Bæjarráð Grindavíkur - 1344. fundur
- 11.03.2014
- Fundargerð
- Kl. 18:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1344
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Vilhjálmur Árnasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Þorsteinn Gunnarssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Farið yfir drög að dagskrá afmælishátíðarinnar og rætt um heiðursviðurkenningar. Listi yfir boðsgesti
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kom á fundinn og fór yfir drög að dagskrá 40 ára afmælishátíðar Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir að veita heiðursviðurkenningar fyrir góð störf í þágu samfélagsins í Grindavík í tilefni 40 ára afmælis Grindavíkurbæjar. Afhending viðurkenninga fer fram á hátíðarfundi bæjarstjórnar 10. apríl næstkomandi.
Afmælisnefnd er falið að óska eftir tilnefningum og gera tillögu að heiðursviðurkenningum.2. Stefna Grindavíkurbæjar og viðbragðsáætlun í eineltismálum
Tillaga Vinnuverndarnefndar að stefnu Grindavíkurbæjar í eineltismálum lögð fram ásamt aðgerðaráætlun. Áætlunin verður hluti af endurskoðaðri starfsmannastefnu sveitarfe´lagsins
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti tillögu Vinnuverndarnefndar að stefnu Grindavíkurbæjar í eineltismálum ásamt aðgerðaráætlun. Áætlunin verður hluti af endurskoðaðri starfsmannastefnu sveitarfélagsins, sem er í vinnslu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur starfsmannastjóra að kynna hana fyrir starfsmönnum.3. Félag eldri borgara í Grindavík óskar eftir aðstöðu fyrir púttvöll innanhúss
Fulltrúar Félags eldri borgara Grindavík hafa óskað eftir aðstöðu fyrir púttvöll innanhúss.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að Félag eldri borgara fá aðstöðu í einni útistofunni við grunnskólann fyrir púttvöll og billiardborð.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur sviðsstjóra að ræða við FEB Grindavík um leigusamning um aðstöðuna.4. Endurnýjun á samningi um þjónustu við fatlað fólk
Stjórn SSS leggur til að fenginn verði hlutlaus aðili til að gera faglega úttekt á samstarfi sveitarfélaganna á Suðurnesjum um þjónustu við fatlað fólk, áður en endurskoðun á samningnum fer fram.
Bæjarráð samþykkir tillögu stjórnar SSS.5. Minnisblað frá fundi með Búmönnum 7. mars 2014
Minnisblað frá fundi Búmanna og bæjarstjóra þann 7. mars lagt fram.
Búmenn hyggjast boða til fundar með fulltrúum sveitarfélaganna á Suðurnesjum og þingmönnum kjördæmisins.6. Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2014 verður haldinn 3.apríl
Fundarboð á aðalfund Samtaka atvinnulífsins 2014 sem haldinn verður 3.apríl næstkomandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd Grindavíkurbæjar.