Bæjarráð Grindavíkur - 1462. fundur
- 07.11.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1462
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka 2 mál á dagskrá með afbrigðum:
Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IV: Northern light á Íslandi ehf. - 1709024
og
Rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki II: Hótel Grindavíkur ehf. - 1709104
Samþykkt samhljóða að bæta þessum málum aftast í d
1. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Tillaga um veitingu húsnæðisstyrkja til dagforeldra með það að meginmarkmiði að fjölga dagforeldrum.
Lögð fram tillaga um veitingu húsnæðisstyrkja til dagforeldra sem eru með starfsemina í heimahúsi, með það að meginmarkmiði að fjölga dagforeldrum.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir upplýsingum um fjölda barna á biðlista í dagforeldraþjónustu.2. Daggæsla við Hraunbraut: Húsnæðismál
Fyrir liggur að hætta þarf starfsemi í aðstöðu Krílakots við Hraunbraut 3a.
Bæjarráð samþykkir að flytja starfsemina, tímabundið, í þjónustuhúsnæði tjaldsvæðis og samþykkir fyrirliggjandi leigusamning við rekstraraðila Krílakots.3. Melhólsnáma: Vinnsluáætlun
Hér þarf að taka ákvörðun um hvort útboðið verði lokað eða opið.
Bæjarráð samþykkir að hafa forval vegna útboðs í vinnsluáætlun Melhólsnámu.
4. Kalka-Sorpeypingarstöð Suðurnesja: Samráðsnefnd um stefnumótun
Óskað er eftir því að sveitarstjórn tilnefni fulltrúa í samráðsnefndina
Óskað er eftir tilnefningu í samráðsnefnd um stefnumótun.
Bæjarráð tilnefnir Jónu Rut Jónsdóttur í samráðsnefndina.5. Minnisvarði um áhöfn og sögu flugvélar sem fórst í Fagradalsfjalli 3. maí 1943: Heimild til uppsetningar
Fundað hefur verið með Vegagerðinni vegna málsins
Minnisblað bæjarstjóra lagt fram.
6. Stígamót: Ósk um styrk
Borist hefur erindi frá samtökunum
Stígamót óska eftir rekstrarstyrk á árinu 2018.
Bæjarráð samþykkir 50.000 kr. styrk á árinu 2018.7. Framlag til minningar um látna Grindvíkinga
Björgunarsveitin Þorbjörn og Alzheimersamtökin
Bæjarráð samþykkir að styrkja Björgunarsveitina Þorbjörn um 50.000 kr. og Alzheimersamtökin um 50.000 kr. til minningar um Dagbjart Einarsson og Magnús Andra Hjaltason.
8. Fjárhagsáætlun 2018-2021: Grindavíkurbær og stofnanir
Athugasemdir frá forstöðumönnum
Athugasemdir frá forstöðumönnum eftir fyrri umræðu lagðar fram.
Bæjarráð vísar málinu til vinnufundar bæjarstjórnar.9. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IV: Northern light á Íslandi ehf.
Fyrir liggur umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, Slökkviliðs Grindavíkur og byggingarfulltrúa Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.
10. Rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki II: Hótel Grindavíkur ehf.
Fyrir liggur umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, Slökkviliðs Grindavíkur og byggingarfulltrúa Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.