Bæjarráð Grindavíkur - 1348. fundur
- 08.04.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1348
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Dagbjartur Willardssonvaramaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Úttekt á frístundastarfi á vegum Grindavíkurbæjar
Bókun frístunda- og menningarnefnd: Sigríður Etna Marinósdóttir sem er að ljúka BA í tómstundafræði var í starfsnámi í Grindavík. Að beiðni sviðsstjóra var hún beðin að gera úttekt á tómstundastarfi í Grindavík. Nefndin telur að úttektin hafi verið þörf og felur sviðsstjóra að vinna að stefnumótun Grindavíkurbæjar í frístundamálum til næstu ára í samvinnu við nefndina, ungmennaráð, nemendaráð, Miðgarð og Sambýli.$line$$line$Legg til að stofnaður verði stýrihópur til þess að halda utan um stefnumótunina. Vinnuhópurinn kalli svo til ungmennaráð, félag eldri borgara og fleiri að þessari vinnu. Í stýrihópnum sitji:$line$Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs$line$Frístundaleiðbeinandi$line$Fulltrúi bæjarstjórnar$line$Fulltrúi Miðgarðs og Sambýlis$line$Fulltrúi grunnskólans$line$Sigríður Etna
Frístunda- og menningarnefnd vísar úttekt á tómstundastarfi á vegum Grindavíkurbæjar til bæjarráðs. Nefndin telur að úttektin hafi verið þörf og felur sviðsstjóra að vinna að stefnumótun Grindavíkurbæjar í frístundamálum til næstu ára í samvinnu við nefndina, ungmennaráð, nemendaráð, Miðgarð og Sambýli.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að stofnaður verði stýrihópur til þess að halda utan um stefnumótunina. Stýrihópurinn kalli svo til ungmennaráð, félag eldri borgara og fleiri að þessari vinnu.
Bæjarráð samþykkir að skipaður verði stýrihópur sem vinni drög að stefnumótun í frístundamálum sem lögð verði fyrir frístunda- og menningarnefnd til umfjöllunar. Bæjarráð skipar sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og frístundaleiðbeinanda í hópinn og óskar eftir tilnefningum frá Miðgarði og grunnskólanum.2. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Samningurinn samþykktur samhljóða í frístunda- og menningarnefnd. Var líka sendur til kynningar til UMFG og engar athugasemdir bárust þaða.
Tillaga að samningi milli Grindavíkurbæjar og UMFG um stuðning við afreksstarf lagður fram. Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.3. Samgöngusamningar 2014
Verkefnisáætlun lögð fram ásamt samgöngusamningum. Verkefnið hefst 21. apríl
Verkefnisáætlun lögð fram ásamt samgöngusamningum. Skráning er hafin og hefst verkefnið 21. apríl.
Bæjarráð fagnar því að verkefnið er að hefjast og vonast til að starfsfólk nýti sér þetta tækifæri til aukinnar heilsueflingar.4. Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Samþykkja þarf viðauka við fjárhagsáætlun 2014. Hækkun rekstrarútgjalda að fjárhæð 6.435.000 kr. vegna fjármagnstekjuskatts. Útgjöldin eru fjármögnuð með hækkun á skuldaliðnum Ógreiddum fjármagnstekjuskatti. Sú skuld verður síðan greidd í nóvember og desember 2015.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir því að í dag var gengið frá afsali og greiðslu vegna sölu hlutabréfanna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun 2014. Hækkun rekstrarútgjalda að fjárhæð 6.432.000 kr. vegna fjármagnstekjuskatts. Útgjöldin eru fjármögnuð með hækkun á skuldaliðnum Ógreiddum fjármagnstekjuskatti. Sú skuld verður síðan greidd í nóvember og desember 2015.5. Innheimta vanskilakrafna fyrir Grindavíkurbæ
Drög að verðkönnun lögð fram
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að verðkönnun meðal þjónustaðila sem veita innheimtuþjónustu vegna vanskilakrafna.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að framkvæma verðkönnunina og leggja niðurstöður fyrir bæjarráð.6. Krafa um miskabætur vegna eineltis í Grunnskóla Grindavíkur
Eydna Fossádal krefur Grindavíkurbæ um miskabætur fyrir hönd dóttur sinnar
Krafa um miskabætur lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.7. Umsókn um styrk til atvinnuþróunar. Rannsóknir og fullvinnsla afurða
Codland sækir um styrk til atvinnuþróunar. Verkefnið er framhald verkefnis sem unnið var síðastliðið sumar og snýst um rannsóknir á fullvinnslu sjávarafurða.
Bæjarráð hafnar erindinu í ljósi þess að til stendur að auglýsa eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar og þróunar.8. Beiðni um umsögn um umsókn Pepp ehf. um rekstrarleyfi í flokki II að Hafnargötu 6
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
9. Ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2013
Ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga árið 2013 lagður fram.