Bæjarráð Grindavíkur - 1479. fundur
- 08.05.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1479
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. HS Orka: Veðsetning samningsbundinna réttinda
Lárus Blöndal hrl. mætir á fund bæjarráðs og fer yfir málið.
Lárus Blöndal hrl. mætti á fund bæjarráðs og fór hann yfir málið.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.2. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja: Ófullnægjandi frágangur frárennslislagna
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerir grein fyrir málinu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur tæknideild að loka umræddum brunnum.3. Húsnæðisáætlanir: Undirbúningur og gerð
Reglur um stofnframlög lagðar fram til umræðu og afgreiðslu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að reglum um stofnframlög til húsnæðissjálfseignarstofnana lögð fram.
Bæjarráð vísar reglunum til staðfestingar í bæjarstjórn.4. Starf frístundaheimila: Markmið og viðmið
Lagðar fram reglur um frístundaheimili sem og viðmið um rekstur.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að reglum um frístundaheimili sem og viðmið um rekstur lögð fram.
Bæjarráð vísar reglunum til staðfestingar í bæjarstjórn.5. Leiguíbúðir aldraðra: Úthlutun
Ferli við úthlutun útskýrt fyrir ráðinu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir úthlutunarferlið.6. Daggæsla : Húsnæðismál
Rætt um stöðu málsins og nýtingu á húsnæðinu við Gerðavelli.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tæknideild falið að hefja hönnun og framkvæmdir á innra rými á Gerðavöllum 17.7. Knattspyrnudeild UMFG: 2018 ósk um að tveir erlendir leikmenn fái sumarvinnu hjá Grindavíkurbæ
Ósk frá Knattspyrnudeild UMFG, Kvennaráði mfl. þar sem óskað er eftir störfum fyrir 1-2 starfsmenn í vinnuskóla Grindavíkurbæjar.
Málinu er frestað.
8. Mannvirkjastofnun: Úttektir slökviliða 2017,Grindavík
Borist hefur bréf frá Mannvirkjastofnun vegna úttektar á slökkviliði Grindavíkur.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá Mannvirkjastofnun, dags. 2. maí 2018, vegna úttektar á slökkviliði Grindavíkur.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.