Bæjarráð Grindavíkur - 1404. fundur
- 08.03.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1404
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólafulltrúi fylgdi málinu eftir.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögur:
1. Grindavíkurbær samþykkir að greiða niður námskeið fyrir dagforeldra.
a. Allir dagforeldrar í Grindavík sem starfa á grundvelli bráðabirgðaleyfa skulu eiga rétt á 100% niðurgreiðslu
b. Allir dagforeldrar sem sækja um og fá leyfi til og með 31.12.2016 skulu eiga rétt til 100% niðurgreiðslu
c. Allir dagforeldrar sem sækja um og fá leyfi frá og með 1.1.2017 skulu eiga rétt til 50% niðurgreiðslu
2. Grindavíkurbær samþykkir að veita árlegan búnaðarstyrk að fjárhæð kr. 50.000,- til allra dagforeldra sem starfa á grundvelli almenns leyfis.
3. Grindavíkurbær samþykkir að veita aukna niðurgreiðslu (50%) til þeirra dagforeldra er gæta eigin barna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verið viðauki við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 700.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.2. Biðlistar í leikskólum og nemendafjöldi í skólum.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólafulltrúi fylgdi málinu eftir.
Bæjarráð felur félagsþjónustu- og fræðslusviði að hefja undirbúning við að setja upp tímabundna leikskóladeild við annan leikskólann, sem taki starfa næsta haust.3. Beiðni um umsögn: umsókn um lögbýli
Þórir Guðmundur Kristinsson óskar eftir umsögn sveitarfélagsins við umsókn sína til landbúnaðarráðuneytisins um lögbýlisskráningu Járngerðarstaða-austurbæ.
Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við Járngerðastaðir-austurbær verði skráð sem lögbýli.4. Kvikan: breytt nýting eða sala
Kauptilboð komið
Kauptilboð í eignina Hafnargata 12a lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera gagntilboð.5. XXX. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga: 8. apríl 2016
Það þarf að tilnefna nýjan fulltrúa í stað Bryndísar. Var ekki líka hugmyndin að Hjálmar og Kristín María myndu víxla?
Boð XXX. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga lagt fram.
Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi fulltrúa á landsþing sambandsins.
Aðalfulltrúar
Hjálmar Hallgrímsson, forseti bæjarstjórnar
Marta Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi
Til vara
Kristín María Birgisdóttir, formaður bæjarráðs
Ásrún Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi6. Víðihlíð: Beiðni um undanþágu frá greiðslu íbúðaréttar
Ásrún Kristinsdóttir lýsir yfir vanhæfi sínu með vísan til þess að umsækjandi er faðir hennar, og víkur af fundi.
Kristinn H. Þórhallsson óskar eftir undanþágu frá greiðslu íbúðaréttar á íbúð 6A í Víðihlíð.
Bæjarráð samþykkir beiðnina, en mánaðarleg leiga hækkar um 25%.7. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Setja vinnu við hönnun og gerð útboðsgagna af stað. Tilnefna í nefndina. $line$$line$við undirbúninginn voru eftirfarandi í nefndinni$line$Jón Emil Halldórsson (D), Þórir Sigfússon (G), Magnús Andri Hjaltason (S), Bryndís Gunnlaugsdóttir (B), Atli Geir Júlíusson (D), Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja, Guðmundur Bragason Fulltrúi UMFG. Starfsmenn; Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Formaður leggur til að skipaður verði vinnuhópur sem fái það hlutverk að klára hönnun íþróttamannvirkis á grundvelli tillögu H. Hópurinn skal jafnframt útbúa verklýsingu og útboðsgögn.
Verkefni hópsins verður að vinna fullnaðarhönnun, verklýsingu og útboðgsgögnum.
Óskað er tilnefninga fyrir næsta fund bæjarráðs.