Bæjarráð Grindavíkur - 1437. fundur
- 07.03.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1437
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur L. Pálssonvaramaður
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fjárhagsaðstoð 2017: Grunnur
Lögð til hækkun á framfærslugrunni reglna Grindavíkurbæjar um fjárhagsaðstoð. Hefur ekki áhrif á fjárhagsáætlun.
Félagsmálanefnd leggur til hækkun á framfærslugrunni reglna Grindavíkurbæjar um fjárhagsaðstoð frá og með 1. mars 2017. Lagt er til að fjárhæðin hækki í 135.000 kr.
Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar og vísar tillögunni til samþykktar í bæjarstjórn.2. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar: breytingatillaga vegna heilsustyrkja
Vinnuverndarnefn bókaði eftirfarandi á fundi sínum 11. janúar:$line$$line$Heilsustyrkur í starfsmannastefnu - vinnuverndarnefnd fagnar ákvörðun bæjarstjórnar$line$að hækka upphæð heilsustyrks í starfsmannastefnu. Nefndin hvetur bæjarstjórn til að$line$láta ekki staðar numið hér og útvíkka úthlutunareglurnar þannig að sem flestir$line$starfsmenn geti nýtt sér styrkinn. Gerir nefndin eftirfarandi tillögu að breytingu 9. Liðar$line$þannig að engar takmarkanir verði á búnaðarkaupum og að hann verði einfaldlega$line$svohljóðandi: 9. Kaupa á íþróttabúnaði til eigin nota.
Vinnuverndarnefnd leggur til breytingu á 9. tölulið í heilsueflingarkafla Starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar. Lagt er til að 9. töluliður orðist svo: "Kaupa á íþróttabúnaði til eigin nota".
Bæjarráð samþykkir tillöguna, Guðmundur situr hjá.
Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.3. Samstarf við Sveitarfélagið Voga: Listi yfir hugsanleg samstarfsverkefni
Möguleg samstarfsverkefni milli Grindavíkurbæjar og Sveitarfélagsins Voga.
Minnisblað bæjarstjóra um möguleg samstarfsverkefni Grindavíkurbæjar og Sveitarfélagsins Voga lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.4. Styrkbeiðni: Stofnun jóga-seturs
Harpa Rakel Hallgrímsdóttir óskar eftir fjárstyrk til að reisa og koma á fót jóga-setri í Grindavík
Beiðni um styrk vegna opnunar Prana jógaseturs í Grindavík.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.5. Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands: Aukafundur í fulltrúaráði
Ákveðið hefur verið að halda aukafund í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands kl. 13.00 fimmtudaginn 23. mars n.k. í Golfskálanum Grafarholti.
Aukafundur verður haldinn í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands þann 23. mars nk. kl. 13:00.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri, mun mæta á fundinn fyrir hönd Grindavíkurbæjar.