Bæjarráð Grindavíkur - 1323. fundur
- 16.07.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1323
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Auðar íbúðir og hús í Grindavík
Listi yfir tómar íbúðir í Grindavík lagður fram. Ræða í tengslum við mikla eftirspurn eftir leiguhúsnæði. $line$Fela byggingafulltrúa að senda eigendum tómra íbúða bréf og hvetja þá til að sinna eðlilegu viðhaldi húsa sinna. Merkja hús sem eru í eigu fjármálastofnanna?
Listi yfir tómar íbúðir í Grindavík lagður fram. Mikill meirihluti eignanna er í eigu íbúðalánasjóðs og Landsbankans.
Grindavíkurbæ berast reglulega athugasemdir og ábendingar um ástanda auðra húsa og íbúða. Jafnframt berast fyrirspurnir um eigendur slíkra eigna með fyrirspurnum um möguleika á kaupum eða leigu.
Mikil eftirspurn eftir leiguhúsnæði í Grindavík enda hefur íbúum fjölgað um rúmlega 1% frá síðustu áramótum, eða um 32 einstaklinga. Bæjarráð vill því hvetja eigendur auðra íbúða og húsa til að koma íbúðum sínum í íbúðarhæft ástand og bjóða þær til leigu eða sölu ef ekki stendur til að eigandi búi þar sjálfur.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda bréf á eigendur eignanna.2. Beiðni um styrk til malbikunar og frágangs á bílastæði við Húsatóftavöll og klæðningar golfskála
Fjárhagsáætlun GG lögð fram.
Framhald frá fundi 1317.
Fjárhagsáætlun GG lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Grindavíkur 1.200.000 kr styrk til að klára klæðningu nýs golfskála félagsins og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013. Fjárhæðin kemur til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð vísar beiðni um styrk við frágang bílastæða til fjárhagsáætlunar ársins 2014.3. Drög að stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs
Erindi frá stjórn SSH til aðildarsveitarfélaga Reykjanesfólkvangs. Ég set minnisblaðið líka fram með mínum athugasemdum.
Minnisblað Róberts Ragnarssonar og Sverris Bollasonar dags. 3. júní lagt fram.
Í minnisblaðinu er að finna tillögu að mótun nýs samstarfssamnings um rekstur og stjórnun Reykjanesfólkvangs í kjölfar samráðsfunda allra aðildarsveitarfélaga fólkvangsins.
Tillögurnar kalla á afstöðu aðildarsveitarfélaganna til fyrirkomulags á tilnefningu í stjórn fólkvangsins, tillögu um aukningu á rekstrarframlagi og umsagnar um drög að stjórnunaráætlun fólkvangsins.
Gert er ráð fyrir að afstaða aðildarsveitarfélaganna liggi fyrir þann 1. september næstkomandi. Grindavíkurbær hefur þegar tekið afstöðu til allra þeirra þátta sem málið varðar og samþykkt fyrir sitt leyti tvöföldun framlags til Reykjanesfólkvangs á árinu 2013.
Bæjarráð skorar á önnur aðildarsveitarfélög að taka afstöðu fyrir 1. september og felur bæjarstjóra að senda að aðildarsveitarfélögum að nýju umsögn Grindavíkurbæjar um Drög að stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs.4. Ósk um sameiningu lóða - Seljabót 12 og Miðgarður 1
Fyrirliggjandi eru umsagnir skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að breyta lóðarmörkum skv. meðfylgjandi tillögu nr. 2 þannig að lóðin verði 3.515 m2. Bæjarráð tekur undir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að málaðar verði veglínur við gatnamót Miðgarðs og Seljabótar, jafnframt að biðskylda verði færð fram til þess að auka umferðaröryggi. Jafnframt leggur bæjarráð til að settur verði dropi eða miðeyja í aðkeyrslu að hafnarsvæðinu.
Bæjarráð hvetur jafnframt til þess að lóðarhafi setji upp skjólgirðingu við suður, austur og vesturmörk lóðarinnar.5. Tillaga að merkingum og hraðatakmörkunum við Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut og Suðurhóp
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggur fram tillögur um takmörkun á umferðarhraða við Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut. Liðin eru tvö ár síðan að sett voru upp betri merkingar til þess að upplýsa ökumenn um 30 km. hámarkshraða, þær merkingar virðast ekki hafa borið tilætlaðan árangur
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að yfirborðsmerkingar á Ásabraut við Grunnskóla Grindavíkur verði bættar til að upplýsa ökumenn betur um 30 km. hámarkshraða.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.6. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 12. júní 2013
Fundargerðin er lögð fram.
7. Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs febrúar til apríl 2012
Fundargerð fundar 10. apríl sem gleymdist að senda okkur. Við höfum áður fjallað um fundargerðir frá febrúar til 3. apríl á fundi bæjarstjórnar 30. maí.
Fundargerðin er lögð fram.
8. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Fundargerðir bygginganefndar lagðar fram.
Fundargerðir bygginganefndar lagðar fram.
9. Þjónustuhópur aldraðra
Fundargerðin er lögð fram.
10. Sveitarfélögin 2012, samanburður
Skýrsla greiningardeildar Arion banka, júní 2013
Skýrsla greiningardeildar Arion banka frá júní 2013 Sveitarfélögin 2013 er lögð fram.
Í skýrslunni er að finna samanburð á fjárhagslegum upplýsingum um 28 fjölmennustu sveitarfélög landsins. Í skýrslunni kemur fram að fjárhagsleg staða Grindavíkurbæjar er mjög góð, sérstaklega eigna og skuldastaða. Greiningardeild Arion banka metur Grindavíkurbæ með sterkasta fjárhagslega stöðu þeirra 28 fjölmennustu á Íslandi.11. Fundargerð 7. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Fundargerðin er lögð fram.
12. Gjaldskrár Grindavíkurbæjar
Samanburður Byggðastofnunar á fasteignagjöldum 27 sveitarfélaga lagður fram.
Samanburður Byggðastofnunar á fasteignagjöldum 27 sveitarfélaga lagður fram. Sveitarfélögin eru þverskurður þéttbýlissveitarfélaga á Íslandi.
Samanburðurinn byggir á vísitöluhúsi sem er einbýlishús, byggt 1975. Húsið er 161,1 m2 að stærð, 808 m2 lóð og staðsett í þéttbýli.
Samanburðurinn leiðir í ljós að fasteignagjöld í Grindavíkurbæ eru þau sjöttu lægstu í hópi þessara 27 sveitarfélaga.13. Þjónusta við hælisleitendur.
Innanríkisráuðneytið óskar eftir samstarfsaðilum til að veita þjónustu fyrir hælisleitendur.
Innanríkisráðuneytið óskar eftir samstarfsaðilum til að veita þjónustu fyrir hælisleitendur.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar félagsmálanefndar.14. Tilboð frá Momentum í innheimtu fyrir Grindavíkurbæ
Tilboð frá Momentum lagt fram ásamt svörum við fyrirspurnum.
Bæjarráð hafnar tilboðinu en felur bæjarstjóra að kanna möguleikann á útboði á innheimtuþjónustu fyrir árið 2014.
Fulltrúi B-lista situr hjá við afgreiðslu málsins.15. Íþróttamannvirki áfangi 2.
B listi skiptir um fulltrúa í bygginganefnd
B-listi skipar Gunnlaug Jón Hreinsson sem aðalfullrúa í bygginganefnd íþróttamannvirkja í stað Björgvins Björgvinssonar.