Bæjarráð Grindavíkur - 1359. fundur
- 09.09.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1359
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Beiðni um stærra kaldavatnsinntak. Miðgarði 3
Þorleifur Björnsson sækir um fyrir hönd lóðarhafa nýtt kaldavatnsinntak að Miðgarði 3 vegna breytinga á húsnæði.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Sigmar Árnason byggingafulltrúi og Ásmundur Jónsson slökkvistjóri sátu fundinn undir afgreiðslu málsins.
Þorleifur Björnsson, fyrir hönd lóðarhafa, sækir um nýtt kaldavatnsinntak að Miðgarði 3 vegna breytinga á húsnæði.
Til að geta mætt beiðninni þarf að leggja nýja kaldavatnslögn frá brunni við gatnamót Hafnargötu og Ránargötu.
Fyrir fundinum liggur kostnaðaráætlun byggingafulltrúa. Bæjarráð samþykkir að hefja framkvæmdina. Byggingafulltrúa er falið að framkvæma verðkönnun á grundvelli fyrirliggjandi kostnaðaráætlunar.2. Slökkvilið Grindavíkur óskar eftir körfubíl
Framhald frá fundi 1357.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Ásmundur Jónsson slökkvistjóri sátu fundinn undir afgreiðslu málsins.
Fundargerð fundar sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og slökkvistjóra með fulltrúum Mannvirkjastofnunar lögð fram, ásamt tillögum sviðsstjóra.
Bæjarráð veitir slökkvistjóra heimild til að kaupa notaðan körfubíl frá Svíþjóð, að fjárhæð 25.000.000 kr. og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 sem komi til hækkunar á eignfærðri fjárfestingu. Fjármögnun er með handbæru fé.3. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Samkvæmt 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagið þegar að loknum sveitarstjórnarkosningum. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að hafin verði endurskoðun ákveðinna þátta aðalskipulagsins. $line$Jafnframt eru lögð fram drög að yfirlýsingu um breytingar á iðnaðarsvæðum
Samkvæmt 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins þegar að loknum sveitarstjórnarkosningum. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að hafin verði endurskoðun ákveðinna þátta aðalskipulagsins.
Jafnframt eru lögð fram drög að yfirlýsingu um breytingar á iðnaðarsvæðum. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við drögin og felur bæjarstjóra að vinna þau áfram.
Bæjarráð tekur undir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að endurskoðun aðalskipulags fari fram.4. Ný líkamsræktaraðstaða
Tillaga að samkomulagi lögð fram með breytingum frá síðasta fundi
Tillaga að samkomulagi við Gym heilsu ehf. lögð fram með breytingum frá síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.5. Erindi frá Sögu- og minjafélagi Grindavíkur
Frístunda- og menningarnefnd vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs, þ.e. að taka ákvörðun um hvort eigi að verða við þessari styrkbeiðni.
Sögu- og minjafélag Grindavíkur óskar eftir 500.000 kr. styrk til að kaupa fasteignina Bakka við. Frístunda- og menningarnefnd vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs, þ.e. að taka ákvörðun um hvort eigi að verða við þessari styrkbeiðni.
Bæjarráð fagnar því að félagið hefur verið stofnað og hefur fengið aðstöðu í Kvennó, sem muni efla starfsemi félagsins. Bæjarráð getur hinsvegar ekki orðið við beiðni um að styrkja fasteignakaup.6. Kaup á Leynisbraut 13c
Kaupsamningur lagður fram til staðfestingar
Kaupsamningur lagður fram og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
7. Sala á Víkurbraut 34, gamli tónlistarskólinn
Knattspyrnudeildin óskar eftir viðræðum um kaup á húsnæði gamla tónlistarskólans að Víkurbraut.
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir viðræðum um kaup á húsnæði gamla tónlistarskólans að Víkurbraut.
Bæjarráð hefur nú þegar samþykkt að auglýsa húsið til sölu, knattspyrnudeild UMFG getur gert tilboð í húsið hjá fasteignasala.