Bæjarráð Grindavíkur - 1306. fundur
- 11.12.2012
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1306
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Dagbjartur Willardssonvaramaður
- Páll Jóhann Pálssonvaramaður
1. Ungmennaþing 2012
Niðurstöður ungmennaþings lagðar fram
Niðurstöður ungmennaþings lagðar fram.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með afrakstur ungmennaþingsins og felur frístunda-og menningarnefnd að fylgja hugmyndunum eftir.2. Beiðni um gerð deiliskipulags fyrir skotsvæði
Ræða hvort Grindavíkurbær vill kosta gerð deiliskipulags fyrir skotsvæði
Skotdeild UMFG hefur óskað eftir því að Grindavíkurbær vinni deiliskipulag fyrir skotsvæði á svæði vestan Lágafells í samræmi við Aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030.
Bæjarráð tekur jákvætt í að vinna deiliskipulag fyrir svæðið með þeim fyrirvara að Skotdeild UMFG nái samkomulagi við landeiganda um afnot af landinu.3. Krafa um bætur vegna verðmætarýrnunar lóðar að Vörðusundi 5 í kjölfar skipulagsbreytinga
Krafa Flagghússins ehf um bætur vegna verðmætarýrnunar lóðar að Vörðusundi 5 í kjölfar skipulagsbreytinga lögð fram.
Bæjarstjóra ásamt sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna í málinu.4. Ósk um ársleyfi frá störfum sem varðstjóri í Slökkviliði Grindavíkur
Umsögn slökkvistjóra liggur fyrir.
Kristján Haraldsson varðstjóri í Slökkviliði Grindavíkur óskar eftir launalausu ársleyfi frá störfum frá áramótum.
Umsögn slökkvistjóra liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir umsóknina.5. Rekstrarfélag Grindavíkurbæjar ehf
Lokaársreikningur og tilkynning um slit á einkahlutafélagi RSK 17.52 lagt fram til undirritunar
Framhald frá fundi 1303 þar sem sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs lagði til að Rekstrarfélag Grindavíkurbæjar ehf. selji Eignasjóði Grindavíkurbæjar fasteignina Túngötu 15-17 og í kjölfarið verði rekstrarfélagið lagt niður.
Bæjarráð samþykkti tillöguna og fól sviðsstjóra að útbúa nauðsynleg gögn til að félagið verði lagt niður fyrir næstu áramót.
Bæjarráð fyrir hönd Grindavíkurbæjar, sem er eini hluthafi félagsins, skipar eftirfarandi í stjórn Rekstrarfélags Grindavíkurbæjar ehf.
Páll Jóhann Pálsson formaður
Dagbjartur Willardsson
Páll Valur Björnsson
Bæjarráð Grindavíkurbæjar, f.h. Grindavíkurbæjar sem er eini hluthafi í Rekstrarfélagi Grindavíkurbæjar ehf lýsir því yfir, að allar gjaldfallnar og ógjaldfallnar skuldir félagsins hafa verið greiddar og höfum við samþykkt að félaginu verði slitið skv. 83. gr. a laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög, með síðari breytingum, og í samræmi við 3. mgr. 83. gr. laga berum við beina, óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á skuldum félagsins, hvort sem þær eru gjaldfallnar, ógjaldfallnar eða umdeildar, frá þeim tíma er þessi yfirlýsing um slit félagsins var gefin.
Jafnframt lýsum við því yfir að allar kröfur Grindavíkurbæjar á hendur félaginu eru afskrifaðar og látnar niður falla, þar með talið hlutafé.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita yfirlýsingu um slit á einkahlutafélagi fyrir hönd hluthafa.6. Túngata 15-17, kaupsamningur og afsal
Kaupsamningur og afsal vegna Túngötu 15-17 lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita kaupsamning og afsal vegna sölunnar fyrir hönd Grindavíkurbæjar.
Formaður og einn stjórnarmaður undirrita fyrir hönd Rekstrarfélags Grindavíkurbæjar ehf.7. Beiðni um umsögn frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (hlutverk Jöfnunarsjóðs), 291. mál.
Frumvarpið er lagt fram.