Bæjarráð Grindavíkur - 1337. fundur
- 10.12.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1337
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Kaupsamningur lagður fram
Tillaga að kaupsamningi milli annarsvegar Ursus I slhf. og hinsvegar Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs, Sveitarfélagsins Voga og Orkuveitu Reykjavíkur lagður fram.
Kaupsamningurinn byggir á samkomulagi um helstu skilmála kaupsamnings milli sömu aðila sem bæjarstjórn hefur staðfest.
Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.2. Auka hluthafafundur Suðurlinda ehf. 12. desember 2013
Boðað er til auka hluthafafundar Suðurlinda ehf. þann 12. desember næstkomandi í Álfagerði í Vogum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.3. Beiðni um endurnýjun á samningi vegna umsýslu á eignum Grindavíkurbæjar á íþróttasvæðinu. (Gula húsið, búningsklefar og salerni)
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að núverandi samningur við knattspyrnudeild UMFG verði framlengdur um eitt ár með hækkun launavísitölu.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar.4. Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar
Tillaga starfshóps lagðar fram.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum starfshóps að Reglum um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar. Með reglunum er komið til móts við ábendingar frá Starfsmannadegi Grindavíkurbæjar 2012.
Bæjaráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.5. Endur- og símenntun starfsmanna
Tillaga starfshóps lögð fram.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum starfshóps að sí- og endurmenntunaráætlun starfsmanna Grindavíkurbæjar. Með áætluninni er komið til móts við ábendingar frá Starfsmannadegi Grindavíkurbæjar 2012.
Bæjarráð samþykkir áætlunina og felur starfsmannastjóra að koma henni til framkvæmdar.6. Kvenfélag Grindavíkur 90 ára
afgreiða formlega 250.000 kr. afmælisgjöf
Bæjarráð Grindavíkur samþykkir að veita Kvenfélagi Grindavíkur 250.000 kr. gjöf í tilefni 90 ára afmælis félagsins.
7. Opnunartími íþróttamannvirkja veturinn 2013-2014
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að vetraropnun verði óbreytt til næsta vors til að fá meiri reynslu á opnunartímann, sem er til kl. 21:00 frá mánudegi til fimmtudags. Jafnframt leggur nefndin til að sumaropnunartími verði til kl 21:00.
Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar.8. Samningur við Karlakór Grindavíkur
Vísað frá frístunda- og menningarnefnd
Tillaga að samsstarfssamningi milli Grindavíkurbæjar og Karlakórs Grindavíkur lögð fram.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.9. Samstarfssamningur um skógræktarsvæðið við Selskóg og uppgræðslu á landi norður af Hópshverfi
Vísað til bæjarráðs frá FRÍ og MEN
Tillaga að samstarfssamningi milli Grindavíkurbæjar og Skógræktarfélags Grindavíkur um skógræktarsvæðið við Selskóg og uppgræðslu á landi norður af Hópshverfi, Hópsheiði og yfir á Klifhólahraun lögð fram.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.10. Kaup á tölvubúnaði árið 2013, sundurliðun á deildir
Viðauki við fjárhagsáætlun 2013
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir því hvernig fjármagni til kaupa á tölvubúnaði árið 2013 er skipt niður á deildir og eignfærða fjárfestingu.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013 sem felur í sér að alls eru kr. 8.453.000 færðar af lykli tölvudeildar niður á viðkomandi deildir.11. Lóð undir gróðurhús
breytt viljayfirlýsing m.t.t. nýrrar staðsetningar
Bæjarstjóri kynnti tillögu að viljayfirlýsingu milli Grindavíkurbæjar og EsBro Investment um úthlutun lóðar á iðnaðarsvæði við Mölvík fyrir gróðurhús til tómataræktunar.
12. Beiðni um umsögn frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis um tillögu til þingsályktunar um seinkun klukkunnar og bjartari morgna, 197. mál.
Lagt fram.
13. Beiðni um umsögn frá Velferðarnefnd Alþingis um frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn), 147. mál.
Lagt fram.
14. Beiðni um umsögn frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs (verndun umhverfis og heilsu, EES-reglur), 215. mál.
Lagt fram.
15. Samþykkt um fráveitu
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir tillögu að Samþykkt um fráveitu Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð vísar samþykktinni til fyrri umræðu bæjarstjórnar.