Bæjarráð Grindavíkur - 1421. fundur
- 11.10.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1421
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Bréf frá aðalstjórn UMFG , dags. 20. september 2016, lagt fram. Aðalstjórn UMFG leggur áherslu á að framkvæmdum við nýtt íþróttahús verði flýtt eins og kostur er, þannig að það verði ekki að kosningamáli árið 2018.
2. Ósk um aukafjárveitingu: Vatnsveita Grindavíkur.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun Vatnsveitu Grindavíkur fyrir árið 2017 að fjárhæð 11.000.000 kr. Beiðnin er tilkomin vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Víðihlíð, en þar þarf að færa stofnlagnir raf, síma, hita, fráveitu og neysluvatns þar sem núverandi lagnir eru fyrir nýbyggingunni og hæðarsetning leyfir ekki að hafa þær í grunninum. Með framkvæmdinni verða lögnum komið fyrir út fyrir byggingarreit fyrir framtíðarstækkun Víðihlíðar og eiga því ekki að vera fyrir þótt Víðihlíð verði stækkuð enn meira í framtíðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og komi til lækkunar á handbæru fé ársins 2016.3. Ráðning: sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs
Umsóknir um starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lagðar fram og yfirfarnar. Átján umsóknir bárust.
4. Hestamannafélagið Brimfaxi: Uppbygging reiðvegakerfis
Bréf frá reiðveganefnd Brimfaxa dags. 20. september 2016 lagt fram. Í bréfinu er farið fram á að framlög til hestamennsku og hestaíþrótta verði með sambærilegu sniði næstu árin.
5. Hulda Smáradóttir: Þrengingar við Austurhóp
Bréf frá Huldu Smáradóttur, dags. 5. október 2016, lagt fram. Í bréfinu eru gerðar athugasemdir við lækkaðan hámarkshraða í Austurhópi og farið fram á að þrengingar verði fjarlægðar.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.6. Kosningar: Alþingiskosningar 2016
Málið var áður á dagskrá bæjarstjórnar 4. október síðastliðinn.
Kjörskrárstofn vegna alþingiskosninga 29. október lagður fram.
Með vísan til 33. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar samþykkir bæjarstjórn að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að semja kjörskrá fyrir alþingiskosningar þann 29. október næstkomandi. Jafnframt er sviðsstjóra veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna alþingiskosninga 29. október nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.7. S.S.S: Aðalfundur 2016
Dagskrá lögð fram
Dagskrá aðalfundar SSS lögð fram, en fundurinn fer fram 14. og 15. október næstkomandi. Allir bæjarfulltrúar, og bæjarstjóri, hafa seturétt á fundinum.
8. Tjaldsvæði: útboðsgögn
Framhald frá fundi 1417.
Umsögn umhverfis-og ferðamálanefndar um minnisblað um valkosti við framtíðarrekstur tjaldsvæðis lögð fram.
Nefndin leggur til að rekstur tjaldsvæðis verði áfram á hendi Grindavíkurbæjar. Einnig leggur nefndin til að gjaldskrá og rekstur tjaldsvæðis verði endurskoðuð. Nefndin ítrekar fyrri bókun um að skoðað verði hvort ekki sé ástæða til að í Grindavík starfi ferðamálafulltrúi í fullu starfi.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa svæði sunnan við þjónustumiðstöðina laust til úthlutunar fyrir smáhýsi.9. Úttekt á leikskólanum Laut. Eftirfylgni
Lagt fram bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti þar sem óskað er upplýsinga um stöðu úrbóta eftir úttekt. Jafnframt lögð fram samantekt á stöðu verkefna sem eftir voru á síðasta skólaári skv. síðasta bréfi til Mennta- og menningarmálaráðuneytis. Brugðist hefur verið við þeim ábendingum sem komu fram í úttektinni en fræðslunefnd hvetur bæjarstjórn til að bregðast við ábendingu um aðgengi fyrir fatlaða að leikskólanum Laut sem er ábótavant í dag.
Bæjarráð óskar eftir því við leikskólastjóra að fá tillögu að lausn um bætt aðgengi að leikskólanum Laut, sem hægt er að taka afstöðu til í fjárhagsáætlunarvinnu árin 2017-2020.10. Vistunargjöld barna: Afsláttarreglur
Lögð fram drög að reglum um systkinaafslátt og drög að reglum um niðurgreiðslu til einstæðra foreldra og ef báðir foreldrar eru í námi. Reglurnar eru settar til að formfesta þá framkvæmd sem iðkuð hefur verið undanfarin misseri. Fræðslunefnd hefur samþykkt fram komnar reglur fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að staðfesta þær.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reglurnar verði staðfestar.