Bæjarráð Grindavíkur - 1334. fundur
- 09.11.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1334
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Skipulagsbreytingar vegna búsetuþjónustu fullorðinna
NMJ kemur á fundinn og kynnir tillögur um breytingar
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kynnti tillögur um breytingar á búsetu- og heimaþjónustu fyrir fullorðna.
Bæjarráð vísar tillögunum til kynningar hjá starfsmönnum í Miðgarði og á Túngötu, auk íbúa á Túngötu.
Að því loknu komi málið aftur til umræðu í bæjarráði.2. Niðurstöður viðhorfskannanna skólapúlsins skólaárið 2012 - 2013
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kynnti niðurstöður viðhorfskannanna Skólapúlsins skólaárið 2012 - 2013.
3. Almennur skólaakstur í Grunnskóla Grindavíkur
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kynnti tillögu fræðslunefndar að nýjum reglum um skólaakstur.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að kynna tillögurnar, með áorðnum breytingum fyrir notendum þjónustunnar áður en tillagan kemur til afgreiðslu bæjarstjórnar.4. Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars árið 2014, sbr. 20. gr. laga nr. 4/1995
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars árið 2014 verði 13,99%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.5. Álagningarreglur fasteignagjalda 2014
Lagt er til að álagningarreglur fasteignagjalda verði óbreyttar frá árinu 2013, að því undanskildu að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði hækki í 0,36% til að vega upp lækkun fasteignamats.
2014
1. Fasteignaskattur
1.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,36% af fasteignamati húss og lóðar
1.2. Opinberar byggingar (b-liður) 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
1.3. Annað húsnæði (c-liður) 1,65% af fasteignamati húss og lóðar
2. Holræsagjald
2.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,11% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Opinberar byggingar (b-liður) 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Annað húsnæði (c-liður) 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3. Vatnsgjald
3.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,11% af fasteignamati húss og lóðar
3.2. Opinberar byggingar (b-liður) 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.3. Annað húsnæði (c-liður) 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.4. Aukavatnsgjald 16 kr/m3 vatns
4. Sorphreinsunargjald/Tunnuleiga
4.1. Íbúðarhúsnæði 14.225 kr. tunnu pr. ár
5. Sorpeyðingargjald
5.1. Íbúðarhúsnæði 23.210 kr. tunnu pr. ár
6. Lóðarleiga
6.1. Íbúðahúsalóðir 1,20% af fasteignamati lóðar
6.2. Lóðir v. opinberra bygginga 2,00% af fasteignamati lóðar
6.3. Lóðir v. annað húsnæði 1,60% af fasteignamati lóðar
7. Rotþróargjald
7.1. Rotþróargjald 10.000 kr. pr. rotþró pr. ár
8. Fjöldi gjalddaga 10
1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8, 1/9, 1/10 og 1/11 2014
Heilarfjárhæð á einn gjalddaga 20.000
Bæjarráð leggur til bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.6. Tekjuviðmið 2014 vegna afsláttar elli- og örokulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi.
Lagt er til að tekjuviðmið vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi hækki frá árinu 2013 og verði eftirfarandi:
Tekjuviðmið vegna 2014 (tekjur ársins 2013)
Einstaklingar Hjón Niðurfelling
Frá Til Frá Til
0 - 2.800.000 0 - 4.500.000 100%
2.800.001 - 3.100.000 4.500.001 - 5.000.000 75%
3.100.001 - 3.400.000 5.000.001 - 5.500.000 50%
3.400.001 - 3.700.000 5.500.001 - 6.000.000 25%
3.700.001 - 6.000.001 - 0%
Bæjarráð leggur til bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.7. Gjaldskrár Grindavíkurbæjar
Tillaga að breytingum á þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar á árinu 2014 lögð fram.
Tillaga að breytingum á þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar á árinu 2014 lögð fram.
Gildistaka 1. janúar 2014, nema annað sé tekið fram 2014
Leikskólagjöld
Tímagjald 3.140
Tímagjald, einstæðir foreldrar og námsmenn 2.370
Viðbótar 15 mín, fyrir 1.050
Viðbótar 15 mín, eftir 1.050
9. tíminn, almennt gjald 7.860
9. tíminn, einstæðir foreldrar 7.860
Afsláttarreglur:
Systkinaafsl. 2. barn 50%
Systkinaafsl. 3. barn og fleiri 100%
Afsláttur af tímagjaldi greitt fyrir mat og hressingu
Séu báðir foreldrar í fullu námi greiða þau forgangsgjald
Hressing (morgun/síðdegi) 2.410
Hádegismatur 4.570
Tónlistarskólagjöld 1.jan.14 1.ágú.14
Fullt hljóðfæranám 57.260 65.850
Hálft hljóðfæranám 34.480 39.650
Fullt söngnám 66.600 76.590
Hálft söngnám 43.830 50.400
Fullt aukahljóðfæri 38.210 43.940
Hálft aukahljóðfæri 22.610 26.000
Blásarasveit 15.720 18.080
Hljóðfæraleiga 5.350 6.150
Hljóðfæranámskeið, hópur 15.190 17.470
Söngnámskeið, hópur 44.410 51.070
Systkinaafsláttur 2. barn 50%
systkinaafsláttur 3. barn 75%
Sundlaug
Stakt gjald barna 260
Stakt gjald fullorðinna 470
10 miða kort, börn 2.100
10 miða kort, fullorðnir 3.300
30 miða kort börn
30 miða kort fullorðnir 8.200
3 mánaða kort fullorðnir
Árskort, fullorðnir 22.000
Árskort hjóna
Árskort fjölskyldu 41.500
Árskort barna 6 - 18 ára 2.100
Börn 0- 5 frítt 0
Aldraðir og öryrkjar 260
Fríkort send út til þeirra sem hafa lögheimili í Grindavík
Leiga á handklæðum 440
Leiga á sundfatnaði 440
Magnkaup árskorta
20-99 árskort (pr. stk árskorts) 16.800
100-199 árskort (pr. stk árskorts) 12.600
200 eða fleiri árskort (pr. stk. árskorts) 8.925
Leikjanámskeið
Tveggja vikna námskeið 1/2 dagur 6.800
Tveggja vikna námskeið allan daginn 10.500
Leiklistarnámskeið, 1/2 dagur 7.000
Pössun milli 8-9 og 16-17, kr. barn 250
Systkinaafsláttur 2. barn 50%
systkinaafsláttur 3. barn 75%
Bókasafn
Árgjald, 16-67 ára (ca 150 - 200 aðilar) 1.000
Leiga á DVD 300
Leiga á snældu
Leiga á tungumálanámsk. 300
Leiga á margmiðlunarefni 300
Sekt á bækur, kr. dag 20
Sekt á CD 20
Sekt á DVD og margmiðlunarefni pr. dag. 50
Þak á sektir 3.000
Internet, fyrstu 15. mín 15
Internet 30 mín 250
Internet klst 400
Börn, öryrkjar, ellilífeyrisþegar fá kort sér að kostnaðarlausu.
Frátekt á bók kr/stk 50
Vegna skemmda eða glataðra gagna
Bækur/hljóðbækur 100
Tungumálanámskeið 3.000
Mynddiskur 3.000
Tímarit 500
Nýtt eða nýlegt efni kaupverð
Grunnskóli
Heimanámsaðstoð kr/klst
Skólamáltíðir, hluti foreldra af innkaupsverði 65%
Samkomusalur, hálfur dagur 15.000
Samkomusalur, heill dagur 25.000
Skólastofur, hálfur dagur 7.000
Skólastofur, heill dagur 10.000
Gisting, pr mann 1.000
Skólasel
Gjaldflokkur
Flokkur 1 6.310 1.ágú
Flokkur 1,1 7.560 1.ágú
Flokkur 2 11.360 1.ágú
Flokkur 2,1 11.360 1.ágú
Flokkur 2,2 11.360 1.ágú
Flokkur 2,3 13.850 1.ágú
Flokkur 3 16.630 1.ágú
Flokkur 4 24.950 1.ágú
Síðdegis 180 1.ágú
Hægt er að kaupa 15 mínútur aukalega á tímabilinu frá 14:00 - 16:00 . 100 1.ágú
Tíminn frá kl. 16:00 - 17:00 er á hærra gjaldi. 420 1.ágú
Tjaldsvæði
Gistinótt pr einstakling 1.200
Gistináttagjald pr. gistieining 100
Fjórða hver nótt frí
Yngri en 14 ára frítt
Rafmagn á sólarhring 900
Þvottavél 500
Þurrkari 500
Útleiga á þjónustuhúsi
Hálfur dagur 15.000
Heill dagur 25.000
Hljóðkerfi sólarhringur 30.000
Kvennó, félagsmiðstöðin Þruman
Leigugjald húsnæðis pr klst 5.250
Íþróttamannvirki
Verð pr klst
Hópið 12.100
Íþróttahús: 0
Stóri salur, allur 5.800
Stóri salur, hálfur 3.100
50% álag vegna leikja 3.000
Litli salur 2.800
Skemmtanir 11.400
Við bætast stefgjöld sem miðast við gestafjölda
Vinnuskóli
Sláttur fyrir aldraða og öryrkja, garður að 100m2 pr. slátt 2.000
Sláttur fyrir aldraða og öryrkja, garður að 100m2 - 200m2 pr. slátt 3.000
Slökkvilið
Tækifærisleyfi 9.430
Tækifærisleyfi með skoðun 28.280
veitingaleyfi 9.430
Veitingaleyfi með skoðun 28.280
Brennuleyfi 9.430
Brennuleyfi með skoðun 28.280
Flugeldasala 9.430
Flugeldasala með skoðun 28.280
Gistiheimili 9.430
Gistiheimili með skoðun 28.280
Hótel 9.430
Hótel með skoðun 28.280
Eldvarnareftirlit 9.430
Vinna pr. klst 9.430
Slökkvibíll 24-131 27.870
Slökkvibíll 24-132 27.870
Slökkvibíll 24-151 tankur m / dælu 27.870
Slökkvibíll 24-171 tækjabíll 9.650
Körfubíll 34.060
Lausar dælur bensín 4.430
Lausar dælur rafmagn 4.430
Vatnsuga 8.520
Rafstöð 8.520
Hleðsla á lofthylkjum fyrir kafara 1.290
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.8. Beiðni um aukningu stöðugilda á bókasafni Grindavíkur.
Forstöðukona bókasafns Grindavíkur óskar eftir auknu stöðugildi á bókasafnið í tengslum við opnun nýs sameiginlegs almennings- og skólabókasafns.
Bæjarráð telur rétt að hefja rekstur í nýrri aðstöðu með sama stöðugildafjölda og meta að loknu einu starfsári hvort þörf er fyrir aukningu. Bæjarráð getur því ekki orðið við erindinu.9. Ósk um viðbótarstöðugildi í tónlistarskólann
Skólastjóri Tónlistarskóla Grindavíkur óskar eftir því að stöðugildi sem var fellt út árið 2011 verði endurvakið og óskar auk þess heimildar til aukinnar stjórnunar í tengslum við breytingar á skipulagi náms.
Bæjarráð telur rétt að hefja rekstur í nýrri aðstöðu og samkvæmt nýju skipulagi með sama stöðugildafjölda og meta að loknu einu starfsári hvort þörf er fyrir aukningu. Bæjarráð getur því ekki orðið við erindinu.10. Ræsting á Víkurbraut 62, bókasafn, bæjarskrifstofa og skólaskrifstofa
Tillaga um að breyta ræstingu úr tímamældri ákvæðisvinnu í venjulegt dagvinnustarf.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggur til að ræstingu verði breytt úr tímamældri ákvæðisvinnu í venjulegt dagvinnustarf, þannig að starfsmaður sem sinnir ræstingu geti jafnframt sinnt tilfallandi störfum á dagvinnutíma. Jafnframt verði opnunartími bæjarskrifstofu aukinn tvo daga í viku.
Áætlaður kostnaðarauki vegna breytingarinnar er um 676.000 kr á ári.
Bæjarráð samþykkir erindið.11. Kerfisstjóri Grindavíkurbæjar. Ráðning
Tillaga um að falla frá ráðningu í starf kerfisstjóra
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerir bæjarráði grein fyrir því að hann hyggist falla frá ráðningu í starf kerfisstjóra og tilkynna umsækjendum um starfið þá ákvörðun sína.
12. Útvistun umsjónar með tölvukerfum
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggur til að kerfisstjórnun tölvukerfa Grindavíkurbæjar verði útvistað með þjónustusamningi og að ráðinn verði starfsmaður í hlutastarf til að sinna viðveru í stofnunum bæjarins, vinna við útstöðvar og önnur verkefni.
Kostnaður við þessa útfærslu er áætlaður sambærilegur og að reka eigin tölvudeild með kerfisstjórn, en ávinningur kemur fram í auknu rekstraröryggi.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.13. Landsmót Skólalúðrasveita helgina 2.-4. maí 2014
Frestað.
14. Göngu- og hjólabærinn Grindavík. Tillaga til umfjöllunar
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjaráð að framsettum tillögum verði hrint í framkvæmd.
Frestað.
15. Menningarstefna Grindavíkurbæjar
Frístunda- og menningarnefnd vísar drögum að menningarstefnu sveitarfélagsins til umfjöllunar bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Frestað.
16. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
fundargerð bygginganefndar lögð fram, ásamt verkfundargerðum nr. 12, 14,15,16 og 17
Frestað.
17. Samningur vegna unglingastarfs Hafbjargar
Frístunda- og menningarnefnd gerir ekki athugasemdir við samninginn og leggur til við bæjarráð að hann verði samþykktur
Frestað.
18. Samstarf á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju um æskulýðsstarf.
Frístunda- og menningarnefnd gerir ekki athugasemdir við samninginn og leggur til við bæjarráð að hann verði samþykktur.
Frestað.
19. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Í ljósi þess er fram kemur í greinargerðinni leggur frístunda- og menningarnefnd til við bæjarráð að fyrir árið 2014 verði UMFG veittur styrkur að upphæð 10.000.000 kr. sem skiptist þannig;$line$- 2.000.000 kr. til að koma til móts við útgjöld deilda vegna 16 - 18 ára starfs. Aðalstjórn UMFG kemur sér saman um skiptingu fjármagns á milli deilda.$line$- 2.000.000 kr. til að koma á samræmdu bókhaldi á milli deilda.$line$- 6.000.000 kr. til að koma til móts við afreksstarf. Aðalstjórn UMFG mótar reglur um skiptingu fjármagns á milli deilda.
Frístunda- og menningarnefnd hefur haft til skoðunar þrjú erindi frá bæjarráði er lúta að íþróttastarfi í Grindavík.
Að skoða hvernig íþróttaiðkun 16-18 ára ungmenna er háttað í Grindavík. Sérstaklega skal skoða hvernig þetta starf er fjármagnað og hvort mikið brottfall sé eftir að stuðningi bæjarins við íþróttastarfið er hætt.
Að skoða hvort tilefni sé til að vera með sérstaka frístundastyrki fyrir þau börn og ungmenni sem stunda eingöngu skipulagðar frístundir utan Grindavíkur og njóta þar af leiðandi ekki góðs af niðurgreiðslu Grindavíkurbæjar til íþrótta- og tónlistarnáms í Grindavík.
Að undirbúa tillögu um stuðning Grindavíkurbæjar við innra starf og afreksstarf UMFG, þannig að tillaga liggi fyrir bæjarstjórnarfundi í nóvember. Í því ljósi verði litið til umræðu og niðurstöðu frá stefnumótunarfundi um íþróttamál sem haldinn var 8. apríl 2013.
Frístunda- og menningarnefnd hefur fjallað um greinargerð Helenu Bj. Bjarnadóttur formanns nefndarinnar og Kristins J. Reimarssonar sviðsstjóra vegna málsins.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að fyrir árið 2014 verði UMFG veittur styrkur að upphæð 10.000.000 kr. sem skiptist þannig;
- 2.000.000 kr. til að koma til móts við útgjöld deilda vegna 16 - 18 ára starfs. Aðalstjórn UMFG kemur sér saman um skiptingu fjármagns á milli deilda.
- 2.000.000 kr. til að koma á samræmdu bókhaldi á milli deilda.
- 6.000.000 kr. til að koma til móts við afreksstarf. Aðalstjórn UMFG mótar reglur um skiptingu fjármagns á milli deilda.
Bæjarráð tekur undir tillögu nefndarinnar og felur sviðsstjóra ábyrgð á málinu og nánari útfærslu.20. Stuðningur við Snorraverkefnið sumarið 2014
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
21. Útboðsgögn vegna endurnýjunar gatnalýsingar í Grindavík
Tilboð í verkið “1-2.áfangi Götulýsing og götumynd” lögð fram eftir verðkönnun, en tilboð voru opnuð þriðjudaginn 5. nóvember 2013.
Eftirfarandi tilboð bárust: áfangi 1. eftir yfirferð % af áætlun við opnun
1. Grindverk ehf áfangi 1. 11.899.350.- 123 11.899.350.-
2. Kostnaðaráætlun áfangi 1. 9.673.450.- 100
Eftirfarandi tilboð bárust: áfangi 2.
1. Grindverk ehf 5.877.500.- 123 5.877.500.-
2. Kostnaðaráætlun 4.786.050.- 100
Tilboðs upphæðir breyttist ekki við yfirferð.
Í ljósi þess að tilboðið er 23% hærra en kostnaðaráætlun hafnar bæjarráð tilboðinu.