Bæjarráð Grindavíkur - 1372. fundur
- 10.02.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1372
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Uppfærð stefnumótun lögð fram. Stýrihópur á vegum frístunda- og menningarnefndar hefur nú lokið við að kynna drög að stefnumótun í íþróttamálum fyrir aðalstjórnum UMFG, GG og Brimfaxa. Jafnframt var óskað eftir formlegri umsögn aðalstjórnanna um íþróttastefnuna í síðasta lagi 16. desember sl. Ein umsögn barst, frá knattspyrnudeild UMFG. Stýrihópurinn hefur uppfært stefnumótunina með tilliti til ábendinga knattspyrnudeildar auk þess að breyta uppsetningunni. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir stefnumótunina og vísar til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs kynnti tillögu frístunda- og menningarnefndar að stefnumótun um íþróttamál. Stýrihópur á vegum frístunda- og menningarnefndar hefur kynnt drög að stefnumótun í íþróttamálum fyrir aðalstjórnum UMFG, GG og Brimfaxa. Ein umsögn barst, frá knattspyrnudeild UMFG. Stýrihópurinn hefur uppfært stefnumótunina með tilliti til ábendinga knattspyrnudeildar auk þess að breyta uppsetningu. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt stefnumótunina og vísar til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar með áorðnum breytingum og felur sviðsstjóra að kynna tillöguna fyrir aðilum stefnumótunarinnar.2. Knattspyrnudeild UMFG: Framhald umsýslu vegna seinkunar á íþróttamannvirki
Samkvæmt verktökusamningi knattspyrnudeildar UMFG og Grindavíkurbæjar frá því í febrúar 2014 átti bærinn að greiða 300.000 kr. á mánuði til knattspyrnudeildar fyrir umsýslu á Gula húsinu, búningsklefum, salernisaðstöðu við Hópið o.fl. þar til nýja íþróttamannvirkið yrði tilbúið. Búið var að greiða út síðasta ár en ekki er til fjárheimild fyrir árið 2015. Óskað er eftir fjárheimild fyrir janúar og febrúar, eða alls 600.000 kr. til að standa við samninginn.
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 900.000 kr. til að geta framlengt verktökusamningi knattspyrnudeildar UMFG og Grindavíkurbæjar um umsýslu á Gula húsinu, búningsklefum, salernisaðstöðu við Hópið o.fl. þar til nýja íþróttamannvirkið verður tilbúið.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og komi til lækkunar á handbæru fé.3. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2015-2018
Í samræmi við stefnumótunarvinnu um íþróttastefnu er eitt af markmiðum að samræma og einfalda samningagerð við íþróttahreyfinguna. Undanfarin ár hafa þrír aðskildir samningar verið í gildi við UMFG; um barna- og unglingastarf, um afreksstarf og um starfsemi aðalstjórnar UMFG. Við þetta bætist að þar sem UMFG flytur inn í nýtt íþróttamannvirki á næstunni og fær þar skrifstofu- og félagsaðstöðu ásamt Kvenfélagi Grindavíkur, þarf að gera samning um afnot af byggingunni. Nú hafa allir samningarnir verið settir saman í einn heildar samstarfssamning við UMFG og liggja fyrstu drög hans fyrir. FRÍ&MEN samþykkir þessa útfærslu og felur sviðsstjóra og formanni að kynna nánar fyrir bæjarráði.
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti tillögu frístunda- og menningarnefndar að samstarfssamningi milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG vegna áranna 2015-2018.
Bæjarráð felur frístunda- og menningarnefnd og sviðsstjóra að halda áfram viðræðum við aðalstjórn UMFG um samstarfssamninginn.4. Skógræktarfélag Íslands: Ósk um styrk í Yrkjusjóð
Skógræktarfélag Íslands óskar eftir styrk í Yrkjusjóð, en hlutverk sjóðsins er m.a. að úthluta trjáplöntum til grunnskóla fyrir nemendur að planta.
Bæjarráð samþykkir að styrkja sjóðinn um 40.000 kr. sem færist á lið bæjarráðs.5. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Framhald frá síðasta fundi.
Framhald frá síðasta fundi.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúa og slökkvistjóra lagt fram.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.