Bæjarráð Grindavíkur - 1431. fundur
- 10.01.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1431
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Húsnæðissjálfseignarfélag: forganga um stofnun félags
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Nökkvi Már Jónsson, mætir á fundinn.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn við umræður þessa máls.
Í fjárhagsáætlun 2017 er gert ráð fyrir að vinna húsnæðisáætlun Grindavíkurbæjar og felur bæjarráð bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að koma verkefninu af stað.2. Hádegismatur eldri borgara: Beiðni um niðurgreiðslur
Tillögur frá formanni bæjarráðs og forstöðumanni Miðgarðs lagðar fram.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn við umræður þessa máls.
Lagt fram minnisblað um málið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.3. Umferðaröryggi: ósk um hraðatakmarkandi aðgerðir á Gerðavöllum
Beiðni um viðauka á árið 2017 þar sem ekki náðist að fara í þessar fremkvæmdir á árinu 2016
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 1.700.000 kr. vegna hraðatakmarkandi aðgerða. Gert var ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun ársins 2016 en ekki vannst tími til framkvæmda á árinu 2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann að fjárhæð 1.700.000 kr. og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.4. Umhverfisstefna Grindavíkurbæjar: Hugmyndavinna
Umhverfis- og ferðamálanefnd hefur tekið saman drög að umhverfisstefnu fyrir bæjarfélagið. Hugmyndin er sú að hér sé komið nokkurs konar leiðarljós sem hægt yrði svo að nýta við smíði á stærri og heildstæðari stefnu eins og sum önnur sveitarfélög hafa sett sér. Nefndin óskar eftir umsögn bæjarráðs og hvort því hugnist að haldið verði áfram með þessa vinnu.
Umhverfis- og ferðamálanefnd hefur tekið saman drög að umhverfisstefnu fyrir bæjarfélagið. Hugmyndin er sú að hér sé komið nokkurs konar leiðarljós sem hægt yrði svo að nýta við smíði á stærri og heildstæðari stefnu eins og sum önnur sveitarfélög hafa sett sér. Nefndin óskar eftir umsögn bæjarráðs og hvort því hugnist að haldið verði áfram með þessa vinnu.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með tillögu nefndarinnar og samþykkir að haldið verði áfram með þessa vinnu.5. Umhverfisverðlaun: 2016
Umhverfis- og ferðamálanefnd hefur tekið saman drög að samþykkt/reglum fyrir umhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar í þeim tilgangi að ramma umgjörð verðlaunanna betur inn.
Drög að reglum um umhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar lögð fram.
Umhverfis- og ferðamálanefnd tók saman drögin í þeim tilgangi að ramma umgjörð verðlaunanna betur inn.
Bæjarráð vísar reglunum til bæjarstjórnar.6. Viðbygging við fjölnota íþróttahús og stúku
Bæjarráð samþykkir að hefja vinnu í samstarfi við knattspyrnudeildina um hönnun og uppbyggingu á salernis- og veitingaaðstöðu við Hópið.
Bæjarráð óskar eftir að fá formann og framkvæmdastjóra Knattspyrnudeildar UMFG á næsta fund bæjarráðs.7. Tónlistaskóli framkvæmdir: Ósk um viðauka
Beiðni um viðauka til að klára það sem þegar er byrjað á, sjá minnisblað frá Armanni
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 2.500.000 kr. til að klára þær framkvæmdir sem byrjað var á árið 2016 vegna galla í framkvæmd og hönnun tónlistarskóla. Um er að ræða frágang á fellivegg sem aðskilur 2 stofur í tónlistarskólanum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann að fjárhæð 2.500.000 kr. og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.