Bæjarráð Grindavíkur - 1315. fundur
- 09.04.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1315
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Frágangur á göngustíg við Kvikuna
Byggingafulltrúi óskar eftir heimild til að flytja fé milli liða í eignfærðri fjárfestingu, úr gatnagerð í stígagerð, til að klára frágang á göngustíg við Kvikuna ásamt uppsetningu á upplýsingaskiltum með rafmagnstengingum.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar breytingu á fjárhagsáætlun til afgreiðslu bæjarstjórnar.2. Kjörskrá fyrir alþingiskosningar 27. apríl 2013
Ákveða þarf hver hefur heimild til að undirrita kjörskrána og gera breytingar ef athugasemdir breytast.$line$http://www.kosning.is/althingiskosningar/kjosendur/kjorskra/
Kjörskrá fyrir Alþingiskosningar þann 27. apríl næstkomandi lögð fram. Hún skal liggja frammi frá og með 17. apríl.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að semja kjörskrá. Jafnframt er bæjarstjóra veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna Alþingiskosninga 27. apríl nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.3. Krafa um skaðabætur vegna byggingagalla í Laut 16
Húsfélagið Laut 16 hefur krafið Grindavíkurbæ um greiðslu skaðabóta vegna galla á fasteigninni.
Bréf frá lögmanni bæjarins lagt fram þar sem kröfunni er hafnað, enda getur sveitarfélagið ekki borið ábyrgð á einstökum byggingaframkvæmdum í sveitarfélaginu.
Bæjarráð harmar þá stöðu sem íbúar og eigendur eru lentir í vegna galla á fasteigninni. Grindavíkurbær á eina íbúð í húsinu og er því aðili að húsfélaginu.4. Styrkir til nýsköpunar og þróunar í Grindavík
samningsdrög lögð fram.
Drög að samningum milli Grindavíkurbæjar og annarsvegar Codland og hinsvegar Sjávarklasans lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samningana og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.5. Sveitarfélagamörk. Krafa Hafnarfjarðarbæjar, um að Óbyggðanefnd úrskurði um sveitarfélagamörk.
Bréf frá Óbyggðanefnd lagt fram þar sem nefndin tilkynnir að hún telji sig ekki lengur hafa heimild til að úrskurða um sveitarfélagamörk, í ljósi breytinga sem gerðar hafa verið á sveitarstjórnarlögum.
6. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs segir starfi sínu lausu
Uppsagnarbréf lagt fram. Þurfum að ræða hvernig á að standa að ráðningu í starfið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hefur sagt starfi sínu lausu vegna flutninga erlendis og mun láta af störfum fyrir 1. ágúst. Uppsagnarbréf lagt fram.
7. Farsímamál hjá Grindavíkurbæ
Breytingatillögur við reglurnar lagðar fram. Gildistaka á að vera 1. maí.
Bæjarstjóri leggur fram tillögur um breytingar á áður samþykktum reglum um farsímamál. Breytingarnar eru til að koma til móts við ábendingar starfsmanna.
Bæjarráð samþykkir breytingarnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.8. Siðareglur bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar
RR gerir grein fyrir umræðum á málþingi um siðareglur og leggur til að haldið verði opið málþing í Grindavík um gerð siðareglna fyrir bæjarstjórn go stjórnendur bæjarins.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umræðum á málþingi um siðareglur í opinberri þjónustu sem haldið var 22. mars og leggur til að haldið verði opið málþing í Grindavík um gerð siðareglna fyrir bæjarstjórn og stjórnendur bæjarins.
Jafnframt leggur hann til að skipaður verið vinnuhópur sem hafi það hlutverk að vinna tillögur að siðareglum fyrir bæjarstjórn og stjórnendur Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir að skipa vinnuhóp með einum fulltrúa frá hverjum lista, bæjarstjóra og fulltrúa stjórnenda til að vinna tillögur að siðareglum.9. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Hefja umræðu um nýja samþykkt. fyrirmynd ráðuneytis liggur fyrir, ásamt nýbirtum samþykktum Akureyrar og Dalvíkur. Byrjum á að ræða og lista upp það sem við þurfum að taka afstöðu til eða viljum koma inn í samþykktir.
Fyrirmynd innanríkisráðuneytis að samþykktum um stjórn og fundarsköp lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að hafin verði vinna við nýjar samþykktir að loknu sumarleyfi bæjarstjórnar.10. Vinnuvernd í stofnunum bæjarins
RR gerir grein fyrir vinnu við uppbyggingu vinnuverndarstarfs hjá Grindavíkurbæ, í samræmi við ábendingar frá starfsmannadegi 2012.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við uppbyggingu vinnuverndarstarfs hjá Grindavíkurbæ, í samræmi við ábendingar frá Starfsmannadegi 2012.
Skipuð verður vinnuverndarnefnd sem hefur umsjón með gerð áhættumats og skipulagi vinnuverndarstarfs í starfsemi bæjarins.11. Verkefnalýsing fyrir heildarendurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu - ósk um umsögn
Umsögn skipulags- og umhverfisnefndar lögð fram.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hefja endurskoðun á vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins. Stofnaður hefur verið stýrihópur utan um verkefnið. Óskað er eftir umsögn Grindavíkurbæjar um verkefnalýsingu unna af Vatnaskil verkfræðistofu dags. í mars 2012.
Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að vinna við heildarendurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðisins gæti haft veruleg áhrif á landnýtingu innan Grindavíkurbæjar. Því er eðlilegt að unnið sé að þessu verkefni í nánu samstarfi við Grindavíkurbæ. Í þessu samhengi má benda á að innan Grindavíkurbæjar, við mörk að Hafnarfirði, er staðsett efnistökusvæði sem fengið hefur framkvæmdaleyfi. Jafnframt þarf að taka mið af mörkum Grindavíkurbæjar við aðliggjandi sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu í samþykktu aðalskipulagi Grindavíkurbæjar fyrir árin 2010-2030.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að krefjast aðkomu að þessari vinnu og aðild að nefndinni.12. Aukafundur í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands 19. apríl 2013.
Boðað er til aukafundar í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands þann 19. apríl.
Bæjarráð felur Jóni Þórissyni að sitja fundinn fyrir hönd Grindavíkurbæjar.13. Beiðni um styrk til malbikunar og frágangs á bílastæði við Húsatóftavöll og klæðningar golfskála
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar í frístunda- og menningarnefnd.
14. Ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði
Ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Egilsstöðum 20.-22. mars lögð fram.
Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að virk ungmennaráð séu bæjarstjórn til ráðgjafar. Grindavíkurbær átti tvo fulltrúa á þinginu og bindur vonir við að ungmennaráð Grindavíkurbæjar sem stofnað var árið 2011 eflist og taki enn virkari þátt í stefnumótun í bænum á næstu misserum.
Erindinu er vísað til frístunda- og menningarnefndar til umfjöllunar.15. Arðgreiðsla Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. vegna ársins 2012
Á aðalfundi lánasjóðsins þann 15. mars síðastliðinn var samþykkt að greiða 408 milljónir kr. í arð til hluthafa vegna góðrar afkomu ársins 2012.
Hlutur Grindavíkurbæjar er 1,089% og nemur arðgreiðslan því 4.443.120 kr. Að teknu tilliti til fjármagnstekjuskatts er fjárhæðin 3.554.496 kr.16. Sóknaráætlanir landshluta.
Lokaútgáfa lögð fram.
Lokaútgáfa Sóknaráætlunar fyrir Suðurnes lögð fram til upplýsingar.
Bæjarráð fagnar því að Sóknaráætlun Suðurnesja liggi nú fyrir. Með gerð sóknaráætlanna er fjármagn og vald flutt frá ríki til sveitarfélaga, sem er jákvætt skref. Bæjarráð vonar að í framtíðinni verði meira fé sett í sóknaráætlanir. Verklagið við gerð áætlunarinnar var til fyrirmyndar og komu margir aðilar að gerð hennar. Forgangsröðun verkefna er í samræmi við áherslur sem komu fram á haustfundi SSS í Sandgerði 2012.17. Göngu- og hjólabærinn Grindavík. Tillaga til umfjöllunar
Bæjarstjóri leggur til að frístunda- og menningarnefnd verði falið að hefja vinnu við stefnumörkun um að gera Grindavík vænni fyrir göngu- og hjólreiðafólk. Í Grindavík eru allar vegalengdir stuttar og aðstæður ákjósanlegar fyrir göngu- og hjólreiðafólk.
Nefndinni verði falið að skila tillögum fyrir bæjarráð fyrir lok ágústmánaðar svo hægt sé að taka afstöðu við vinnslu fjárhagsáætlunar.18. Aðalfundur Þekkingarseturs Suðurnesja 2013
Aðalfundur Þekkingarseturs Suðurnesja verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl næstkomandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd Grindavíkurbæjar.