Bæjarráð Grindavíkur - 1321. fundur
- 11.06.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1321
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Hilmar E Helgasonvaramaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Vinnurammi kennara
NMJ kemur á fundinn og fylgir málinu eftir ásamt RR
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fer yfir málið.
Bæjarstjóra falið að taka saman vinnuskýrslur og vinnuramma kennara skólaárin 2008-2009 til og með skólaársins 2011-2012 og afhenda Félagi grunnskólakennara.
Jafnframt verði farið fram á fund með trúnaðarmönnum kennara við Grunnskóla Grindavíkur, fulltrúum Félags grunnskólakennara og fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga til að ræða uppgjörsforsendur áður en vinnurammar verða endurreiknaðir fyrir þessi ár.2. Framtíðarsýn Tónlistarskólans í Grindavík
Kynning skólastjóra sem lögð var fyrir fræðslunefnd
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fór yfir kynning Ingu Þórðardóttur, skólastjóra Tónlistarskólans í Grindavík á framtíðarsýn skólans eins og hún var kynnt í fræðslunefnd.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með þá framtíðarsýn sem skólastjóri leggur fram.
Fræðslunefnd leggur til að samþykkt verði viðbótarstöðugildi kennara sem nemur 50% frá og með 1. ágúst nk. og 50% stöðugildi kennara frá og með 1. ágúst 2014. Aukin heldur að skólastjóra verði heimilt að deila þeirri viðbótarstjórnun sem fyrir er þ.e. 30% á þrjá aðila í stað tveggja frá 1. ágúst nk.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu frá og með 1. ágúst næstkomandi, en vísar tillögunni til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2014.3. Samningur við aðalstjórn UMFG 2013
Tillaga að nýjum samningi milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG lagður fram.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarráð samþykkir að gerður verið viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð kr. 100.000 sem kemur til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.4. Samningur við UMFG um eflingu íþróttastarfs barna og ungmenna.
Tillaga að nýjum samningi milli Grindavíkurbæjar og UMFG um eflingu íþróttastarfs barna og ungmenna lögð fram.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarráð samþykkir að gerður verið viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð kr. 2.500.000 sem kemur til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.5. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Skoða kosti og galla þess að bæta við tveimur árgöngum við samninginn við UMFG þannig að það verði alveg til 18 ára aldurs. Skoða hvort tilefni sé til þess að styrkja börn sem æfa íþróttir utan Grindavíkur
Fulltrúar B, G og S lista leggja fram eftirfarandi tillögu.
Að bæjarráð feli frístunda- og menningarnefnd að kanna eftirfarandi:
1) Að skoða hvernig íþróttaiðkun 16-18 ára ungmenna er háttað í Grindavík. Sérstaklega skal skoða hvernig þetta starf er fjármagnað og hvort mikið brottfall sé eftir að stuðningi bæjarins við íþróttastarfið er hætt.
2) Að skoða hvort tilefni sé til að vera með sérstaka frístundastyrki fyrir þau börn og ungmenni sem stunda eingöngu skipulagðar frístundir utan Grindavíkur og njóta þar af leiðandi ekki góðs af niðurgreiðslu Grindavíkurbæjar til íþrótta- og tónlistarnáms í Grindavík.
Samþykkt samhljóða.6. 27.fundur Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Afgreiðslu frestað.
7. 28. fundur Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Afgreiðslu frestað.
8. Athugasemdir sunddeildar við sundnámskeið á vegum einkaaðila
Bréf formanns sunddeildar lagt fram
Bréf formanns sunddeildar UMFG lagt fram þar sem gerðar eru athugasemdir við sundnámskeið á vegum einkaaðila í sundmiðstöðinni.
9. Leiðbeiningar til sveitarstjórna um viðauka við fjárhagsáætlun.
Leiðbeiningar lögfræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga um gerð viðauka við fjárhagsáætlun lagðar fram.
10. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
undirritaður samningur lagður fram til staðfestingar, ásamt tilboðum í verkeftirlit með framkvæmdunum
Undirritaður samningur milli Grindavíkurbæjar og Grindarinnar ehf. lagður fram til staðfestingar.
Auk þess eru lögð fram tilboð í verkeftirlit með framkvæmdunum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggur til að gengið verði til samninga við Verksýn ehf. sem var lægstbjóðanda í verkeftirlit með framkvæmdinni að lokinni verðkönnun.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Verksýn ehf. og leggja undirritaðan samning fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.11. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, ráðning
tillaga að ráðningu tekin til umfjöllunar. Viðtölum er lokið og er RR að afla umsagna. Set gögn inn á þriðjudag
Bæjarstjóri fór yfir minnisblað Talent ráðgjafar í kjölfar viðtala við fjóra umsækjendur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að bjóða Ármanni Halldórssyni, skipulags- og byggingafulltrúa í Vesturbyggð, starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar.12. Beiðni um að niðurfellingu leigu á íþróttahúsinu 30.maí til 2. júní 2013
Körfuknattleiksdeild UMFG óskar eftir því að kostnaður vegna húsaleigu deildarinnar á íþróttahúsinu vegna Sjóarans síkáta 2013 verði felldur niður, með vísan til 21. gr. í samningi Grindavíkurbæjar og UMFG um um eflingu íþróttastarfs barna og unglinga í Grindavík.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu, en samþykkir að 50% afslátt af leigunni eins og gert hefur verið varðandi samskonar umsóknir undanfarið.13. Tilboð frá Momentum í innheimtu fyrir Grindavíkurbæ
Tilboð frá Momentum lagt fram ásamt svörum við fyrirspurnum.
Afgreiðslu frestað.
14. Átak í skráningum hunda og katta í Grindavík
Tillaga bæjarstjóra um samstarf HES og Grindavíkurbæjar um átak í skráningu katta og hunda
Bæjarstjóri leggur fram tillögu um samstarf Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja og Grindavíkurbæjar um átak í skráningu katta og hunda í Grindavík, með vísan til samþykkta um hunda- og kattahald á Suðurnesjum.
Í Grindavík eru skráðir 114 hundar og 60 kettir, en á vef Grindavíkurbæjar er birtur listi yfir skráða hunda og ketti í bænum.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur upplýsinga- og þróunarfulltrúa að kynna verkefnið með dreifibréfi til íbúa og á vef Grindavíkurbæjar.15. Frístunda- og menningarnefnd - 22
Afgreiðslu frestað.
16. Hafnarstjórn Grindavíkur - 419
Afgreiðslu frestað.
17. Námsferð sveitarstjórnarfólks til Skotlands 3.-5. september 2013
Kynningarbréf Sambands íslenskra sveitarfélaga lagt fram um námsferð fyrir sveitarstjórnarfólk til Skotlands, 3.-5. september nk., í samvinnu við skoska sveitarfélagasambandið, þar sem áhersla verður lögð á nýjungar í stjórnun og rekstri sveitarfélaga.
18. Ósk um launalaust leyfi frá Grunnskóla Grindavíkur skólaárið 2013-2014
Umsögn skólastjóra liggur fyrir
Jóhanna Sævarsdóttir grunnskólakennari óskar eftir launalausu leyfi frá störfum skólaárið 2013-2014, til að ljúka meistaranámi.
Umsögn næsta yfirmanns liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir beiðnina á grundvelli Viðmiðunarreglna um veitingu launalausra leyfa starfsmanna Grindavíkurbæjar dags. 18.12.12.19. Samstarfssamningur Skógræktarfélags Grindavíkur, Skógræktarfélags Íslands og Grindavíkurbæjar.
Tillaga að samsstarfssamningi lögð fram.
Afgreiðslu frestað.