Bæjarráð Grindavíkur - 1441. fundur
- 11.04.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1441
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Staðarvör 4: Ósk um lokaúttekt.
Á fundi bæjarráðs 4. apríl var erindi frá eigendum Staðarvarar 4 lagt fram. Bæjarráð samþykkti að bjóða eigendum að Staðarvör 4 að koma á næsta fund bæjarráðs.
Eigendur Staðarvarar 4 höfðu óskað eftir að fá að koma á fund og samþykkti bæjarráð þá beiðni. Eigendurnir kynntu sín sjónarmið fyrir bæjarráði. Bæjarráð samþykkir að fresta málinu og bæjarstjóra falið að afla frekari gagna.
2. Kalka - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja: Kynning á mögulegri sameiningu SS og Sorpu
Framkvæmdastjóri Kölku heldur kynningu fyrir bæjarráði.
Á fundinn mætti Jón Norðfjörð framkvæmdastjóri Kölku sem og tveir starfsmenn frá Capacent og fór yfir gögn er varða mögulega sameiningu. Allir aðal- og varabæjarstjórnarfulltrúar höfðu fengið tölvupóst um þessa kynningu og áttu þess kost að mæta.
3. Beiðni um umsögn: Nýtingarleyfi í Svartsengi/Eldvörpum.
Kynning á umsögn til OS vegna leyfisveitinga.
Á fundinn mættu Ólafur Árnason og Ingi Ingason frá verkfræðistofunni Eflu og kynntu stöðu málsins. Allir aðal- og varabæjarstjórnarfulltrúar höfðu fengið tölvupóst um þessa kynningu og áttu þess kost að mæta. Bæjarráð samþykkir að fela Ólafi og Inga að móta tillögur að svarbréfi til OS í samræmi við umræður á fundinum og verði bréfið lagt fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.
4. Melhólsnáma: Vinnsluáætlun
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið. Bæjarráð felur sviðsstjóra að vinna að auglýsingu um umsýslu á Melhólsnámu.
5. Umsókn um lóð: Víðigerði fjölbýli
Málinu var frestað á fundi bæjarráðs 04.04.2017
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið. Gatnagerð er ekki hafin á svæðinu og lóðirnar því ekki lausar til úthlutunar sem stendur. Bæjarráð tekur jákvætt í erindi Austurbær-fasteignafélag og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
6. Kvikan: breytt nýting eða sala
Kynnt drög að auglýsingu
Bæjarstjóri fór yfir málið og lögð voru fram drög að auglýsingu eftir rekstraraðilum í Kvikuna. Bæjarráð samþykkir að auglýsa á grundvelli draganna.
7. Samstarfssamnngur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju 2017-2020
Endurnýjun samnings milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju. Samningur um æskulýðsstarf.$line$Frístunda- og menningarnefnd samþykkti endurnýjun á samningi við Grindavíkurkirkju. Samningsdrög voru lögð fyrir nefndina sem byggja á fyrri samningi, gildistíma og styrk p. ár. Samningsdrögin samþykkt og málinu vísað til bæjarráðs
Fyrir fundinum lágu drög að samningi um æskulýðsstarf milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju. Bæjarráð samþykkir samninginn.
8. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2017
Lagt fram minnisblað vegna fundar sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs með fulltrúum knattspyrnudeildar.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Björg Erlingsdóttir, hélt fund með fulltrúum knattspyrnudeildar og ritaði minnisblað sem lá fyrir fundinum. Bæjarráð samþykkir að fresta málinu.
9. Markaðsátak á Reykjanesi: Ferðamannaleiðin Blue Diamond
Kynning á Blue Diamond markaðaátaki sem felst í að útbúa sérstaka heimasíðu ásamt bókunarkerfi sem tengist samstarfsaðilum. Ákveða þarf hvort Grindavíkurbær tekur þátt.
Bæjarráð hafnar samningi um framleiðslu og verkstjórn á markaðsátaki við félagið GRP ehf.
10. Lionsklubbur Grindavíkur: Ósk um styrk
Lionsklúbbur Grindavíkur sækir um styrk til kaupa á hjálpartækjum sem notuð eru til björgunar á fólki úr ökutækjum vegna umferðarslysa.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að veita 1.000.000 kr. styrk til kaupa á hjálpartækjum til björgunarstarfa.
11. Tölvupóstur: Ábendingar vegna umgengni ferðamanna
Málið lagt fram til kynningar. Bæjarráð þakkar ábendinguna og vísar erindinu til umhverfis- og ferðamálanefndar.