Bæjarráð Grindavíkur - 1416. fundur
- 09.08.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1416
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Sjóarinn síkáti: Verkefnisáætlun 2016
Minnisblað frá sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs vegna hátíðarhalda Sjóarans síkáta 2016
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fór yfir minnisblað vegna hátíðarhalda Sjóarans síkáta 2016.
2. Vinabæjarheimsókn: Saltfiskhátíð í Ilhavo í Portugal
Bæjarstjóri fór yfir dagskrá vinabæjarheimsóknar til Ilhavo í Portúgal dagana 17. -21. ágúst næstkomandi. Ferðin er skipulögð í samstarfi við Íslandsstofu, en í Ilhavo er árlega haldin saltfiskhátíð sem fær um 300.000 gesti. Þann 19. ágúst verður Íslandsdagur þar sem Grindavík verður í öndvegi. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra og sendiherra Íslands í Portúgal verða með í för.
Í sendinefnd Grindavíkurbæjar verða forseti bæjarstjórnar, formaður bæjarráðs, bæjarstjóri og hafnarstjóri.3. Íbúðalánasjóður: Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir
Framhald frá síðasta fundi.
Bæjarstjóri kynnti drög að auglýsingu þar sem óskað eftir aðilum sem hafa áhuga á að standa að stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar í Grindavík.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að birta auglýsinguna.4. Forkaupsréttur sveitarfélaga á aflaheimildum: ályktun samtakanna
Ályktun stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um forkaupsrétt sveitarfélaga á aflaheimildum lögð fram.
Bæjarráð tekur undir ályktun stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, og leggur áherslu á að löggjafinn taki sem allra fyrst af allan vafa um heimildir sveitarfélaga til að beita forkaupsrétti þegar aflaheimildir eru seldar úr viðkomandi sveitarfélagi.