Bæjarráð Grindavíkur - 1486. fundur
- 08.08.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 -
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1486
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Golfklúbbur Grindavíkur: Leigusamningar
Á 1483. fundi bæjarráðs var lögð fram beiðni frá Golfklúbbnum um liðsinni bæjaryfirvalda vegna leigugreiðslna. Bæjarráð óskaði eftir frekari gögnum og Halldór Smárason mætir á fundinn og útskýrir málið.
Á 1483. fundi bæjarráðs var lögð fram beiðni frá Golfklúbbnum um liðsinni bæjaryfirvalda vegna leigugreiðslna. Bæjarráð óskaði eftir frekari gögnum og Halldór Einir Smárason mætti á fundinn og fór yfir málið.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri aðstoði golfklúbbinn við að ná fram breytingum á leigusamningum gagnvart Fjársýslu ríkisins.2. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Tillaga að aðstöðu og breytingum á húsnæði ásamt uppfærðri kostnaðaráætlun. Spurning hvort bæjarfulltrúar vilja gera breytingar.
Þá hefur borist tölvupóstur frá HES varðandi reglur um húsnæði fyrir daggæslu barna.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Fyrir liggur tillaga að aðstöðu og breytingum á Gerðavöllum 17. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 16.110 þús.kr.
Málið lagt fram til kynningar og bæjarráð felur sviðsstjórunum að vinna málið áfram.3. Leikskólinn Laut: Eftirlitsskýrsla frá HES
Á 1485. fundi bæjarráðs var samþykkt að fela sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna áfram með hugmyndir starfsmanna Lautar um stöðu húsnæðismála skólans, í samráði við stjórnendur Lautar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Nökkvi lagði fram skjal með þremur tillögum að lausn á tímabundnum húsnæðisvanda við leikskólann Laut, þar sem ákveðið hefur verið að fjarlægja útistofuna við leikskólann.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjórunum að kaupa eða leigja færanlegt húsnæði og setja niður við Laut. Einnig er Nökkva falið að vinna málið áfram ásamt leikskólastjóra og starfsfólki.4. HS Orka: Veðsetning samningsbundinna réttinda
Fyrir liggur tillaga að yfirlýsingu milli Grindavíkurbæjar og HS Orku er varðar ákvæði í hagnýtigarsamningi og leigulóðarsamningi milli þessara aðila.
Á 1484. fundi bæjarráðs voru lögð fram drög að yfirlýsingu milli Grindavíkurbæjar og HS Orku varðandi heimildir til veðsetninga skv. hagnýtingarsamningi. Á fundinum samþykkti bæjarráð yfirlýsinguna með smávegis orðalagsbreytingum. Nú liggur fyrir breytt tillaga til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir yfirlýsinguna samhljóða og leggur til við bæjarstjórn að staðfesta hana.6. Körfuknattleiksdeild UMFG: Leynisbraut 13c
Körfuknattleiksdeild UMFG óskar eftir styrk til að greiða upp lán vegna viðgerða á Leynisbraut 13c
Körfuknattleiksdeild UMFG óskar eftir styrk til að greiða upp lán vegna viðgerða á Leynisbraut 13c, eða að öðrum kosti að lánið verði greitt upp með fyrirframgreiddum styrk til deildarinnar.
Bæjarráð samþykkir að bæjarsjóður greiði lánið upp og komi greiðslan á móti væntanlegum styrk til deildarinnar.7. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti: Grænbók
Sveitarstjórnum er bent á að kynna sér Grænbókina og unnt er að veita umsögn til 15. ágúst nk.
Sveitarstjórnum er bent á að kynna sér Grænbókina og unnt er að veita umsögn til 15. ágúst nk.
Lagt fram til kynningar.8. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 29
Fundargerð 29. fundar, dags. 25. júlí sl. lögð fram til kynningar.