Bæjarráð Grindavíkur - 1386. fundur
- 07.07.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1386
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Félagsþjónustu- og fræðslusvið: Tillaga að skipulagsbreytingum
Framhald frá fundi 1385.
Bæjarstjóri og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fóru yfir tillögu að skipulagsbreytingum á sviðinu sem miða að því að auka áherslu á fræðslumálin. Fræðslunefnd og félagsmálanefnd hafa fjallað um tillöguna og lýst stuðningi.
Fulltrúi B-lista leggur fram eftirfarandi tillögu.
Hjá Grindavíkurbæ eru nú starfandi fimm svið. Miðað við rekstrarkostnað ársins 2014 er ljóst að 71,1% af rekstrarkostnaði bæjarins fellur undir félagsþjónustu- og fræðslusvið. Önnur svið deila með sér 28,9% af rekstrargjöldum. Ljóst er að félagsþjónustu- og fræðslusvið er því lang stærsta sviðið bæði þegar kemur að rekstrarkostnaði og starfsmannafjölda (77,3% starfsmanna bæjarins). Nýta á það tækifæri og svigrúm sem nú hefur myndast á umræddu sviði til að leggja aukna áherslu á fræðslumál. Með hliðsjón af því leggur fulltrúi B-lista til að félagsþjónustu- og fræðslusviði verði skipt upp í tvö svið, annars vegar fræðslusvið og hins vegar félagsþjónustusvið og að auglýst verði starf sviðstjóra fræðslumála. Þannig er hægt að efla starf skólaskrifstofunnar og leggja aukna áherslu á fræðslumál.
Tillagan er felld með tveimur atkvæðum D- og G-lista gegn einu atkvæði B-lista.
Fulltrúar D- og G-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Í nýrri tillögu frá félagsþjónustu- og fræðslusviði eru gerðar skipulagsbreytingar til að hlúa betur að fræðslumálunum. Samkvæmt tillögunni verður til ný staða forstöðumanns skólaþjónustu en sviðsstjóri félags- og fræðslumála verður áfram næsti yfirmaður skólastjórnenda. Við tökum undir með fulltrúa B-lista að leggja þarf mikla áherslu á fræðslumálin og teljum við að svo sé verið að gera með fyrirliggjandi tillögu. Bæði félagsmálanefnd og fræðslunefnd hafa fjallað um tillöguna og lýst yfir ánægju með hana. Við tökum undir með þeim og væntum þess að með breytingunni sé verið að taka mikið umbótaskref í átt að enn betri og bættri þjónustu í fræðslumálum.
Formaður ber tillögu bæjarstjóra og sviðsstjóra upp til atkvæða
Tillagan er samþykkt samhljóða. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra að koma henni til framkvæmda. Auglýst verða þrjú laus störf í stað þeirra þriggja sem eru ýmist laus eða að losna.2. Áhorfendastúka: Galli í þakklæðningu
Skýrsla Eflu verkfræðistofu Áhorfendastúka í Grindavík dagsett í júní 2015 lögð fram, ásamt fundargerð frá fundi fulltrúa Grindavíkurbæjar með fulltrúum Grindarinnar ehf. sem var verktaki stúkunnar. Auk þess lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 6. júlí 2015.
Verktaki hefur lagt fram breytingatillögu við sáttaboð Grindavíkurbæjar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram gagntillögu.3. Brimfaxi: Ósk um styrk til reiðvegagerðar
Ef á að veita styrk,legg ég til að einungis verði veittur hluti af fjárheimildum, td 2-400.000 kr. - kv Ármann
Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir styrk til að leggja reiðveg í nágrenni hesthúsahverfisins við Hópsheiði.
Í fjárhagsáætlun ársins 2015 eru engar fjárheimildir til reiðvegagerðar og vísar bæjarráð erindinu til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2016.4. Grunnskólinn: Ráðningar kennara skólaárið 2015-2016
Bæjarráð samþykkti á 1383. fundi sínum tillögu fræðslunefndar um að heimilt verði að greiða starfsfólki, sem útskrifaðist með B.Ed. gráðu í grunn- og/eða leikskólakennarafræðum frá og með árinu 2012, sömu laun og þeim sem eru með sömu gráðu og leyfisbréf að auki, að því tilskildu að undanþága fáist fyrir ráðningu þeirra frá undanþágunefnd.
Bæjarstjóri leggur til að framkvæmd þeirrar samþykktar verði breytt, þannig að heimilt verði að greiða þeim sem eru með B.Ed. gráðu tímabundin viðbótarlaun samkvæmt kjarasamningi KÍ við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna tímabundins álags vegna náms viðkomandi starfsmanns til að öðlast leyfisbréf.5. Malbik: milli Seljabótar og Miðgarðs
Minnisblað bæjarstjóra dags. 6. júlí 2015 lagt fram.
Lóðarhafar milli Seljabótar og Miðgarðs hyggjast malbika svæðið milli húsa og óska eftir þátttöku Grindavíkurbæjar í verkefninu, í ljósi þess að á lóðunum er kvöð um akstur inn að hafnarvog.
Bæjarstjóri leggur til að Grindavíkurbær taki þátt í framkvæmdinni. Jafnframt leggur bæjarstjóri til að Grindavíkurbær malbiki að lóðarmörkum Hafnargötu 26 og 28 við sama tækifæri og máli bílastæði við Seljabót og á hafnarsvæði. Til að fjármagna tillöguna verði samþykktur verði viðauki við eignfærða fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 4,5 milljónir króna sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir tillöguna samhljóða.6. Beiðni um umsögn: umsókn Sjónarhóls um rekstarleyfi gististaðar í flokki I
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.