Bæjarráð Grindavíkur - 1434. fundur
- 07.02.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1434
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Félagsleg heimaþjónusta: Gjaldskrá 2017
Markmiðið að bæjarráð ákvarði gjald fyrir félagslega heimaþjónustu árið 2017 vegna forsendubrests.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Nökkvi Már Jónsson, og kynnti hann málið.
Tillaga
Lagt er til við bæjarráð að það samþykki ákveðið gjald vegna ársins 2017 og feli svo félagsmálanefnd að finna verðlagsgrundvöll til framtíðar.
Lagt er til að gjaldið verði ákvarðað kr. 1.250,- sem er 4,5% hækkun.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.2. VMST: Húsnæðisbætur
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs var falið að meta kostnað við að taka breytingatillöguna inn í reglurnar og málið tekið upp aftur í bæjarráði.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Nökkvi Már Jónsson, og kynnti hann málið.
Við úrvinnslu sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir janúar eru notuð gögn frá Vinnumálastofnun vegna húsnæðisbóta. Í þeim gögnum eru börn umgengisforeldra talin með sem heimilismenn. Því mun framkvæmdin verða þannig að umgengisforeldrar fá sérstakan húsnæðisstuðning miðað við fjölda barna svo fremi sem þau dvelji 30 daga eða lengur á ári hjá umgengisforeldri og uppfylli önnur skilyrði.3. Félagsleg þjónusta, ráðgjöf og búseta
Taka þarf afstöðu til áframhaldandi búsetu í Vinakoti
Til fundarins var mættur sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Nökkvi Már Jónsson, og kynnti hann málið.
Fyrirliggjandi tilboði er hafnað og sviðsstjóra er falið að koma með gagntilboð á grundvelli eldri samnings.4. Fiskeldi á Stað: Internettenging
Beiðni um úrbætur á netsambandi
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið.
Beiðni um úrbætur á netsambandi lögð fram. Í vinnslu er að bæta netsamband í dreifbýli með ljósleiðaratengingu. Sviðsstjóra er falið að svara bréfinu.5. Metanólverksmiðja í Svartsengi: Frummatsskýrsla
Bæjarstjórn tekur undir bókun umhverfis- og ferðamálanefndar og felur bæjarráði að fylgja málinu eftir.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið.
Sviðsstjóri hefur sent athugasemdir til Skipulagsstofnunar og mun fylgja þeim eftir.6. Ósk um viðauka: Tónlistarskóli
Tekin fyrir ósk um viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmda við tónlistarskóla Grindavíkur. Í viðaukanum er óskað eftir 12.000.000 kr. til þess að minnka hljóðleiðni vegna galla í hönnun tónlistarskólans. Framkvæmdin felur í sér að útveggir verði klæddir af.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið.
Sviðsstjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmda við tónlistarskóla Grindavíkur. Í viðaukanum er óskað eftir 12.000.000 kr. til þess að minnka hljóðleiðni vegna galla í hönnun tónlistarskólans. Framkvæmdin felur í sér að útveggir verði klæddir af.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 12.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.7. Fasteignagjöld 2017: Álagning
Álagning fasteignagjalda 2017 lögð fram.
Álagning fasteignagjalda 2017 lögð fram.
Heildarálagning ársins 2017 er 509.691.456 kr. sem er 0,65% hærri en áætlun gerði ráð fyrir.8. Fulltrúaráð EBÍ: Kjör fulltrúa
Fyrrverandi bæjarstjóri var aðalfulltrúi og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs til vara.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarstjóri verði aðalfulltrúi og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs til vara.
9. Íslandsbanki: Fjárfestingastefna Grindavíkurbæjar
Taka þarf afstöðu til tillögu um bankavíxla í fjárfestingarstefnuna og heimila bæjarstjóra undirskrift samnings um fjárvörslu
Bæjarráð samþykkir ekki að taka inn í fjárfestingastefnuna heimild til að fjárfesta í bankavíxlum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skrifa undir samning um fjárvörslu við víb og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.