Bæjarráð Grindavíkur - 1327. fundur
- 10.09.2013
- Fundargerð
- Kl. 18:15 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1327
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Aukið stöðugildi í heimaþjónustu/liðveislu
Forstöðumaður Miðgarðs óskar eftir heimild til að fjölga stöðugildum í félagslegri heimaþjónustu.
Félagsmálanefnd mælir með því að samþykkt verði aukið stöðugildi sem nemur 70% stöðugildi í félagslegri heimaþjónustu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 865.000 kr. sem komi til hækkunar á launakostnaði félagslegrar heimaþjónustu og lækkunar á handbæru.2. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2014-2017
Farið yfir álagningahlutföll, tekju- og útgjaldaforsendur
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að álagningarhlutföllum, og tekju- og útgjaldaforsendum fjárhagsáætlunar 2014.
3. Íþróttamannvirki áfangi 2.
Kostnaðaráætlun 2. áfanga kynnt. Útboð er í gangi og verða tilboð opnuð 17. sept, því er áætlunin trúnaðarmál.
Fulltrúi D-lista óskaði eftir að málið væri sett á dagskrá og kostnaðaráætlun kynnt bæjarfulltrúum.
Bæjarstjóri kynnti kostnaðaráætlun Batterísins arkitekta við framkvæmdir 2. áfanga íþróttamannvirkja. Útboð er í gangi og verða tilboð opnuð 17. sept, því er kostnaðaráætlunin trúnaðarmál.4. Úttekt á leikskólanum Laut
Samþykkja skipan starfshóps
Úttekt Námsmatsstofnunar á Leikskólannum Laut, sem unnin var af Attentus - Mannauðsstjórnun og ráðgjöf lögð fram.
Fræðslunefnd hefur fjallað um úttektina og leggur til við bæjarráð að skipaður verði starfshópur 5 - 7 einstaklinga, sem vinni að gerð úrbótaáætlunarinnar. Starfshópinn skipi fulltrúar stjórnenda, starfsmanna, foreldra, fræðslunefndar, skólaskrifstofu og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að skipa starfshópinn og óskar eftir tilnefningum stjórnenda Lautar, starfsmanna leikskólans, foreldrafélags, fræðslunefndar og skólaskrifstofu.5. Reglur um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega
Drög að reglum lög fram til afgreiðslu
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að Reglum um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.6. Ályktun stjórnar Félags eldri borgar á Suðurnesjum. Hugsað til framtíðar.
Ályktun stjórnar Félags eldri borgara á Suðurnesjum lögð fram, þar sem hvatt er til þess að hjúkrunarheimili á Suðurnesjum verði á ábyrgð og stjórnað af Suðurnesjamönnum í framtíðinni, enda sé stefnt að því að sveitarfélögin taki yfir alla þjónustu við eldri borgara af ríkinu á næstu árum.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar tekur undir ályktun stjórnar Félags eldri borgara á Suðurnesjum um að sveitarfélög á Suðurnesjum þurfi að standa saman um að næg hjúkrunarrými séu til á svæðinu. Grindavíkurbær á í viðræðum við velferðarráðuneytið um mögulega yfirtöku á rekstri hjúkrunarheimilisins í Víðihlíð og heimahjúkrunar í Grindavík. Bæjarráð vísar ennfremur til bókunar sinnar frá 1326. fundi 3. september síðastliðinn.7. Uppsögn á starfi sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs
Uppsagnarbréf Kristins Jakobs Reimarssonar sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lagt fram.
Kristinn hefur verið ráðinn í starf menningar- og markaðsfulltrúa Fjallabyggðar.
Bæjarráð þakkar Kristni fyrir vel unnin störf fyrir samfélagið Grindavík og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.8. Fyrirspurn um stæði fyrir hús
http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/941-2002
Bjarmahúsið ehf. óskar eftir því að fá að setja upp gámahús við Hópsheiði 2 í Grindavík til að reka þar gistiheimili. Skipulags- og umhverfisnefnd hefur óskað eftir afstöðu bæjarráðs til þess hvort hefja skuli vinnu við breytingu á deiliskipulagi svo heimilt sé að reka gistiheimili á lóðinni.
Bæjarstjóra er falið að leita umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja áður en ákvörðun verður tekin um framhald málsins.