Bæjarráð Grindavíkur - 1492. fundur
- 11.09.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1492
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gjaldskrá: Skólavist milli 16:00 og 17:00
Taka afstöðu til viðmiðs um fjölda barna. Umbeðin gögn frá síðasta bæjarráðsfundi liggja frammi.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Yfirlit yfir fjölda barna í vistun milli 16:00-17:00 árin 2013-2018 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að hætta að bjóða upp á vistun til 17:00 á leikskólanum Laut og það taki gildi frá og með 1. nóvember 2018.
Bæjarráð vekur athygli á því að áfram verða í boði viðbótar 15 mínútur þannig að vistun getur þá orðið til 16:15.2. Lengd viðvera Grunnskóla í Íþróttahúsinu
Framhald frá síðasta fundi.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að núverandi tímatafla í íþróttahúsi gildi til 9. nóvember 2018 en þá verður tímataflan endurskoðuð.3. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun
Áætlun um þörf á uppbyggingu leikskólahúsnæðis lögð fram. Fræðslunefnd leggur til að skipuð verði bygginganefnd.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að stofnuð verði bygginganefnd leikskóla. Lagt til að nefndin verði skipuð þremur aðilum, einum með þekkingu á leikskólamálum, einum með þekkingu á byggingamálum og einum bæjarfulltrúa. Nefndinni til fulltingis verði sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulagssviðs. Þá leggur nefndin áherslu á að aðgangur hagsmunaaðila að vinnunni verði skilgreindur strax í upphafi. Jafnframt er mikilvægt að störfum nefndarinnar verði markaður tímarammi.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu fræðslunefndar. Bæjarráð skipar í nefndina eftirtalda aðila:
Birgitta Káradóttir
Ingigerður Gísladóttir
Ámundínus Ö Öfjörð
Jafnframt samþykkir bæjarráð að greitt verði fyrir nefndarsetu.
Nefndin skal skila tillögum til bæjarráðs ekki síðar en 1. febrúar 2019.4. Grunnskóli: Ráðningarmál
Skólastjóri grunnskóla óskar eftir heimild til að greiða starfsfólki með Bed. próf en án kennsluréttinda s.k. TV-einingar gegn því að það sé í meistaranámi til kennsluréttinda.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skólastjóri grunnskóla óskar eftir heimild til að greiða starfsfólki með Bed. próf en án kennsluréttinda s.k. TV-einingar gegn því að það sé í meistaranámi til kennsluréttinda.
Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða.5. Upplýsinga- og skjalafulltrúi Grindavíkurbæjar
Framhald frá síðasta bæjarráðsfundi. Búið er að ræða við Írisi um að hún taki að sér skjalahluta starfsins og hún hefur samþykkt það og færi því í 100% starfshlutfall.
Bæjarráð samþykkir að Íris Gunnarsdóttir fari í 100% stöðu og taki að sér starf skjalafulltrúa Grindavíkurbæjar til viðbótar við störf í tæknideild.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að skilgreina það sem eftir stendur í starfi fráfarandi upplýsinga- og skjalafulltrúa.7. Blái herinn: Strandhreinsun
Þann 15. september nk. verður fjölþjóðlegt hreinsunarátak þar sem fólk er hvatt til að taka höndum saman um að þrífa jörðina sem teymi. Blái herinn og Landvernd standa saman að þessu verkefni fyrir hönd Íslands.
Þann 15. september nk. verður fjölþjóðlegt hreinsunarátak þar sem fólk er hvatt til að taka höndum saman um að þrífa jörðina sem teymi. Blái herinn og Landvernd standa saman að þessu verkefni fyrir hönd Íslands. Óskað er eftir að Grindvíkingar taki sig saman og gangi Hópsnesið og hreinsi.
Bæjarráð felur upplýsinga- og skjalafulltrúa að vinna málið áfram í samráði við Bláa herinn.