Bæjarráð Grindavíkur - 1362. fundur
- 07.10.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1362
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Krafa um miskabætur
Farið yfir niðurstöður Hæstaréttar. Rætt um mögulega endurkröfu á PLJ og fordæmi fyrir miskabótakröfu nemanda í sambærilegu máli.$line$Ég hef beðið Jóhannes Karl og Nökkva að koma til fundarins. Dóminn má lesa hér http://haestirettur.is/domar?nr=9834
Jóhannes Karl Sveinsson hrl. kom á fundinn og fór yfir niðurstöðu Hæstaréttar í máli 64/2014 Grindavíkurbær gegn Páli Erlingssyni og til réttargæslu Páli Leó Jónssyni.
2. 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Beiðni um fjárauka til að geta greitt nefndarlaun
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins vegna 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar til að greiða afmælisnefndinni nefndarlaun, með vísan til nýsamþykktra reglna um nefndalaun tímabundinna nefnda og starfshópa. Farið er fram á viðauka að fjárhæð 575.000 kr. sem komi til hækkunar á heimild afmælisnefndarinnar og lækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð 575.000 kr. sem komi til hækkunar á heimild afmælisnefndarinnar og lækkunar á handbæru fé.3. Hraðahindrun við gatnamót Dalbraut og Víkurbrautar
Undirskriftalisti íbúa við Dalbraut og Laut lagður fram, þar sem farið er fram á að hraðahindrun við gatnamót Víkurbrautar og Dalbraut verði fjarlægð. Erindið er rökstutt með því að við götuna séu tvær aðrar hraðahindranir og því vandséð að þörf sé fyrir þá sem er við gatnamótin. Aftur á móti valdi hún óþægindum fyrir ökumenn og auki á slit bifreiða.
Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar í skipulags- og umhverfisnefnd.4. Kirkjukór Grindavíkurkirkju óskar eftir ferðastyrk
Kirkjukór Grindavíkurkirkju óskar eftir ferðastyrk vegna ferðar kórsins til Ítalíu.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.5. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Umræðum haldið áfram milli fyrri og seinni umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð óskar eftir umsögn lögfræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga um tillögu að 66. gr. samþykktanna og ákvæðum um valdframsal til skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa.6. Veðleyfi á 1. veðrétt vegna lántöku Víkurbrautar 58 ehf.
Veita þarf heimild til að nýtt lán fari á 1. veðrétt og eldra lánið fari á 2. veðrétt. Sjá ákvæði í eldra láninu.
Eigandi Víkurbrautar 58 ehf. óskar eftir því að fá heimild til að flytja veð vegna kröfu Grindavíkurbæjar á 2. veðrétt, með vísan til heimildar í veðskuldabréfi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera samkomulag við skuldarann um flutning veðsins.7. Umsókn UMFG um afreksstyrk
Aðalstjórn UMFG óskar eftir viðræðum við Grindavíkurbæ um áframhaldandi samkomulag milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG. Lagt er til að samkomulagið verði til 2-4 ára og að skoðað verði að vísitölutengja samninginn.
Í umsögn frístunda- og menningarnefndar kemur fram að í umsókninni felist framlenging á núverandi afreksstyrk sem rennur út um áramót. Nefndin tekur ekki afstöðu til framlengingar samningsins fyrr en gögn liggja fyrir um að skilyrði núverandi samnings hafi verið uppfyllt en skilafrestur þeirra er 31. janúar nk. Málinu er að öðru leiti vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð tekur undir umsögn frístunda- og menningarnefndar og felur nefndinni að hefja viðræður við UMFG þegar niðurstöður af reynslu ársins 2014 liggja fyrir.