Bæjarráð Grindavíkur - 1483. fundur
- 10.07.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 20:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1483
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Umsókn um byggingarleyfi: Stamphólsvegur 2
Erindi frá Þorláki Guðmundssyni. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Stamphólsveg 2. Erindinu fylgja teikningar unnar af verkfræðistofunni Beimur dagsettar 31.5.2018. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá Þorláki Guðmundssyni lagt fram. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Stamphólsveg 2. Erindinu fylgja teikningar unnar af verkfræðistofunni Beimur dagsettar 31.5.2018.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.2. Umsókn um byggingarleyfi : Norðurhóp 62
Erindi frá H.H. smíði. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi við Norðurhóp 62. Erindinu fylgja teikningar unnar af Rýma arkitektum dagsettar 27.11.17. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá H.H. smíði lagt fram. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi við Norðurhóp 62. Erindinu fylgja teikningar unnar af Rýma arkitektum dagsettar 27.11.17.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.3. Umsókn um lóð: Norðurhóp 64
Erindi frá H.H. smíði. Í erindinu er sótt um lóðina Norðurhóp 64.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um að umsækjandi standist reglur um lóðaúthlutannir.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá H.H. smíði lagt fram. Í erindinu er sótt um lóðina Norðurhóp 64.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um að umsækjandi standist reglur um lóðaúthlutanir.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.4. Umsókn um lóð: Víkurhóp 55
Erindi frá Verkbæ ehf. Í erindinu er sótt um lóðina Víkurhóp 55.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um að umsækjandi standist reglur um lóðaúthlutanir.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá Verkbæ ehf. lagt fram. Í erindinu er sótt um lóðina Víkurhóp 55.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um að umsækjandi standist reglur um lóðaúthlutanir.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.5. Fiskeldi á iðnaðarsvæði i5: breyting á deiliskipulagi
Erindi frá Matorku ehf. í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi fiskeldis á iðnaðarsvæði i5. Breytingin felur í sér að hámarkshæð fóðursílóa og súrefnistanka hækkar úr 8m í 10m. Einnig er óskað eftir því að skilmálar fyrir framleiðslugetu verði ekki skilgreindir í fjölda tonna heldur verður vísað í starfsleyfi hverju sinni. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá Matorku ehf. lagt fram. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi fiskeldis á iðnaðarsvæði i5. Breytingin felur í sér að hámarkshæð fóðursílóa og súrefnistanka hækkar úr 8m í 10m. Einnig er óskað eftir því að skilmálar fyrir framleiðslugetu verði ekki skilgreindir í fjölda tonna heldur verður vísað í starfsleyfi hverju sinni.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.6. Umsókn um stöðuleyfi: Miðgarður 2
Erindi frá Axel Ómarssyni f.h. Eyri ehf. í erindinu er óskað eftir stöðuleyfi fyrir gám við Miðgarð 2. Erindinu fylgir skissa með fyrirhugaðri staðsetningu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá Axel Ómarssyni f.h. Eyri ehf. lagt fram. Í erindinu er óskað eftir stöðuleyfi fyrir gám við Miðgarð 2. Erindinu fylgir skissa með fyrirhugaðri staðsetningu.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.7. Ísland ljóstengt: framkvæmd
Tekið fyrir minnisblað frá tæknideild þar sem óskað er eftir 11 mkr. viðauka við fjárhagsáæltun til þess að hefja framkvæmdir fyrir ljósleiðara í Þórköttlustaðahverfi og Nesveg
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað frá tæknideild þar sem óskað er eftir 11 mkr. viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til þess að hefja framkvæmdir við lagningu ljósleiðara í Þórkötlustaðahverfi og við Nesveg.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 11.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.8. Ósk um viðauka: tæknideild
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáæltun.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 3.000.000 kr. vegna beiðni um að byggingafulltrúi og lögfræðingur á tæknideild verði í 100% stöðum frá og með 1. október 2018.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fresta málinu.9. Mennta-og menningarmálaráð: Beiðni um rökstuðning vegna synjunar
Bæjarráði veitt innsýn í undirheima ráðuneytisins. Svarbréf lagt fram. Lagðar fram reglur til afgreiðslu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti dags. 29. maí sl.
Jafnframt er lögð fram tillaga að svarbréfi til ráðuneytisins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða svarbréfið.10. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun
Málefnasamningur: "Bæta við leikskólahúsnæði þannig að unnt sé að að tryggja börnum leikskólavist frá 12 mánaða aldri.". Hvert skal halda?
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málefnavinna hvað varðar framtíðarmálefni leik- og grunnskóla mun fara af stað á næstu vikum hjá fræðslunefnd.11. Sambandið: Ný og breytt ákvæði um notendaráð
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga lagt fram.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga lagt fram.12. Skólaþjónusta: Beiðni um aukið starfshlutfall talmeinafræðings
Lögð fram beiðni um aukningu starfshlutfalls talmeinafræðings auk greinargerðar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um aukningu starfshlutfalls talmeinafræðings auk greinargerðar. Kostnaðarauki vegna þessa er á árinu 1.000.000 kr. og er óskað eftir viðauka til að mæta þeim kostnaði.
Bæjarráð samþykkir samhljóða 20% aukningu á stöðugildi talmeinafræðings og samþykkir jafnframt viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 1.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.13. Starf frístundaheimila: Markmið og viðmið
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi nr. 485 (20.06.2018). Ekki var formlega tekin afstaða til tillögu að breyttri gjaldskrá samhliða. Lagt er til að gjaldflokkum verði fækkað en verð haldist óbreytt og óskað er staðfestingu bæjarráðs þar um.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er til að gjaldflokkum frístundaheimilis verði fækkað en verð haldist óbreytt og óskað er staðfestingu bæjarráðs þar um.
Bæjarráð samþykkir samhljóða fækkun gjaldflokka.14. Víðihlíð: Samningságreiningur
Kallað eftir efnislegri ákvörun bæjarráðs (stjórn íbúða Víðihlíðar) vegna ágreinings um geymslu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð hefur farið yfir gögn málsins og umrædd geymsla er ekki til almennra afnota fyrir íbúa í eldra rými heldur er hún geymsla fyrir stærri íbúð á efri hæð í viðbyggingu. Bæjarráð áréttar að eldri íbúðir hafa geymslur á 3. hæð í Víðihlíð.
Bæjarstjóra er falið að senda viðkomandi leigjanda bréf í samræmi við niðurstöðu fundarins.15. Víðihlíð, viðbygging: Rekstraráætlun og leiga
Rekstraráætlun og útreikningur á leigu lögð fram.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram rekstraráætlun vegna 6 nýrra íbúða í Víðihlíð ásamt útreikningi á íbúðaréttargreiðslum og mánaðarlegri leigu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða útreiknaðan íbúðarétt og útreiknaða leigu með þeirri breytingu að leiga stærri íbúðanna lækki um 11%.16. Grindavíkurvegur: framkvæmdir 2018/2019
Forhönnun vegna framkvæmda á Grindavíkurvegi er á lokastigi. Vegagerðin hugar að því að flýta framkvæmdum.
Lagður fram tölvupóstur frá Vegagerðinni þar sem fram kemur að byjað er á forhönnun til yfirferðar og umferðaröryggisrýni.
Lagt var upp með að verkhönnun og útboðsgögn liggi fyrir í október en reynt verður að flýta því.17. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Ósk um viðauka, sjá nánar í bókun hafnarstjórnar
Hagtak hefur boðist til að flytja efni sem ekki nýtist innan við þilið upp á land við í landfyllingu norðan við Eyjabakka fyrir um 900.000 kr. en þetta er ekki á fjárhagsáætlun og því óskar hafnarstjórn eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 900.000 kr. til verksins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 900.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.18. Samstarf við Sveitarfélagið Voga: Listi yfir hugsanleg samstarfsverkefni
Lagt fram minnisblað um samstarfsverkefni með sveitarfélaginu Vogum.
Lagt fram minnisblað um samstarfsverkefni með sveitarfélaginu Vogum.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.19. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum: Ráðning persónuverndarfulltrúa
Afgreiðsla Reykjanesbæjar vegna ráðningar sameiginlegs persónuverndarfulltrúa.
Lögð fram afgreiðsla Reykjanesbæjar vegna ráðningar sameiginlegs persónuverndarfulltrúa. Reykjanesbær mun ráða persónuverndarfulltrúa og öðrum sveitarfélögum og sameiginlega reknum fyrirtækjum og stofnunum sveitarfélaganna á Suðurnesjum býðst að kaupa þjónustu persónuverndarfulltrúans af Reykjanesbæ.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að ganga til viðræðna við Reykjanesbæ um kaup á þessari þjónustu.20. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja: Tilnefning fulltrúa í heilbrigðisnefnd
HES mælist til þess að sveitarfélögin á Suðurnesjum sammælist um fulltrúa.
Lagt fram bréf frá HES, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 26. júní 2018.
Þar kemur fram að í Heilbrigðisnefnd Suðurnesja skulu eiga sæti sex fulltrúar og hefur nefndin hingað til verið skipuð einum fulltrúa frá hverju sveitarfélagi ásamt fulltrúa frá samtökum atvinnurekenda.
Eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar eru fjögur sveitarfélög á Suðurnesjum og er því einum nefndarmanni óráðstafað. Til þess að heilbrigðisnefndin verði starfhæf verða sveitarfélögin að koma sér saman um hvaða sveitarfélag fái tvo fulltrúa í nefndinni.
Bæjarráð leggur til að málið fái umfjöllun hjá SSS.21. Golfklúbbur Grindavíkur: Leigusamningar
Golfklúbburinn leitar liðsinnis bæjaryfirvalda vegna leigugreiðslna og eldri skulda við leigusala.
Lögð fram beiðni frá Golfklúbbi Grindavíkur um liðsinni bæjaryfirvalda vegna leigugreiðslna og eldri skulda við leigusala.
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum fyrir næsta bæjarráðsfund.22. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Kjósa þarf varaformenn fastanefnda.
Kjósa þarf varaformenn í fastanefndir bæjarins.
Tillaga
Frístunda- og menningarnefnd
Varaformaður: Garðar Alfreðsson
Fræðslunefnd
Varaformaður: Sigurður Óli Þórleifsson
Félagsmálanefnd
Varaformaður: Valgerður Jennýjardóttir
Skipulagsnefnd
Varaformaður: Ólafur Már Guðmundsson
Umhverfis- og ferðamálanefnd
Varaformaður: Klara Bjarnadóttir
Hafnarstjórn
Varaformaður: Gunnar Harðarson
Bæjarráð samþykktir tillöguna samhljóða og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.23. Vinabærinn Piteå: 40 ára afmæli vinabæjarsamstarfs
Tilnefna þarf þrjá til fimm fulltrúa Grindavíkurbæjar í vinarbæjarheimsókn til Piteå 16. - 20. ágúst. Bæjirnir hafa verið vinarbæjir í 40 ár og vilja þeir fá okkur í heimsókn til að halda uppá tímamótin og styrkja samstarfið.
Tilnefna þarf þrjá til fimm fulltrúa Grindavíkurbæjar í vinarbæjarheimsókn til Piteå 16. - 20. ágúst. Bæirnir hafa verið vinarbæir í 40 ár og vilja þeir fá okkur í heimsókn til að halda uppá tímamótin og styrkja samstarfið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka saman lista.24. Ungmennaráð: Umferðaröryggi okkar mál
Ungmennaráð fékk úthlutað styrk frá Erasmus+, getur orðið mest 25.235 EUR eða um 3.1 milljón fyrir ráðstefnu Ungmennaráðs um ungt fólk og umferðaröryggi. Gert er ráð fyrir að ráðstefnan verði haldin seint í september eða byrjun október og undirbúningsvinna hefst strax í lok júlí.
Ungmennaráð fékk úthlutað styrk frá Erasmus sem getur orðið mest 25.235 EUR eða um 3.1 milljón fyrir ráðstefnu Ungmennaráðs um ungt fólk og umferðaröryggi. Gert er ráð fyrir að ráðstefnan verði haldin seint í september eða byrjun október og undirbúningsvinna hefst strax í lok júlí.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018, á deild 06014 Ungmennaráð sem skiptist þannig: Hækkun tekna um 3.100.000 kr. og hækkun gjalda um 3.100.000 kr.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni yfir frumkvæði ungmennaráðs.
Bæjarráð samþykkir viðaukann á deild 06014 Ungmennaráð.25. Knattspyrnudeild UMFG: Viðbygging við Hópið
Deildin óskar eftir því að vera með í undirbúningsferlinu þegar þar að kemur.
Beiðni frá knattspyrnudeild um að fá að vera með í undirbúningsferli vegna viðbyggingar við Hóp og stúku er lagt fram.
Bæjarráð tekur vel í erindið.26. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð 861. fundar til kynningar
Fundargerð 861. fundar, dags. 29. júní sl. lögð fram til kynningar.
27. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2018
Fundargerð 493. fundar til kynningar
Fundargerð 493. fundar, dags. 21. júní sl. lögð fram til kynningar.
28. Skipulagsnefnd - 42
Fundargerð 42. fundar, dags. 2. júlí sl., er lögð fram til kynningar.
29. Félagsmálanefnd - 92
Fundargerð 92. fundar, dags. 28. júní sl., er lögð fram til kynningar.
30. Hafnarstjórn Grindavíkur - 459
Fundargerð 459. fundar, dags. 4. júlí sl., er lögð fram til kynningar.