Bæjarráð Grindavíkur - 1375. fundur
- 10.03.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1375
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Þorsteinn og Ármann kynna stöðuna
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs og Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fóru yfir minnisblað með útfærslu og forgangsröðun framkvæmda á grundvelli tillögu H.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um rekstrarkostnað mannvirkisins miðað við þessa útfærslu.2. Norræna félagið í Grindavík: Samstarfssamningur
Norræna félagið í Grindavík var endurvakið í janúar. Félagið hefur óskað eftir samstarfssamningi við Grindavíkurbæ. Sviðstjóri gerði drög að slíkum samningi, sem byggir á sambærilegum samningi og Vogar gerði við Norræna félagið þar í bæ.$line$Lagður er til 150.000 kr. styrkur til félagsins á ári, næstu þrjú árin, sem er sama upphæð og t.d. Pílufélagið er að fá. Auk þess fái félagið aðgang fyrir viðburði í Kvikunni tvisvar á ári. Auk þess er kveðið á um aðgengi að félaginu fyrir bæjarbúa, að félagið haldi tvo viðburði á ári og kynni Norræna menningu í grunnskólanum.$line$Frístunda- og menningarnefnd samþykkti samninginn fyrir sitt leit.$line$$line$Tillaga sviðstjóra:$line$Að samningurinn verði samþykktur. Að samþykktur viðauki að fjárhæð 150.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé. $line$Samningurinn verði inni á fjárhagsáætlun 2016 og 2017.
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs kynnti drög að samstarfssamningi við Norræna félagið í Grindavík.
Bæjarráð samþykkir drög að samsstarfssamningi og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.3. Húsatóftavöllur: stuðningur við uppbyggingu golfvallar
Golfklúbbur Grindavíkur og Bláa Lónið hf. óska eftir aðkomu Grindavíkurbæjar að samstarfi um að gera Húsatóftavöll enn betri, með það að markmiði að hann verði í fremstu röð 18 holu golfvalla á Íslandi og að rekstur hans og uppbyging verði sjálfbær.
Bæjarstjóri kynnti drög að viljayfirlýsingu um samstarfið. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við Golfklúbb Grindavíkur og Bláa Lónið.4. Verktaka við íþróttavöll: Framlenging á samningi
Þar sem knattspyrnudeild UMFG verður áfram með félagsaðstöðu sína í Gula húsinu hefur hún óskað eftir áframhaldandi samningi um umsýslu á eignum Grindavíkurbæjar á íþróttasævðinu:$line$-Búningsaðstaða við Austuveg, tvö hús.$line$- Gámar vegna salernisaðstöðu við íþróttavöll og Hópið.$line$- Miðasöluskúr og boltaskýr.$line$$line$Auk þessa fær knattspyrnudeild UMFG "afnot af félagsaðstöðu við Austurveg, Gula húsið, þeim að kostnaðarlausu en teljast þó rekstraraðilar að húseiginni. Öll umsýsla á því húsi er utan þessa samnings en knattspyrnudeild UMFG skuldbindur sig til að ganga vel um eignina...", eins og segir í samningnum sem rann út í desember.$line$$line$Tillaga sviðsstjóra:$line$Að samningurinn sem var í gildi verði framlengdur til 30. sept, eða um það leiti sem knattspyrnutímabilinu lýkur. Bæjarstjórn hafði framlengt samninginn út mars. Þessi framlengingin gildi því frá apríl til september eða í sex mánuði, samtals 1.800.000 kr., sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir framlengingu á samningi um félagsaðstöðu í Gula húsinu og umsýslu með með tilteknum eignum Grindavíkurbæjar á íþróttasvæðinu.
Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn til 30. september og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 1.800.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.5. Skipulagsnefnd: Samþykkt
Bæjarráð vísar samþykktinni til umfjöllunar í skipulagsnefnd með áorðnum breytingum.
6. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Áframhaldandi umræða
Bæjarráð vísar samþykktinni til umfjöllunar í skipulagsnefnd með áorðnum breytingum.
7. Innkaupareglur Grindavíkurbæjar: endurskoðun fjárhæða
samkvæmt reglunum skal endurskoða fjárhæðir árlega. Taka þarf afstöðu til þess hvort það skuli gert eða halda fjárhæðum óbreyttum. Sjá á http://www.grindavik.is/innkaupareglur
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti Innkaupareglur Grindavíkurbæjar, en skv. 23. gr. reglnanna skal endurskoða fjárhæðir í reglunum ár hvert.
Bæjarráð leggur til að fjárhæðir vegna verklegra framkvæmda í 4. gr. hækki í 15 milljónir kr. og viðmiðunarfjárhæðir í 13. gr. hækki í 2 milljónir kr. Jafnframt leggur bæjarráð til að ákvæði 23. gr. verði breytt þannig að fjárhæðir skuli endurskoða í upphafi hvers kjörtímabils.8. Víðihlíð: Leigufjárhæð íbúða
Minnisblað bæjarstjóra lagt fram, með tillögu um hækkun á leigu íbúða í Víðihlíð þegar þær losna
Bæjarstjóri kynnti minnisblað um leigufjárhæðir íbúða í Víðihlíð.
9. Leiga á íþróttahúsi fyrir Kútmagakvöld: styrkbeiðni
Lionsklúbburinn mun senda okkur beiðni í kvöld um styrk á móti leigu
Lionsklúbbur Grindavíkur óskar eftir niðurfellingu á leigu húsnæðis og búnaðar vegna Kútmagakvölds þann 13. mars 2015.
Bæjarráð samþykkir að fella niður leigu á húsnæðinu og 50% afslátt af leigu á búnaði.10. Grindavíkurhöfn: Ósk um stuðning við gerð heimildarmyndar
Ljósmál ehf. óskar eftir styrk til gerðar heimildarmyndar um sögu vita á Íslandi.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.11. Beiðni um umsögn: frumvarp til laga um fólksflutninga á landi, 504. mál.
Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið lögð fram.
Bæjarráð tekur undir umsögn sambandsins og leggur áherslu á að almenningssamgöngur eru mikilvægur þáttur í samgöngumálum í landinu. Bæjarráð leggur áherslu á að ekki verði heimilt að taka hagkvæmar leiðir út úr leiðakerfi á viðkomandi svæði, standi kerfið ekki undir sér.