf.
Bakkalág 20, Grindavík
Það er mat ráðgjafa bygginganefndar að allir bjóðendur séu hæfir.
Bæjarráð felur bygginganefnd að bjóða þeim sem skiluðu gögnum að taka þátt í lokuðu útboði í verkið.11. Nauðungarsala á eigninni Heiðarhraun 13a, 209-1841
JÞ gerir grein fyrir málinu. Landsbankinn leysti íbúðina til sín.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir því að Landsbankinn hafi leyst eignina til sín.